Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Vinnustaðurinn Búið að leggja á borð fyrir matargesti á Lava í Bláa lóninu.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Starf matreiðslumanns er íraun krefjandi og anna-söm vinna, en það hefurekkert með heyrnarleysið
að gera. Ég finn alltaf leið til að
leysa verkefnin,“ segir Unnur Pét-
ursdóttir, 21 árs matreiðslumaður
á veitingastaðnum Lava í Bláa lón-
inu.
Unnur fæddist heyrnarlaus og
er skilgreind 100% heyrnarlaus,
þótt hún skynji örlítið mjög mikinn
hávaða. Áður en hún kom til starfa
á Lava var hún nemi á Grand hót-
eli og útskrifaðist sem matreiðslu-
maður frá Menntaskólanum í
Kópavogi um jólin 2014. Þegar hún
var enn í námi frétti hún af Deaf
Chef-matreiðslukeppninni í Kaup-
mannahöfn, sem haldin var í fyrsta
skipti í fyrra, og ákvað þá að taka
þátt í henni eftir útskriftina.
Og nú er stóra stundin að
renna upp því á laugardaginn
keppir hún við sjö heyrnarlausa
kokka frá jafnmörgum löndum;
Danmörku, Svíþjóð, Englandi,
Frakklandi, Spáni, Kanada og
Bandaríkjunum, um titilinn Heyrn-
arlaus kokkur ársins 2015.
Æfingar í tvo mánuði
„Ég er mjög spennt og hlakka
mikið til, en er líka pínulítið
stressuð. Ég hef æft alla frídaga
mína síðan í september og er búin
að fara átta sinnum í tíma-
æfingar,“ upplýsir Unnur, sem á
föstudaginn heldur utan ásamt
Kolbrúnu Vökudóttur, aðstoðar-
manni sínum, sem líka er heyrn-
arlaus.
Þarftu að hafa með þér hrá-
efni héðan í keppnina?
„Ég má ekki koma með hrá-
efni því keppnin leggur þau til.
Hins vegar hef ég fengið lista yfir
þau hráefni sem ég verð að nota
og annan lista með hráefnum sem
ég get valið sjálf.“
Unnur kveðst ekki hafa hug-
mynd um hvort verðlaun séu í
boði. Enda finnst henni mikilvæg-
ara að þátttakan í keppninni verði
sér góð reynsla og nýtist í starfi.
Hvaða rétti finnst þér
skemmtilegast að matreiða?
„Það eru fjölmargir réttir í
uppáhaldi hjá mér. Skemmtilegast
finnst mér að vinna með ferskt og
gott íslenskt hráefni. Við hjá Bláa
lóninu fáum ferskan fisk daglega
af línubátum í Grindavík og það er
virkilega gaman að vinna með
sjávarfangið. Og væri ég spurð um
uppáhaldsmatinn minn segði ég að
sem kokkur elskaði ég allan mat,“
segir Unnur brosandi og greini-
lega viðbúin spurningunni sem átti
að vera sú næsta.
Er það ástæða þess að þú
ákvaðst að fara í kokkanám?
„Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á bæði matargerð og
bakstri og veit fátt skemmtilegra
en að elda góðan mat og baka kök-
ur. Þegar ég tók matreiðslu sem
valfag í Hlíðaskóla var ég undir
leiðsögn góðs matreiðslumanns og
fékk tækifæri til að elda mjög
flottan mat. Þá var ég alltaf að fá
eldhúsið hennar mömmu lánað og
elda og baka.“
Unnir segir áhugamál sín fel-
ast fyrst og fremst í því að elda
góðan mat, hún elski að lesa mat-
reiðslubækur. Þótt hún eigi marg-
ar slíkar hafi hún ekkert á móti að
eiga fleiri.
Puttalingur
Upp úr dúrnum kemur að
Unnur gefur sér líka tíma til ann-
arra starfa. Hún hefur síðustu
fjögur árin verið formaður Putta-
linga, sem er unglingadeild Félags
heyrnarlausra, og var til skamms
tíma í Keilufélagi heyrnarlausra en
þurfti reyndar að hætta í því
vegna anna í starfi.
Þú segir að heyrnarleysið hái
þér ekkert í starfi – hvernig eru
tjáskiptin á vinnustaðnum?
