Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 63
hnetunum er notuð til þess að
setja ofan á kökurnar. Setjið deig-
ið í skal með plastfilmu ofan á og
kældu í 30 mínútur. Setjið u.þ.b. 1
msk. af deigi utan um 1 stk. róló-
bita, mikilvægt er að rólóbitinn sé
vel inni í deiginu. Myndið fallega
kúlu úr deiginu og þrýstið einni
hlið ofan í afgangs heslihneturnar
og setjið á ofnplötu með bök-
unarpappír. Endurtakið þetta þar
til deigið hefur klárast og hafið
gott bil á milli. Hliðin með hnet-
unum á að snúa upp. Bakið kök-
urnar í u.þ.b. 8 mínútur eða þar til
kökurnar hafa sprungið örlítið að
ofan. Passa þarf að baka þær ekki
of lengi því þá lekur karamellan út
úr kökunum og þær verða ljótar.
Takið kökurnar út og kælið vel.
Bræðið hvítt súkkulaði með smá
smjöri á lágum hita og setjið yfir
kökurnar.
Vanilluskyrkökur með
Dumle snack’s toppi
Úr einfaldri uppskrift fást u.þ.b.
60-70 kökur
Innihald
150 g púðursykur
150 g smjör
3 stk. egg
200 g vanilluskyr
180 g kornflakes
125 g hveiti
150 g haframjöl
1 tsk. natron
½ tsk. salt
2 pokar Dumle-karamellur skornar í
þrjá bita
Aðferð:
Hrærið saman púðursykur og
smjör. Bætið í eggjum og vanillu-
skyri og hrærið vel saman. Hrærið
saman við kornflakes, hveiti,
haframjöl, natron og salt. Myndið
litlar kúlur og setjið á smjörpappír
á ofnplötu. Setjið Dumle kara-
mellu á toppinn og þrýstið örlítið
á. Bakið við 170°C í 12-15 mínútur.
Jólalegt bakkelsi
Trönuberja- og rúsínubrauð
Innihald
2 dl rúsínur, gjarnan dökkar og ljós-
ar
2 dl þurrkuð trönuber
5 ½ dl hveiti
1 msk. matarsódi
2 egg
1 dós KEA ferskju skyr eða hreint
skyr
1 dl mjólk
Meðlæti:
smjör
síróp
ferskjur
Aðferð:
1. Leggið rúsínurnar og trönu-
berin í vatn. Látið bíða í 30 mín-
útur. Hellið vatninu af.
2. Stillið ofninn á 180°.
3. Hrærið öllum hráefnunum
saman. Deigið á að vera örlítið
klístrað. Bætið smá hveiti saman
við ef þurfa þykir.
4. Setjið deigið í kringlótt köku-
form sem er 22-24 cm í þvermál.
Bakið í 35-45 mínútur. Berið fram
volgt með smjöri, sírópi og fersk-
um ferskjubitum. Brauðið er einn-
ig mjög gott að rista.
63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Úpps!
Klofin í herðar niður
Hillurnar í Tiger eru fullar
af hrekkjavökuhryllingi.
Ef þú vogar þér inn til okkar,
þá lofum við (kannski) að
hræða ekki líftóruna úr þér.
Blóðug hrekkjavöku-
húfa 600 kr.
Se
nd
um
íp
ós
tk
rö
fu
·
s.
52
88
20
0