Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015 „Hann er annars vegar með mjög sterka stöðu á sveitarstjórnarstiginu, fyrir utan Reykjavík, en hins vegar með sögulegt lágmark í fylgistölum á landsvísu, samkvæmt skoðanakönn- unum. Því er flokkurinn í ákveðinni fylgiskrísu,“ segir hann. Viðmælendur benda á að hér séu miklar andstæður á ferð, því verkefni Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn gangi vel, þótt fylgi flokksins sam- kvæmt skoðanakönnunum endur- spegli ekki þá staðreynd. Erfitt sé að trúa því að staðreyndir eins og halla- laus fjárlög, aukinn kaupmáttur, efnahagslegur stöðugleiki, sem geti að vísu verið brothættur vegna óvissu á vinnumarkaði, skattalækkanir og afnám tolla og vörugjalda eigi ekki eftir að skila aftur umtalsverðu fylgi og sjálfstæðismenn „skili sér heim á nýjan leik“, eins og einn orðaði það. „Ég held það gildi hið sama um Sjálfstæðisflokkinn og aðra rótgróna flokka, að þeir eru svolítið leitandi, þeir eru að reyna að finna fjölina sína og átta sig á því hvernig þeir eiga að spila úr þeim aðstæðum sem þeir eru í einmitt núna,“ segir þingmaður flokksins. Veikur og litlaus þingflokkur Hann tekur undir orð ýmissa við- mælenda, sem hafa lýst í eyru blaða- manns þeirri skoðun sinni að þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins sé fremur veikur og litlaus og hið sama eigi við um borgarstjórnarflokk Sjálf- stæðisflokksins. „Nema þar eru veik- leikarnir miklu meiri og litleysið al- gjört. Það er sláandi hvað staða flokksins hefur versnað í Reykjavík,“ segir þingmaðurinn. Hann bætir því við að þótt hann segi þetta um sinn eigin þingflokk, þá sé þetta ekki eitt- hvað sem þingmenn Sjálfstæðis- flokksins ræði opinberlega. Helst er bent á að einhver átök geti orðið um stefnu flokksins í skatta- og peningamálum. Mörgum þyki hvergi nærri nóg hafa verið að gert í skatta- lækkunum, einkum lækkun á tekju- skatti einstaklinga. Þó er bent á að ekki megi gleyma því að miðþrepið í tekjuskatti einstaklinga verði afnum- ið og neðra þrepið lækkað. Telja stöðu formannsins sterka Í samtölum við landsfundarfulltrúa var það miklu fremur staða einstakra þingmanna, þingflokksins, ráðherra flokksins og borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins sem bar á góma, ekki málefnin sjálf. Flestir virðast sammála um að staða Bjarna Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðisflokksins, sé sterk og sögðu ýmsir viðmælendur að hann hefði vaxið mikið í starfi og bentu á þann árangur sem hann hefði náð í stjórn efnahags- og fjármála. Við- mælendur eiga von á því að Bjarni fái góðan stuðning í formannskjöri. „Ég held að málefnaleg staða flokksins sé nokkuð sterk og ég tel að grunngildi hans og stefna, frelsi ein- staklingsins og aukin áhrif hans, eigi sama erindi við landsmenn og hún hefur átt í gegnum tíðina,“ sagði þingmaður flokksins. Hann viðurkennir að staða flokks- ins samkvæmt skoðanakönnunum sé slök, en telur að flokkurinn eigi eftir að rétta úr kútnum og endurheimta fylgi fjölda sjálfstæðismanna, ekki síst vegna þess árangurs sem náðst hafi á skömmum tíma. Til dæmis hefðu fáir trúað því fyr- irfram að á þessu kjörtímabili tækist að afnema tolla og vörugjöld, þannig að einungis yrðu áfram tollar á mat- vælum sem væru í samkeppni við inn- lenda landbúnaðarframleiðslu. Það eitt væri góður árangur. Segja stöðu Hönnu Birnu veika Viðmælendum varð tíðrætt um stöðu fráfarandi varaformanns Sjálf- stæðisflokksins, Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur. Flestir virðast þeirrar skoðunar að hennar pólitíska lífi sé að ljúka og staða