Morgunblaðið - 20.10.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.10.2015, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2015 FH, í Berki hf, með Fhákörlum, í Setbergsgolfinu og heima hjá hvor öðrum. Takk, Helgi. Ég votta sonum hans, Sigur- steini, Magnúsi og Helga, samúð mína svo og öðrum ættingjum og vinum. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Björn Eysteinsson. Helgi Ragg er einn af þessum útvöldu vinum og samferðamönn- um sem maður kynnist á lífsleið- inni og verða sérstaklega minn- isstæðir, karakterinn býður ekki upp á annað. Endalaust er verið að rifja upp sögur og atburði þar sem hann var hrókur alls fagnaðar, vildi taka svolítið til sín og uppátækin óvænt og skemmtileg. Á tímabili var vissara að fara gætilega þeg- ar svarað var í símann og grun- samleg, óþekkt rödd var á hinum enda línunnar sem gat þá stund- um komið manni í smávandræði en samt var alltaf um hrekklaust gaman að ræða. Það er með ólíkindum hvað maður hefur eignast marga kunningja og trygga vini með þátttöku í fótboltanum og Helgi er einn af þeim sem ég hitti á fyrstu árum mínum í FH. Okkur varð strax vel til vina, stunduðum fótboltaæfingarnar af kappi með öðrum góðum félögum sem ennþá halda hópinn og ég veit að Helga þótti vænt um þann félags- skap. Á þessum árum vorum við okkar eigin herrar, lausir og lið- ugir og nokkuð duglegir að sækja Glaumbæjarböll og heimsækja fleiri skemmtistaði, ásamt Ból- staðarbræðrum og ýmsum öðr- um fjörkálfum. Ekki má gleyma „samkomunum“ á Club 56 á Hringbrautinni hjá Ingvari Vikt- ors þar sem Helgi bjó líka í kjall- aranum. Samband okkar hélst þó að ég færi síðar heim á Hornafjörð og Helgi færi á sama tíma um víðan völl að þjálfa og sömuleiðis breytt- ust aðstæður við fjölskyldustofn- un. Þegar ég flutti aftur tíma- bundið í Hafnarfjörð með fjölskylduna og tók upp þráðinn hjá FH endurnýjaðist vinskapur- inn og Helgi varð um leið mikill heimilisvinur hjá okkur, nánast daglegur gestur, aufúsugestur, sem börnunum líkaði vel við. Hann deildi jafnvel aðfanga- dagskvöldi með fjölskyldunni og tók þátt í að gleðja alla. Hann var viljugur að aðstoða okkur við ým- islegt og bóngóður. Ómetanlegt var að fá hjálp lærða smiðsins við að setja upp nýja eldhúsinnréttingu í Álfa- skeiðinu eftir brunaskemmdir. En það voru ekki alltaf jólin hjá vininum og hann átti sínar góðu og líka erfiðu stundir eins og gerist í lífi okkar flestra. Hann fór sjálfsagt ekki alltaf vel með sig og ýmis veikindi og áföll tóku sinn toll sem ekki leyndi sér nú síðustu árin. Það var örugglega ekki auð- velt fyrir svona hressan og spaugsaman karakter að sætta sig við að þurfa að hægja á ferð- inni og „að taka það rólega“ en gamli góði húmoristinn var alltaf samur við sig þegar þannig lá á honum, þrátt fyrir mótlæti. Maður varð þess vel áskynja að Helgi var ánægður og sérstak- lega stoltur af sonum sínum og var umhugað um að þeim farn- aðist vel. Já, það er margs að minnast og víst er að við Ásta og börnin okk- ar eigum margar góðar og ánægjulegar minningar um Helga og við erum þakklát fyrir að hafa átt þennan trygga, skemmtilega og góða dreng að vini. Á kveðjustund leitar hugurinn í bæn og biðjum við góðan guð að styrkja drengina hans, fjölskyld- ur þeirra, aðstandendur og aðra sem eiga nú um sárt að binda. Albert Eymundsson. Við vorum tíu ára og alltaf í fótbolta. Hittumst fyrst á Hring- brautarvellinum, litlum spark- velli í Hafnarfirði. Þá var lífið leikur. Síðan lá leiðin upp á Hval- eyrarvöll og loks að fyrirheitna landinu á Kaplakrika og lífið var fótbolti. Helgi Ragnarsson var alltaf nálægur, hvort sem var í samvist- um við vini eða fjölskyldu eða í símanum að fara yfir síðustu úr- slit leikja og ávallt var nærveran ánægjuleg, innileg og glaðvær – og ekki vantaði húmorinn. Sífellt var verið að gera að gamni sínu og ævinlega komu góðlátlegar athugasemdir og óvæntar hugdettur sem hlegið var að. Þannig var Helgi. Á hartnær sextíu ára vegferð er margs að minnast, hvort held- ur var á