Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur úrskurðað að fresta
beri réttaráhrifum ákvörðunar Um-
hverfisstofnunar þar sem lagðar
voru á dagsektir á
Ísfélag Vest-
mannaeyja vegna
meintra brota á
reglugerð um
brennslu úr-
gangs. Ágrein-
ingur málsaðila
hafi ekki verið til
lykta leiddur hjá
nefndinni, auk
þess sem vafi sé
uppi um skil-
greiningu á olíu þeirri sem málið
varðar.
Hafði umhverfisstofnun lagt á 50
þúsund króna dagsektir á Ísfélagið
vegna meintra brota. Varða þau
brennslu Ísfélagsins á endurunninni
olíu í fiskimjölsverksmiðjum í Vest-
mannaeyjum og á Þórshöfn.
Endurunna olían er framleidd af
Olíudreifingu og til sölu hjá N1.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur það komið fram af
hálfu Umhverfisstofnunar að hún
geti ekki gert athugasemdir við að
olían gangi kaupum og sölum. Hins
vegar geti stofnunin gert athuga-
semdir við brennslu olíunnar á
grundvelli íslenskrar reglugerðar
sem byggist á tilskipun Evrópusam-
bandsins sem var fallin úr gildi.
Gamla tilskipunin var úrelt
Um þetta er fjallað í dómi hjá
EFTA-dómstólnum (E-5/14), þar
sem segir að nýja tilskipunin um
brennslu úrgangs hafi tekið gildi 1.
nóvember 2012. Var gamla tilskip-
unin því úrelt þegar stofnunin hóf að
senda Ísfélaginu áminningar vegna
olíubrennslu félagsins.
Þá herma heimildir blaðsins að
Umhverfisstofnun hafi talið hreins-
unarferli Olíudreifingar á endur-
unnu olíunni ófullnægjandi, með
þeim rökum að olían hafi „ekki farið í
gegnum það ferli sem gerð er krafa
um til endurmyndunar grunnolíu“.
Vísað er til reglugerðar nr. 809/1999
en samkvæmt heimildum blaðsins er
þar ekki tilgreint hvernig hreins-
unarferlið eigi að vera.
Hinn 12. ágúst síðastliðinn til-
kynnti Umhverfisstofnun Ísfélaginu
um álagningu dagsekta að fjárhæð
alls 50 þúsund krónur vegna
brennslu olíunnar en þá var efnis-
legur ágreiningur aðila til meðferðar
hjá úrskurðarnefndinni og niður-
stöðu hennar beðið.
Horft til meðalhófsreglu
Finnur Magnússon, lögmaður Ís-
félagsins í málinu, segir að rök-
semdafærsla og niðurstaða úrskurð-
arnefndarinnar byggist á viður-
kenndum sjónarmiðum stjórnsýslu-
réttarins. Það sé „mjög sérstakt
þegar Umhverfisstofnun, sem er
lægra sett stjórnvald, ákveður að
leggja á dagsektir þegar fyrirtæki
hefur skotið íþyngjandi ákvörðun
Umhverfisstofnunar til æðra setts
stjórnvalds“.
„Í málinu er uppi efnislegur
ágreiningur milli Ísfélagsins og Um-
hverfisstofnunar og vafi um laga-
túlkun Umhverfisstofnunar. Að
teknu tilliti til þess hefði verið eðli-
legt – og í samræmi við meðalhófs-
reglu stjórnsýsluréttarins – að
leggja ekki á dagsektir heldur bíða
eftir niðurstöðu úrskurðarnefnd-
arinnar. Á þetta er bent í forsendum
úrskurðarnefndarinnar og því ljóst
að hún féllst á röksemdir Ísfélagsins
að öllu leyti hvað þennan þátt máls-
ins varðar,“ segir Finnur.
Uppfylla þyrfti skilyrði
Fram kemur í úrskurði úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála,
sem kveðinn var upp 15. október sl.,
að málið eigi sér langan aðdraganda.
Það hófst með fyrirspurn Um-
hverfisstofnunar til Ísfélagsins 2.
október 2012 þar sem óskað var upp-
lýsinga um magn og tegund þeirrar
olíu sem brennd væri hjá Ísfélaginu.
Hinn 13. mars 2013 tilkynnti Um-
hverfisstofnun Ísfélaginu að notkun
félagsins á olíublöndunni þyrfti að
uppfylla skilyrði reglugerðar um
brennslu úrgangs, enda væri þetta
úrgangsolía. Þá þyrfti að sækja um
nýtt starfsleyfi hjá Umhverfis-
stofnun.
Síðan taka við frekari bréfaskipti
þar sem stofnunin áminnir Ísfélagið
og gefur kost á að gera úrbætur. Það
er svo með bréfi 5. maí 2015 að Um-
hverfisstofnun gerir grein fyrir því
að hún fyrirhugaði að leggja dag-
sektir á kæranda vegna brennslu úr-
gangsolíu í starfsstöðvum félagsins í
Vestmannaeyjum og í Þórshöfn.
