Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
„Hann er annars vegar með mjög
sterka stöðu á sveitarstjórnarstiginu,
fyrir utan Reykjavík, en hins vegar
með sögulegt lágmark í fylgistölum á
landsvísu, samkvæmt skoðanakönn-
unum. Því er flokkurinn í ákveðinni
fylgiskrísu,“ segir hann.
Viðmælendur benda á að hér séu
miklar andstæður á ferð, því verkefni
Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn
gangi vel, þótt fylgi flokksins sam-
kvæmt skoðanakönnunum endur-
spegli ekki þá staðreynd. Erfitt sé að
trúa því að staðreyndir eins og halla-
laus fjárlög, aukinn kaupmáttur,
efnahagslegur stöðugleiki, sem geti
að vísu verið brothættur vegna óvissu
á vinnumarkaði, skattalækkanir og
afnám tolla og vörugjalda eigi ekki
eftir að skila aftur umtalsverðu fylgi
og sjálfstæðismenn „skili sér heim á
nýjan leik“, eins og einn orðaði það.
„Ég held það gildi hið sama um
Sjálfstæðisflokkinn og aðra rótgróna
flokka, að þeir eru svolítið leitandi,
þeir eru að reyna að finna fjölina sína
og átta sig á því hvernig þeir eiga að
spila úr þeim aðstæðum sem þeir eru
í einmitt núna,“ segir þingmaður
flokksins.
Veikur og litlaus þingflokkur
Hann tekur undir orð ýmissa við-
mælenda, sem hafa lýst í eyru blaða-
manns þeirri skoðun sinni að þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins sé
fremur veikur og litlaus og hið sama
eigi við um borgarstjórnarflokk Sjálf-
stæðisflokksins. „Nema þar eru veik-
leikarnir miklu meiri og litleysið al-
gjört. Það er sláandi hvað staða
flokksins hefur versnað í Reykjavík,“
segir þingmaðurinn. Hann bætir því
við að þótt hann segi þetta um sinn
eigin þingflokk, þá sé þetta ekki eitt-
hvað sem þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins ræði opinberlega.
Helst er bent á að einhver átök geti
orðið um stefnu flokksins í skatta- og
peningamálum. Mörgum þyki hvergi
nærri nóg hafa verið að gert í skatta-
lækkunum, einkum lækkun á tekju-
skatti einstaklinga. Þó er bent á að
ekki megi gleyma því að miðþrepið í
tekjuskatti einstaklinga verði afnum-
ið og neðra þrepið lækkað.
Telja stöðu formannsins sterka
Í samtölum við landsfundarfulltrúa
var það miklu fremur staða einstakra
þingmanna, þingflokksins, ráðherra
flokksins og borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins sem bar á góma,
ekki málefnin sjálf.
Flestir virðast sammála um að
staða Bjarna Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, sé sterk
og sögðu ýmsir viðmælendur að hann
hefði vaxið mikið í starfi og bentu á
þann árangur sem hann hefði náð í
stjórn efnahags- og fjármála. Við-
mælendur eiga von á því að Bjarni fái
góðan stuðning í formannskjöri.
„Ég held að málefnaleg staða
flokksins sé nokkuð sterk og ég tel að
grunngildi hans og stefna, frelsi ein-
staklingsins og aukin áhrif hans, eigi
sama erindi við landsmenn og hún
hefur átt í gegnum tíðina,“ sagði
þingmaður flokksins.
Hann viðurkennir að staða flokks-
ins samkvæmt skoðanakönnunum sé
slök, en telur að flokkurinn eigi eftir
að rétta úr kútnum og endurheimta
fylgi fjölda sjálfstæðismanna, ekki
síst vegna þess árangurs sem náðst
hafi á skömmum tíma.
Til dæmis hefðu fáir trúað því fyr-
irfram að á þessu kjörtímabili tækist
að afnema tolla og vörugjöld, þannig
að einungis yrðu áfram tollar á mat-
vælum sem væru í samkeppni við inn-
lenda landbúnaðarframleiðslu. Það
eitt væri góður árangur.
Segja stöðu Hönnu Birnu veika
Viðmælendum varð tíðrætt um
stöðu fráfarandi varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins, Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur. Flestir virðast þeirrar
skoðunar að hennar pólitíska lífi sé að
ljúka og staða hennar í flokknum og
þingflokknum sögð mjög veik. Því er
spáð að Hanna Birna noti næsta ár til
þess að gera það upp við sig hvort
hún hefur áhuga á að taka þátt í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu
alþingiskosningar.
