Morgunblaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Áætlað er að um 40% allra spóa í
heiminum komi til Íslands til að
verpa. Varpstofninn er talinn vera
um 250.000 pör og sé miðað við að
hvert par komi að meðaltali upp ein-
um unga á sumri þá fara héðan
750.000 spóar til vetursetu í Vestur-
Afríku.
„Ísland er almennt mikil vaðfugla-
paradís,“ segir Borgný Katrínar-
dóttir líffræðingur, sem starfar við
fuglarannsóknir hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands. Hún rannsakaði
ásamt fleirum áhrif eldgosa á spóa-
varp og viðkomu spóans. Ritrýnd
grein um rannsóknina birtist í júlí í
sumar. Eins birtist blogg um spóa-
rannsóknina á vef Breska fuglafræð-
ingafélagsins nú í september.
Eldgos olli uppnámi
Borgný hóf spóarannsókn sína ár-
ið 2009 á Suðurlandi. Vorið eftir
gaus Eyjafjallajökull og spjó ösku
og eimyrju yfir rannsóknarsvæðið
að hluta. Svo fylgdi Grímsvatnagosið
2011 í kjölfarið.
„Gosið í Eyjafjallajökli setti rann-
sóknina í uppnám, þar sem aðal-
svæðin mín voru staðsett mjög ná-
lægt eldfjallinu,“ sagði Borgný.
Raunin varð samt sú að áhugaverðar
niðurstöður fengust um áhrif eld-
gosaöskunnar á viðkomu spóans.
Borgný sagði að líklega hefði askan
valdið því að tímabundið hrun hefði
orðið í ýmsum skordýrastofnum sem
spóaungarnir reiddu sig á og þeir
drepist af þeim sökum.
Spóaungarnir verða sjálfir að
finna sér fæðu frá því þeir koma úr
eggjunum. Foreldrarnir vísa þeim ef
til vill á svæði þar sem eitthvað ætt
er að finna, gæta þeirra og hlýja
þeim á meðan þeir eru litlir. Borgný
sagði veiðieðli spóaunganna vera
mjög sterkt. „Ég var að mæla ný-
klakinn unga inni í bíl og setti hann
upp við bílrúðuna þar sem voru flug-
ur á vappi. Hann fór strax að pikka í
þær. Það var greinilega innbyggt í
hann að byrja strax að kroppa í það
sem hreyfist, enda fara ungarnir úr
hreiðrinu mjög fljótlega eftir klak og
þurfa þá að leita sér að fæðu,“ sagði
Borgný.
Sumurin 2010 og 2011, þegar gaus
í Eyjafjallajökli og sumarið eftir,
gekk spóunum betur að koma upp
ungum eftir því sem þeir urpu fjær
eldfjallinu. Borgný sagði að svo virt-
ist sem spóunum gengi verr við
varpið sumarið 2011 en 2010. Seinna
vorið var kalt og mörg paranna
reyndu þá ekki einu sinni að verpa.
Ástandið lagaðist hins vegar fljót-
lega eftir þessi tvö sumur. Nýleg
grein hefur líka sýnt fram á að mest
er af vaðfuglum á áhrifasvæðum eld-
fjallanna en næringarefni í öskunni
virka sem áburður og hafa áhrif upp
alla fæðukeðjuna. Langtímaáhrifin
eru því jákvæð þótt skammtíma-
áhrifin geti verið slæm.
Kindur og hross rændu eggjum
Rannsóknin leiddi í ljós að tals-
vert mikið afrán var á spóaeggjum.
Þar komu þekktir eggjaræningjar
við sögu, eins og kjóar og tófur. Það
vakti meiri undrun þegar grasbítar á
borð við sauðfé og hesta sáust éta
egg. Á tveimur aðalathugunarsvæð-
unum, sumurin 2009 og 2010, var 126
af 197 eggjum rænt. Notaðar voru
sjálfvirkar myndavélar til að fylgjast
með nokkrum hreiðrum og náðust
myndir af 13 afránsatburðum (þegar
einu eða fleiri eggjum var rænt).
Sökudólgarnir voru af ýmsum teg-
undum en í sjö tilfellum voru kindur
að verki og tvisvar sinnum hross.