fótboltavellinum, á glað- værum stundum með félögunum, í fótboltaferð til Ibiza, í Stokk- hólmi, þegar hann birtist óvænt sem bikarhafi þess liðs sem hann þjálfaði í Noregi, í Kaupmanna- höfn, þegar við vorum með Þóri vini okkar, á Flúðum með FH- körlum og ekki síst á golfvellin- um í Setbergi, þar sem hann naut sín allra best á síðustu árum. Alls staðar var Helgi hrókur alls fagn- aðar og breytti samhengi að- stæðna. Helgi var engum líkur. Að rifja upp allar þær yndis- legu samverustundir sem við höf- um átt saman er sérstakt á þeim tímamótum sem nú hafa orðið. Og söknuður okkar hjónanna er mikill, enda var Helgi fastagest- ur á okkar heimili í mörg herrans ár, hvort heldur var í Álfaskeið- inu, í Hraunhvammi og síðustu tuttugu árin að Miðvangi. Hann var einstakur mannvin- ur, hjartahlýr og gefandi og syn- ir okkar sakna vinar í stað. Ávallt var faðmast og kysst þeg- ar hann mætti á staðinn og lang- ar voru kveðjustundirnar, þegar ákveðið var að hætta leik. Persónuleikinn var tær og skýr og tvískinnung þoldi hann ekki. Stundum hvein í tálknum þegar óréttlæti og spillingu bar á góma, enda var réttlætiskenndin hrein og sterk. Það tekur sárt að kveðja góðan dreng sem verið hefur fastur punktur í tilverunni nánast allt okkar líf. Í hverfulleika lífsins ber þó fyrst og fremst að þakka af hjartans einlægni fyrir allt það sem Helgi hefur gefið okkar á lífsleiðinni. En mestur er söknuður drengjanna hans, þeirra Sigur- steins, Magnúsar og Helga. Við erum sannfærð um að algóður Guð huggar þá og styrkir á erf- iðum tímum. Guð blessi minningu Helga F. Ragnarssonar. Ársæll og Birna. Helgi Flóvent Ragnarsson Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi NÝTT – ÚLPUR St. 10 - 24 Sími 588 8050. - vertu vinur Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi NÝTT - SKÓR St. 37-42 Sími 588 8050. - vertu vinur          !!"#$                  Smáauglýsingar Íbúð til leigu Eins manns íbúð til leigu á svæði 101. Laus strax. Áhugasamir sendi á box@mbl.is, merkt: ,, L -25970” Til leigu mbl.is alltaf - allstaðar Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Mín kæra vin- kona Ússa Vil- hjálmsdóttir er lát- in. Við Ússa kynntumst í Finn- landi þegar ég kom þangað fyrst. Hún var þá ein af reynslu- boltunum eftir að hafa búið þar áður auk þess sem mamma hennar var finnsk. Við Ússa urðum strax góðar vinkonur og fyrir mig var frábært að eiga hana að. Þetta fór kannski hægt til að byrja með enda námið krefjandi en eftir að Ússa kynntist Esa í Útnesi fór allt á flug. Við Ússa, Friðrik og Esa Inga Þóra Vilhjálmsdóttir ✝ Inga Þóra Vil-hjálmsdóttir (Ússa) fæddist 31. mars 1959. Hún lést 5. október 2015. Útför Ingu Þóru fór fram 12. októ- ber 2015. brölluðum ýmislegt saman því að Ússa var svo dugleg að stinga upp á og skipuleggja keilu og önnur skemmti- legheit. Gleðistund- irnar voru því margar. Og við Ússa gátum alltaf spjallað saman, það var ekki hörgull á því. Gamli skipskokkurinn hann Friðrik rifjar stundum upp sög- una af því þegar hann tók að sér matinn fyrir eitt þorrablótið í Íslendingafélaginu í Finnlandi og fékk „sveitakonuna“ Ússu í lið með sér. Hann ætlaði að fá hana til að hjálpa sér við að gera þorramatinn og Ússa sam- þykkti strax enda alltaf reiðubú- in að taka þátt og hjálpa. Borg- arbarnið Friðrik áttaði sig bara ekkert á því að Ússa var hreint alls engin sveitakona þó að hún væri alin upp fyrir austan og engan veginn hrifin af svona matargerð eða vön henni á neinn hátt. Þetta uppgötvaðist ekki fyrr en Ússa kúgaðist svo mikið að hún varð að hætta. En Ússa kom á þorrablótið og það heppnaðist alveg ljómandi vel. Við Friðrik fluttum frá Finn- landi í upphafi kreppunnar, snemma á tíunda áratugnum, en Ússa varð eftir enda voru Valdís eldri dóttir hennar og Esa þá þegar fædd og við Friðrik líka orðin foreldrar. Við misstum þráðinn um stund enda mikið að gerast hjá báðum þessum fjöl- skyldum, okkur og þeim, en svo tókum við upp sambandið þegar við Friðrik fórum með krakkana á gömlu slóðirnar