Fullyrt er af ákveðnum viðmæl-
endum að Hanna Birna geri sér ljósa
grein fyrir eigin stöðu. Hún hafi
reynt að fá ráðherraembætti á nýjan
leik þegar hún kom úr fríi í vor, án ár-
angurs. Hún hafi jafnframt kannað sl.
vetur hjá Gunnari Braga Sveinssyni
utanríkisráðherra, hvort hún ætti
kost á góðri stöðu í öðru landi, án ár-
angurs. Formennskan í utanrík-
ismálanefnd nú í september hafi því
verið eins konar tímabundin dúsa
handa Hönnu Birnu, á meðan hún
tekur ákvarðanir um hver hennar
næstu skref verða.
Ekki hafi verið hægt að horfa
framhjá því að hún sé varaformaður
flokksins og fyrsti þingmaður Reyk-
víkurkjördæmis suður. Birgir Ár-
mannsson, 9. þingmaður Reykjavík-
urkjördæmis norður, sem var for-
maður utanríkismálanefndar og þótti
standa sig með ágætum, hafi orðið að
una því að formennskan færi til
Hönnu Birnu.
„Það kemur ekkert á óvart að sjálf-
stæðismenn velti póltískri framtíð
minni fyrir sér. Ég hef ítrekað deilt
því með mínu fólki í flokknum að
reynsla liðinna ára hafi vakið hjá mér
og mínum spurningar um hvort þetta
sé minn framtíðarstaður. Það breytir
þó engu um það að stjórnmálin hafa
alltaf verið mikil ástríða hjá mér og
mig langar enn fátt meira en að berj-
ast fyrir hugsjónum frelsis og tæki-
færa. Það geri ég nú á hverjum degi á
Alþingi en hef enga ákvörðun tekið
um það hvort ég muni gera það til
fimmtugs, sextugs eða jafnvel sjö-
tugs. Sú ákvörðun kemur síðar,“
sagði Hanna Birna þegar hún var
spurð hvort hún væri á útleið úr póli-
tík.
Annað hljóð er í strokknum þegar
kemur að umræðu um arftaka Hönnu
Birnu í innanríkisráðuneytinu, Ólöfu
Nordal. Mikill samhljómur er í máli
viðmælenda, sem telja hana hafa
staðið sig vel sem innanríkisráðherra.
Sömuleiðis virðast menn sannfærðir
um að hún fái góða kosningu sem
varaformaður.
Árangur Illuga vanmetinn
Viðmælendur eru flestir sammála
um að sú heiftarlega umræða sem átt
hefur stað að undanförnu um Illuga
Gunnarsson menntamálaráðherra
hafi skaðað hans pólitísku stöðu, en
um leið benda þeir á að umfjöllun
ákveðinna fjölmiðla um stöðu hans og
fjármál jaðri við einelti.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins
sagði af þessu tilefni: „Árangur Illuga
í menntamálum er mjög vanmetinn.
Hann hefur náð fram breytingum
sem menn hafa verið að berjast fyrir í
yfir tuttugu ár. Þar á ég við styttingu
framhaldsskólans, sem hefur mikla
þjóðhagslega þýðingu. Þjóðhagsleg
hagkvæmni þess að krakkarnir skuli
koma ári fyrr út á vinnumarkaðinn,
hún jafngildir líklega 13 til 14 millj-
arða auknum tekjum í landsfram-
leiðslu. Þessi árangur mætti vera
meira til umræðu, að ég tali nú ekki
um frábæra herferð til þess að auka
lestrar- og stærðfræðikunnáttu
grunnskólabarna.“
Fram hefur komið að Unnur Brá
Konráðsdóttir, fjórði þingmaður Suð-
urkjördæmis, hafi hug á að bjóða sig
fram til varaformanns. Skiptar skoð-
anir eru meðal viðmælenda um hvort
hún lætur verða af því. Fleiri eru
þeirrar skoðunar að hún hætti við,
þar sem stuðningurinn við Ólöfu virð-
ist vera afskaplega afgerandi. Aðrir
telja þó allt eins líklegt að hún láti
slag standa og bjóði sig fram. „Unnur
Brá er ólíkindatól og hún er þeirrar
náttúru, að henni hefur aldrei leiðst
athyglin,“ segir landsfundarfulltrúi.