Borgný bendir á að spóinn sé
langlífur. Hvert par þarf því ekki að
koma upp ungum á hverju ári til að
stofninn haldist stöðugur.
Spóaungarnir fara héðan að
hausti til Vestur-Afríku og koma
ekki aftur fyrr en tveggja ára í
fyrsta lagi. Þá eru fuglarnir orðnir
kynþroska og geta hafið varp. Elsti
spói sem vitað er um náðist 24 árum
eftir að hann hafði verið merktur. Sá
var enn verpandi og var því orðinn
að minnsta kosti 26 ára.
Losa sig við ónýta karla
Spóar halda sig yfirleitt við sama
maka. Borgný segir þó að hugsan-
lega séu meiri líkur á skilnaði ef
varp parsins gengur illa. „Ég fylgd-
ist með karlfugli sem aldrei gekk
neitt hjá og sá var alltaf kominn með
nýja kerlingu á hverju vori. Honum
virtist ekki haldast á þeim,“ sagði
Borgný.
Pörin, og þá sérstaklega karlfugl-
arnir, halda almennt mikla tryggð
við óðul sín og mæta á þau ár eftir
ár. Borgný sagði að yfirleitt væri
hægt að ganga að fuglunum vísum á
svipuðum slóðum svo aðeins skeik-
aði fáeinum tugum metra á staðsetn-
ingu hreiðranna ár frá ári.
Eldgosin trufluðu varp spóans
Um 40% allra spóa í heiminum koma til Íslands að verpa Aska úr Eyjafjallajökli lagðist yfir
varpsvæði spóa Skordýr sem spóaungarnir éta drápust Óvæntir eggja- og ungaræningjar
Morgunblaðið/Ómar
Spói Á vorin koma um 250.000 spóapör frá Afríku og koma að meðaltali upp einum unga hvert um sumarið.
Spóavarp er hvergi í heiminum
þéttara en hér á landi, eftir því
sem best er vitað, eða 29 til 45
pör á ferkílómetra þar sem það
er þéttast. En hvar er kjörlendi
spóans?
„Spóinn verpir í margskonar
búsvæðum en virðist sækja
mikið í hálfgrónar áreyrar. Þar
er þéttleikinn mestur,“ sagði
Borgný. „Þetta eru snögglend
og sendin svæði sem eru um-
fangsmest í námunda við jökul-
ár. En spóar virðast forðast há-
vaxinn gróður.“
Þegar spóinn spókar sig í V-
Afríku á vetrum lifir hann mikið
á krabbadýrum. Hér leggur
hann sér aðallega skordýr, ána-
maðka og krækiber til munns.
Hvergi þétt-
ara spóavarp
FORÐAST HÁAN GRÓÐUR
Ljósmynd/Borgný Katrínardóttir
Ræningi á ferð Búsmali, kindur og hestar, rændu eggjum og ungum spóa
eins og sást af myndum úr sjálfvirkum eftirlitsmyndavélum við hreiðrin.
Ljósmynd/Borgný Katrínardóttir
Spóahreiður Spóinn velur gjarnan
að verpa á hálfgrónum áreyrum.
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Skákmótið Æskan og ellin, þar
sem kynslóðirnar mætast, verður
haldið í 12. sinn laugardaginn 24.
október í Skákhöllinni í Faxafeni.
Taflfélag Reykjavíkur og Ridd-
arinn, skákklúbbur eldri borgara
á höfuðborgarsvæðinu, með
stuðningi Olís, standa saman að
mótshaldinu þriðja sinni.
Þessi mót hafa jafnan verið
fjölsótt jafnt af yngri sem eldri
skákmönnum og vel heppnuð. Yf-
ir 80 ára aldursmunur hefur iðu-
lega verið milli yngsta og elsta
keppandans. Þátttaka í mótinu er
ókeypis og miðast við börn og
ungmenni á grunnskólaaldri, 15
ára og yngri, og eldri skákmenn,
60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13
og tefldar verða níu umferðir
með sjö mínútna umhugsunar-
tíma.
Skráning til þátttöku fer fram
á www.skak.is fram að móti. Há-
marksfjöldi keppenda miðast við
100 og því mikilvægt að skrá sig
sem fyrst og mæta tímanlega á
mótsstað, segir í tilkynningu.
Æskan og ellin mæt-
ast við skákborðið