Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Það er einhver gamall fiðringur í
manni og mér finnst gefandi að
gera upp gömul hús. Það er gaman
að smíða glugga og hurðir með
gamla laginu og því skrauti sem
þeim fylgir. Ef ég væri ekki í
svona verkefnum öðru hvoru væri
ég hætt í þessum bransa.“
Þetta segir Svandís Sverris-
dóttir, húsasmiður á Húsavík, en
hún hefur um langt árabil unnið
við endurgerð gamalla húsa ásamt
því að fást við nýsmíðar ýmiss kon-
ar.
Svandís hefur nú á haustdögum
fengist við að endurbyggja gamla
torfbæinn Kvíabekk á Húsavík
ásamt Vigfúsi Þór Leifssyni sem
líka er húsasmiður og með áratuga
reynslu af byggingum. Vinnan hef-
ur gengið vel enda hefur tíðarfarið
leikið við þau Svandísi og Vigfús
og er nú að komast skemmtileg
mynd á Kvíabekk, sem áður var í
mikilli niðurníðslu.
Löng byggingarsaga
Torfbærinn Kvíabekkur við
Reykjaheiðarveg var byggður 1893
af Baldínu Hallgrímsdóttur og Jós-
ep Kristjánssyni og samanstóð
hann af þremur burstum. Sam-
kvæmt mynd frá árinu 1921 voru
tvær burstir með torfþaki en þriðja
burstin úr öðru efni, líklega járni.
Kvíabekkur var dæmigerður
burstabær alþýðufólks á þessum
tíma og áföst bænum voru fjárhús
fyrir 30 kindur og heyhlaða. Íveru-
húsið var með baðstofu og eldhúsi,
bæði alþiljuð og með timbur-
gólfum.
Árið 1930 var ein burst rifin og
nýtt framhús byggt. Snemma á
sjöunda áratugnum var búið að rífa
enn eina burst og byggja bílskúr
við og stuttu síðar var síðasta
burstin rifin og varð þá einungis
grjóthleðslan eftir sem stóð uppi
um langt árabil.
Búið var í framhúsinu í Kvía-
bekk til ársins 1975 þar til sveitar-
félagið tók hann yfir og gerði hann
hluta af Skrúðgarðinum á Húsavík.
Framhúsið gegndi hlutverki
áhaldahúss og þar var einnig af-
drep fyrir starfsmenn garðsins.
Það var fyrst árið 2011 sem byrjað
var að gera upp framhúsið í sam-
vinnu við Húsafriðunarnefnd og
síðar Minjastofnun sem styrkti
verkefnið ásamt sveitarfélaginu og
nú hefur forsætisráðuneytið lagt
verkefninu lið með myndarlegum
hætti þannig að búast má við að
hægt verði að klára torfbæinn að
mestu.
Starfshópur um Kvíabekk
Hugmyndin er að byggja Kvía-
bekk í þeirri ytri mynd sem hann
var í á árunum 1930-1940 með
framhúsi úr timbri og tveimur
burstum og áföstum skúr. Arkitekt
Kvíabekkjar er Arnhildur Pálma-
dóttir og hefur hún teiknað bæinn
upp. Þá hefur verið skipaður
starfshópur um uppbygginguna og
eiga þar sæti m.a. Halldór Valdi-
marsson, formaður Gafls, félags um
þingeyskan byggingararf, Gaukur
Hjartarson, skipulags- og bygging-
arfulltrúi Norðurþings, Jan Klit-
gaard, forstöðumaður Hvalasafns-
ins á Húsavík, Hjálmar Bogi
Hafliðason, kennari og fulltrúi
framkvæmda- og hafnarnefndar
sveitarfélagsins, og Smári J. Lúð-
víksson, garðyrkjumaður Norð-
urþings.
Miklir möguleikar
Framtíð Kvíabekkjar er björt
þegar byggingarframkvæmdunum
lýkur og er það von þeirra sem að
þessu verkefni standa að í torfbæn-
um skapist margir möguleikar.
Sumir hafa nefnt litla gestaíbúð
fyrir fólk sem er að vinna að skap-
andi verkefnum á ýmsum sviðum
og aðstöðu ýmiss konar fyrir félög
á Húsavík. Möguleiki er líka á að
þarna verði kaffihús yfir sumartím-
ann, móttökuhús fyrir sveitarfélag-
ið og að nemendur skólanna fái
leyfi til að vinna að verkefnum í
Kvíabekk sem tengjast umhverf-
ismálum og útivist. Sögu bæjarins
verða gerð skil innandyra í máli og
myndum.
Smiðirnir þau Svandís og Vigfús
hafa mjög gaman af þessu og alltaf
er eitthvað skemmtileg að fást við í
torfbæ sem þessum. Verkefnin eru
mörg og í þeirra höndum verður
Kvíabekkur kærkomin viðbót við
húsakost bæjarins og mun hafa
mikið menningarlegt gildi fyrir
Húsavík.
Gamall fiðringur að gera upp
Torfbærinn Kvíabekkur á Húsavík upphaflega byggður árið 1895 Dæmigerður burstabær
alþýðufólks Gefandi að gera upp gömul hús, segir húsasmiðurinn Svandís Sverrisdóttir
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Endurgerð Vel hefur gengið að gera upp torfbærinn Kvíabekk á Húsavík sem smám saman tekur á sig mynd en hann var upphaflega reistur í lok 19. aldar.
Kvíabekkur Svandís Sverrisdóttir og Vigfús Þór Leifsson gera torfbæinn upp.
Segja má að áhugi á gömlum
húsun hafi aukist mjög í Þing-
eyjarsýslum á seinni árum og
eru hugmyndir uppi um að
gera húsakönnun í héraðinu
sem mun varpa ljósi á þau hús
sem hafa mikið varðveislu-
gildi. Á tímabili var lítið hugs-
að um byggingarsögulegt gildi
eldri húsa. Á Húsavík var mik-
ið rifið af húsum á árunum
1960-1980 og sum þeirra voru
brennd og þá hafðar slökkvi-
liðsæfingar. Margir sakna
merkilegra húsa og má þá
einkum nefna gamla prests-
setrið sem stundum var nefnt
Húsavíkurbær eða gamla
Húsavík. Aðrir nefna Blöndals-
hús, Bókhlöðuna, Hótel Húsa-
vík við Garðarsbraut,
Kirkjubæ, Reynishús, Vetrar-
braut og fleiri merkileg hús.
Merk hús áður
rifin eða brennd
HÚSAFRIÐUN EFLIST
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200