Mótmælti Ísfélagið því með bréfi
dagsettu 5. júní 2015.
Það gerðist svo að Umhverfis-
stofnun ákvað 12. ágúst sama ár að
leggja á dagsektir, 25 þúsund krónur
á hvora starfsstöð, alls 50 þúsund
krónur, frá 17. ágúst 2015.
Í kjölfarið tilkynnir Ísfélagið Um-
hverfisstofnun með bréfi, dagsettu 9.
október 2015, að félagið hafi stöðvað
brennslu olíunnar í þessum tveimur
starfsstöðvum enda væri ekki þörf á
henni sökum árstíðabundinna
sveiflna í veiðum. Það væri ekki ráð-
gert að hefja brennsluna aftur fyrr
en um miðjan nóvember 2015 í Vest-
mannaeyjum og í janúar 2016 á
Þórshöfn. Var farið fram á að stofn-
unin hætti án tafar álagningu dag-
sekta.
Lengi beðið eftir úrlausn
Í málsrökum kæranda segir að
„lögmæti brennslu „úrgangsolíu“ á
starfsstöð [Ísfélagsins] á Þórshöfn
hafi verið til meðferðar hjá úrskurð-
arnefndinni frá 11. febrúar 2014 og
[Ísfélagið] því beðið lengi eftir efn-
islegri úrlausn um lögmæti brennslu
olíunnar. Af þeim sökum telji kær-
andi, með vísan til meðalhófsreglu
stjórnsýsluréttarins sem og réttar-
öryggissjónarmiða, að eðlilegt sé að
tekið verði tillit til þessara kring-
umstæðna og fallist á frestun hinna
kærðu ákvarðana þar til efnisleg úr-
lausn um brennslu olíunnar sem og
lögmæti dagsektanna liggi fyrir“.
Geti það vart talist forsvaranlegt að
á meðan fordæmisgefandi stjórn-
sýslumál sé til efnislegrar meðferðar
hjá æðra settu stjórnvaldi skuli
lægra setta stjórnvaldið geta beitt
þvingunarúrræðum til fullnustu
ákvarðana sinna,“ skrifar nefndin og
víkur að vafa varðandi olíuna:
„Þykir eins og hér stendur á ekki
rétt að kærandi sæti refsikenndum
viðurlögum, svo sem dagsektum,
vegna athafna sem ágreiningur er
uppi um hvort séu lögmætar eða
ekki á meðan sá ágreiningur hefur
ekki verið til lykta leiddur hjá kæru-
stjórnvaldi sem hefur ágreinings-
málið til meðferðar. Þá verður ekki
litið fram hjá því að ákveðinn vafi er
uppi um skilgreiningu á olíu þeirri
sem hér er um deilt. Verður að svo
stöddu að skýra þann vafa kæranda í
hag,“ segir meðal annars í niðurlags-
orðum úrskurðarins.
Bannað að nota endurunna olíu
Umhverfisstofnun sektaði Ísfélagið fyrir brennslu olíu áður en úrskurðað var um lögmæti þess
Ísfélagið telur notkun endurunnu olíunnar vera umhverfisvænni en förgun olíunnar í Svíþjóð
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Á Þórshöfn Ísfélag Vestmannaeyja notaði olíu til að knýja fiskimjölsverksmiðjur í Vestmannaeyjum og Þórshöfn.
Finnur
Magnússon
Samkvæmt heimildum blaðsins
er umrædd endurunnin olía
gerð úr olíu sem er safnað sam-
an af Olíudreifingu. Hún er svo
hreinsuð af spilliefnum og
henni blandað saman við svart-
olíu (IFO 380). Mun endurunna
olían vera mun ódýrari en hrein
svartolía.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hefur Ísfélagið sett fram
það sjónarmið að brennsla
endurunninnar olíu mengi
minna en brennsla svartolíu
(IFO 380). Þá er á það bent að
engin aðstaða sé til að farga
endurunninni olíu á Íslandi. Tel-
ur Ísfélagið því að ef sjónarmið
Umhverfisstofnunar verða ofan
á í málinu verði olían sem Olíu-
dreifing endurvinnur flutt með
tankskipum til Svíþjóðar og
brennd þar í orkuverum. Þar
sem brenna þurfi svartolíu við
það að flytja endurunnu olíuna
til Svíþjóðar séu heildaráhrifin á
umhverfið mun verri en þegar
endurunna olían er notuð aftur
hér á landi.
Yrði ella flutt
til Svíþjóðar
HINN VALKOSTURINN
20% afsláttur af púðum og teppum
Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
OFURÍSHOKKÍ
HELGI FRÍTTINN!Föstudagur
Laugardalur SR/Björninn kl. 18:00
Laugardalur Esja / SA kl. 21:00
Laugardagur
Egilshöll Björninn / SA kl. 16:30
Egilshöll Esja / SR kl. 19:30
Sunnudagur
Laugardalur SR / SA kl. 18:30
Egilshöll Björninn / Esja kl. 20:00