hennar í flokknum og þingflokknum sögð mjög veik. Því er spáð að Hanna Birna noti næsta ár til þess að gera það upp við sig hvort hún hefur áhuga á að taka þátt í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu alþingiskosningar. Fullyrt er af ákveðnum viðmæl- endum að Hanna Birna geri sér ljósa grein fyrir eigin stöðu. Hún hafi reynt að fá ráðherraembætti á nýjan leik þegar hún kom úr fríi í vor, án ár- angurs. Hún hafi jafnframt kannað sl. vetur hjá Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra, hvort hún ætti kost á góðri stöðu í öðru landi, án ár- angurs. Formennskan í utanrík- ismálanefnd nú í september hafi því verið eins konar tímabundin dúsa handa Hönnu Birnu, á meðan hún tekur ákvarðanir um hver hennar næstu skref verða. Ekki hafi verið hægt að horfa framhjá því að hún sé varaformaður flokksins og fyrsti þingmaður Reyk- víkurkjördæmis suður. Birgir Ár- mannsson, 9. þingmaður Reykjavík- urkjördæmis norður, sem var for- maður utanríkismálanefndar og þótti standa sig með ágætum, hafi orðið að una því að formennskan færi til Hönnu Birnu. „Það kemur ekkert á óvart að sjálf- stæðismenn velti póltískri framtíð minni fyrir sér. Ég hef ítrekað deilt því með mínu fólki í flokknum að reynsla liðinna ára hafi vakið hjá mér og mínum spurningar um hvort þetta sé minn framtíðarstaður. Það breytir þó engu um það að stjórnmálin hafa alltaf verið mikil ástríða hjá mér og mig langar enn fátt meira en að berj- ast fyrir hugsjónum frelsis og tæki- færa. Það geri ég nú á hverjum degi á Alþingi en hef enga ákvörðun tekið um það hvort ég muni gera það til fimmtugs, sextugs eða jafnvel sjö- tugs. Sú ákvörðun kemur síðar,“ sagði Hanna Birna þegar hún var spurð hvort hún væri á útleið úr póli- tík. Annað hljóð er í strokknum þegar kemur að umræðu um arftaka Hönnu Birnu í innanríkisráðuneytinu, Ólöfu Nordal. Mikill samhljómur er í máli viðmælenda, sem telja hana hafa staðið sig vel sem innanríkisráðherra. Sömuleiðis virðast menn sannfærðir um að hún fái góða kosningu sem varaformaður. Árangur Illuga vanmetinn Viðmælendur eru flestir sammála um að sú heiftarlega umræða sem átt hefur stað að undanförnu um Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra hafi skaðað hans pólitísku stöðu, en um leið benda þeir á að umfjöllun ákveðinna fjölmiðla um stöðu hans og fjármál jaðri við einelti. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði af þessu tilefni: „Árangur Illuga í menntamálum er mjög vanmetinn. Hann hefur náð fram breytingum sem menn hafa verið að berjast fyrir í yfir tuttugu ár. Þar á ég við styttingu framhaldsskólans, sem hefur mikla þjóðhagslega þýðingu. Þjóðhagsleg hagkvæmni þess að krakkarnir skuli koma ári fyrr út á vinnumarkaðinn, hún jafngildir líklega 13 til 14 millj- arða auknum tekjum í landsfram- leiðslu. Þessi árangur mætti vera meira til umræðu, að ég tali nú ekki um frábæra herferð til þess að auka lestrar- og stærðfræðikunnáttu grunnskólabarna.“ Fram hefur komið að Unnur Brá Konráðsdóttir, fjórði þingmaður Suð- urkjördæmis, hafi hug á að bjóða sig fram til varaformanns. Skiptar skoð- anir eru meðal viðmælenda um hvort hún lætur verða af því. Fleiri eru þeirrar skoðunar að hún hætti við, þar sem stuðningurinn við Ólöfu virð- ist vera afskaplega afgerandi. Aðrir telja þó allt eins líklegt að hún láti slag standa og bjóði sig fram. „Unnur Brá er ólíkindatól og hún er þeirrar náttúru, að henni hefur aldrei leiðst athyglin,“ segir landsfundarfulltrúi. Annar segir að þegar Unnur Brá orðaði hugmynd um varaformanns- framboð fyrst hafi almennt verið álit- ið að þeir sem