sumarið 2007. Það var skemmtileg ferð og þá hittum við meðal annars gömlu nágrannana okkar, Ússu og fjöl- skyldu. Það var byrjunin á tíma- bili sem mér þykir enn vænna um nú þó að ekki hafi það verið eintómur dans á rósum fyrir Ússu því síðustu árin höfum við Ússa hist öðru hvoru og sér- staklega náttúrlega eftir að hún flutti til Íslands. Ússa hafði einstakt lag á fólki og alveg sérstaklega ungu fólki og vinmörg var hún enda þéttur hópur allt í kringum hana. Mér fannst Ússa horfast svo þráð- beint í augu við veikindin og tala svo opinskátt um þau. Mér þótti vænt um að hún veitti mér og okkur Friðriki báðum að- gang að því sem var að gerast hjá henni og þá ekki bara varð- andi heilsuna heldur líka mark- þjálfunina og aðra hluti. Mér þykir vænt um spjallið okkar á milli, bæði þegar vel gekk í gamla daga og líka upp á síð- kastið. Ússa var í mínum huga alveg einstök. Það hafa verið forrétt- indi að eiga vináttu hennar. Mér hefur alltaf þótt óskaplega vænt um hana og kannski aldrei vænna en nú. Hlýjan og vænt- umþykjan gýs upp í mér við til- hugsunina um þessa yndislegu konu sem nú hefur kvatt svo ung. Ég samhryggist innilega Valdísi, Emmu-Lottu og allri fjölskyldunni. Ússa var frábær kona. Ég mun sakna hennar sárt. Guðrún Helga Sigurðardóttir. Elsku amma. Okkur langar til að fá að kveðja þig með fáum orðum. Það er erfitt til þess að hugsa að fá ekki að heyra frá þér oftar, sérstaklega þar sem þú hugsaðir svo vel til okkar öllum stundum. Ekki var það sjaldan sem þú sagðir manni hve langt væri síð- an maður kom í heimsókn síðast, og nagandi samviskubitið beit mann, en aldrei var það illa Árnína Jónsdóttir ✝ Árnína Jóns-dóttir fæddist 24. nóvember 1923. Hún lést 6. október 2015. Útför Árnínu var gerð frá Keflavík- urkirkju 15. októ- ber 2015. meint hjá þér held- ur frekar það að þú værir ánægð með heimsóknirnar en vildir fá fleiri. Okkur eru í fersku minni endur- minningar um allar þær ferðir sem þú fórst í á vegum eldri borgara og kirkjunnar og elja þín að fara alltaf með, þó að ekki hafi alltaf verið auðvelt að koma því við vegna heilsu þinnar. En fara skyldir þú þar sem þú hafðir svo gaman af þessum ferðum og félagsskapn- um sem þarna var að finna. Og gaman var fyrir okkur hin að hlusta á þig segja frá í smá- atriðum hvað hafði komið upp á í hverri ferð þar sem minni þitt var með eindæmum gott fram á síðasta dag og var satt að segja með ólíkindum hve mikið þú mundir af viðburðum. Eins er gaman fyrir okkur að rifja upp leiksvæðið sem við fengum að nýta okkur þegar við vorum í heimsókn hjá þér á Vesturgötunni. Var þá brugðið á það ráð að senda okkur í geymsluganginn þegar leikur okkar var farinn að vera helst til þurftamikill og plássið var eitt- hvað að hrjá okkur. Alltaf var til nóg af leikföngum og muna sum okkar eftir skemmtilegum og fjölbreyttum leikjum sem hægt var að fara í vegna þess að amma hafði ráð undir rifi hverju og, að því virtist vera, gnægð af leikföngum sem hægt var að fá lánuð og leika sér með. Minnisstæð er sú hefð þín að koma til Reykjavíkur með rút- unni, þegar þú varst hætt að keyra á milli, sumum okkar þótti nóg um hve ákveðin þú varst að sjá um þig sjálf en þér fannst það nú ekki mikið mál að koma með rútunni. Meira að segja man eitt okkar eftir því að þú hafir komið í fermingarveislu með rútunni og þótt nú bara gaman, þótt þér hafi verið boðið að þú yrðir sótt. Eins er okkur minnisstætt þegar við fengum að fagna með þér á 85 ára afmæli þínu og þau atriði sem var boðið upp á þar. Og ef minni okkar klikkar ekki kom einmitt þitt lið í enska bolt- anum þar við sögu í það minnsta í einu atriði. Sá dagur verður lengi í minnum hafður þar sem svo gaman var að upplifa hve glöð þú varst að fá stórfjölskyld- una í heimsókn í „kirkjuna þína“ eins og þú kallaðir hana. Elsku langamma okkar. Takk fyrir öll þín fallegu orð, góðu ráð, áhuga og hlýju sem þú gafst okkur. Hvíl í friði elsku amma. Kristín, Hörn og Atli Snær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.