„Í fyrstu þegar ég var nýbyrj-
uð í starfi var þetta pínu erfitt þar
sem fólk var að kalla á mig og það
virkaði auðvitað ekki neitt,“ segir
Unnur og hlær. „Svo áttaði það sig
á því hvernig best væri að ná sam-
bandi við mig og kollegar mínir
komust fljótlega upp á lag með að
nota smá táknmál. Síðan hefur
okkur gengið vel að vinna saman
og eiga samskipti. Ég skrifa einnig
mikið. Í eldhúsinu er borð sem
virkar eins og tússtafla og okkur í
vinnunni finnst þægilegt að skrifa
á hana. Tæknin kemur líka að góð-
um notum því það er þægilegt að
nota skilaboðaforrit og sms.“
Dreymir þig um að eignast
eigin veitingastað?
„Já, annaðhvort í borg eða
sveit. Með tíð og tíma,“ svarar
Unnur.
Þess má geta að matreiðslu-
meistararnir á Lava bera Unni
einstaklega vel söguna og segja
hana afar hæfileikaríkan mat-
reiðslumann. Þeir ætla að fylgjast
vel með keppninni á laugardaginn
og standa vitaskuld með sinni
konu.
Í Deaf Chef-keppninni er
keppendum gert að búa til ævin-
týralega rétti og hafa jafnframt
sjálfbærni í hávegum og matar-
sóun í lágmarki. Keppnin verður
opin almenningi kl. 10.30 til 16, en
útvöldum síðan boðið til sérstakrar
móttöku kl. 17 til 18, og verður þá
nafn sigurvegarans gert heyr-
inkunnugt. Efalítið verða fagn-
aðarlætin sýnileg.
Heyrnarlaus kokkur keppir í Köben
Unnur Pétursdóttir verð-
ur fulltrúi Íslands í Deaf
Chef-matreiðslukeppn-
inni í Hótel- og veitinga-
skólanum í Valby í
Kaupmannahöfn á
laugardaginn. Keppnin
er haldin annað árið í
röð og eru keppendur
heyrnarlausir mat-
reiðslumenn frá átta
löndum.
Systur Unnur ásamt Dagnýju, systur sinni, sem starfar sem þjónn á Lava.
Morgunblaðið/Eva Björk
Undirbúningur Unnur hefur notað alla frídaga sína í tvo mánuði til að undirbúa sig fyrir Deaf Chef mat́reiðslukeppnina og farið átta sinnum í tímaæfingar.
Forréttur Í forrétt verður
þorskrúlla með dillolíu-
þorskfarsi, ostrusalati, sell-
erímauki, ætiþistlateningum,
skalottlauk, brenndum blað-
lauk, fiskisósu og dilli.
Aðalréttur Í aðalréttinn ætlar
Unnur að vera með kan-
ínurúllu, langtímaelduð kan-
ínulæri, rauðlaukssultu, sinn-
ep, kartöflur með
blaðlauksfyllingu, rauðvínssósu
með svínatungu, gulrótamauki
og kerfil.
Eftirréttur Eftirrétturinn inni-
heldur valhnetudeig, enskt
krem, epli, hunangsfrauð,
valhnetumylsnu, eplakúlu,
karamellu og vöfflu.
Matseðill
Unnar
Deaf Chef
matreiðslukeppnin 2015
Dekk Dekk
Stærð
Negld Ve
trar Heils
árs pr.stk
175/70 13“
11.900,- 9,9
90,- 9000,-
—
185/65 14“
12,990,- 10,9
90,- 10,990,
- —
185/60 15“
14,990,- 12,9
90,- 12,990,
- —
185/65 15“
14,990,- 12,9
90,- 11,990,
- —
205/55 16“
16,990,- 14,9
90,- 13,990,
- —
215/55 16“
18,990,- 16,9
90,- 16,990,
- —
225/45 17“
19,990,- 19,9
90,-
—
195/70 C 15“
18,900,-
—
205/65 C 16“
19,900,-
—
Níðsterk dekk sem hentar
vel í öllum aðstæðum
Dekkin eru öll
míkróskorin
Burðardekk á
góðu verði
Símar: Bjarni 771 4221 | Lilja 771 4222 | Diddi 861 2319
Njarðarbraut 11 Reykjanesbæ sími 421 1251
8-17 mán-föst.
10-14 laugardag.
Opið
Sendum hvert á
land sem er.
Raðgreiðslur í allt
að 12 mánuðum
Við hjá Bláa lóninu fáum
ferskan fisk daglega af
línubátum í Grindavík
og það er virkilega
gaman að vinna með
sjávarfangið.