Annar segir að þegar Unnur Brá
orðaði hugmynd um varaformanns-
framboð fyrst hafi almennt verið álit-
ið að þeir sem hafa tilheyrt svoköll-
uðum Deigluhópi, sem hún hefur
starfað náið með, myndu styðja hana,
en annað hafi komið á daginn. Lyk-
ilmenn úr Deigluhópnum, t.d. Borgar
Þór Einarsson, ætli ekki að styðja
hana. „Það kann að valda því að Unn-
ur Brá hætti við,“ segir þingmaður.
Unnur Brá vildi ekki svara því, þegar
blaðamaður náði í hana, hvort hún
ætlaði að bjóða sig fram til varafor-
manns.
Ekki landsfundur deilna og átaka
Búist við á milli 1.100 og 1.200 fulltrúum Ólöfu Nordal spáð góðu kjöri í varaformannsembættið
Margir telja að Hanna Birna Kristjánsdóttir sé á leið út úr pólitík, en Hanna Birna hafnar því
Morgunblaðið/Ómar
Landsfundur 2013 Á milli 1.100 og 1.200 fulltrúar sóttu landsfund Sjálfstæðisflokksins í febrúar 2013. Reiknað er
með svipuðum fjölda á fundinn sem hefst á morgun. Bjarni Benediktsson flytur formannsræðu sína kl. 16.30.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsfundur 2010 Ólöf Nordal var kjörin varaformaður flokksins 2010.
Flestir reikna með því að hún verði kjörin varaformaður á ný á sunnudag.
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verður haldinn nú um helgina. Fund-
urinn hefst á morgun, föstudaginn 23.
október, kl. 10 og lýkur á sunnudag
kl. 16 með ávarpi formanns og fund-
arslitum.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefur að jafnaði hafist síðdegis á
fimmtudagi með setningarræðu for-
manns og hátíðardagskrá, en nú hef-
ur fundurinn verið styttur og Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flytur ræðu sína á morgun
kl. 16.30, en frá kl. 10 í fyrramálið
verða fundir málefnanefnda og drög
að stjórnmálaályktun kynnt.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
Þórarinssonar, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, er von á að 1.100
til 1.200 fulltrúar mæti á landsfund-
inn, en liðlega 1.500 manns eiga rétt
til fundarsetu.
„Það var einkum verið að taka tillit
til landsfundarfulltrúa af landsbyggð-
inni, þegar ákveðið var að fundurinn
hæfist ekki fyrr en að föstudags-
morgni,“ sagði Þórður í samtali við
Morgunblaðið.
Ekki mikil eftirvænting
Ef má marka samtöl við ákveðinn
fjölda landsfundarfulltrúa ríkir ekki
mikil eftirvænting eða spenna vegna
landsfundarins og menn/konur virð-
ast eiga erfitt með að gera sér grein
fyrir því hvort einhver sérstök átaka-
mál komi upp á fundinum og þá hver
þau verði.
„Mín tilfinning fyrir þessum lands-
fundi er sú að hann verði ekki fundur
mikilla átaka, sveiflna eða uppgjörs á
neinn hátt. Það verða að venju ein-
hverjar pólitískar skylmingar um
orðalag o.þ.h., en það kæmi mér á
óvart ef um stórátök yrði að ræða um
einhver grundvallarstefnumál,“ segir
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Ég á von á því að þetta verði
fremur rólegur fundur og ég sé ekki
að einhver stór átakamál verði í
brennidepli,“ segir landsfundar-
fulltrúi. Undir þessi orð taka flestir
viðmælendur.
Annar telur að gera megi ráð fyrir
átökum um Evrópustefnu flokksins,
þar sem ákveðinn hópur fulltrúa
muni vilja kveða sterkar að orði í
ályktun um að hagsmunum Íslands
sé best borgið utan Evrópusam-
bandsins, en aðrir segja að ESB-
málin séu komin út af borðinu. Þetta
verði bara hluti af hefðbundnum
átökum á landsfundi.
Enn annar segir að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé í sérstakri stöðu nú.
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík,
Selfossi og Barðanum Skútuvogi
Nú þegar veturinn er genginn í garð munu langar frostnætur reyna
Tudor er
hannaður til þess að þola það álag sem slíkar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur. Tudor - betra start!
Betra start fyrir þig og þína