hafa tilheyrt svoköll- uðum Deigluhópi, sem hún hefur starfað náið með, myndu styðja hana, en annað hafi komið á daginn. Lyk- ilmenn úr Deigluhópnum, t.d. Borgar Þór Einarsson, ætli ekki að styðja hana. „Það kann að valda því að Unn- ur Brá hætti við,“ segir þingmaður. Unnur Brá vildi ekki svara því, þegar blaðamaður náði í hana, hvort hún ætlaði að bjóða sig fram til varafor- manns. Ekki landsfundur deilna og átaka  Búist við á milli 1.100 og 1.200 fulltrúum  Ólöfu Nordal spáð góðu kjöri í varaformannsembættið  Margir telja að Hanna Birna Kristjánsdóttir sé á leið út úr pólitík, en Hanna Birna hafnar því Morgunblaðið/Ómar Landsfundur 2013 Á milli 1.100 og 1.200 fulltrúar sóttu landsfund Sjálfstæðisflokksins í febrúar 2013. Reiknað er með svipuðum fjölda á fundinn sem hefst á morgun. Bjarni Benediktsson flytur formannsræðu sína kl. 16.30. Morgunblaðið/Kristinn Landsfundur 2010 Ólöf Nordal var kjörin varaformaður flokksins 2010. Flestir reikna með því að hún verði kjörin varaformaður á ný á sunnudag. FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn nú um helgina. Fund- urinn hefst á morgun, föstudaginn 23. október, kl. 10 og lýkur á sunnudag kl. 16 með ávarpi formanns og fund- arslitum. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur að jafnaði hafist síðdegis á fimmtudagi með setningarræðu for- manns og hátíðardagskrá, en nú hef- ur fundurinn verið styttur og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, flytur ræðu sína á morgun kl. 16.30, en frá kl. 10 í fyrramálið verða fundir málefnanefnda og drög að stjórnmálaályktun kynnt. Samkvæmt upplýsingum Þórðar Þórarinssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, er von á að 1.100 til 1.200 fulltrúar mæti á landsfund- inn, en liðlega 1.500 manns eiga rétt til fundarsetu. „Það var einkum verið að taka tillit til landsfundarfulltrúa af landsbyggð- inni, þegar ákveðið var að fundurinn hæfist ekki fyrr en að föstudags- morgni,“ sagði Þórður í samtali við Morgunblaðið. Ekki mikil eftirvænting Ef má marka samtöl við ákveðinn fjölda landsfundarfulltrúa ríkir ekki mikil eftirvænting eða spenna vegna landsfundarins og menn/konur virð- ast eiga erfitt með að gera sér grein fyrir því hvort einhver sérstök átaka- mál komi upp á fundinum og þá hver þau verði. „Mín tilfinning fyrir þessum lands- fundi er sú að hann verði ekki fundur mikilla átaka, sveiflna eða uppgjörs á neinn hátt. Það verða að venju ein- hverjar pólitískar skylmingar um orðalag o.þ.h., en það kæmi mér á óvart ef um stórátök yrði að ræða um einhver grundvallarstefnumál,“ segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég á von á því að þetta verði fremur rólegur fundur og ég sé ekki að einhver stór átakamál verði í brennidepli,“ segir landsfundar- fulltrúi. Undir þessi orð taka flestir viðmælendur. Annar telur að gera megi ráð fyrir átökum um Evrópustefnu flokksins, þar sem ákveðinn hópur fulltrúa muni vilja kveða sterkar að orði í ályktun um að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusam- bandsins, en aðrir segja að ESB- málin séu komin út af borðinu. Þetta verði bara hluti af hefðbundnum átökum á landsfundi. Enn annar segir að Sjálfstæðis- flokkurinn sé í sérstakri stöðu nú. fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík, Selfossi og Barðanum Skútuvogi Nú þegar veturinn er genginn í garð munu langar frostnætur reyna Tudor er hannaður til þess að þola það álag sem slíkar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Tudor - betra start! Betra start fyrir þig og þína
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.