Morgunblaðið - 22.10.2015, Síða 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Grunnurinn að góð-
um rekstri er að fyr-
irtæki hafi sterkan
rekstrargrunn. Aðal-
einkenni fyrirtækja
með sterkan rekstr-
argrunn er að bókhald
þeirra er fært í sam-
ræmi við gildandi
reglur á hverjum tíma.
Ákveðinn agi ríkir
meðal stjórnenda
þessara fyrirtækja hvað bókhald
varðar og freistast þeir ekki til að
færa einkakostnað til gjalda sem
rekstrarkostnað fyrirtækis.
Í rekstri fyrirtækja reynir oft á
skattareglur um frádráttarbæran
rekstrarkostnað. Í 31. gr. laga nr.
90/2003, um tekjuskatt o.fl., er að
finna mikilvæga heimild fyrir aðila
í atvinnurekstri sem heimilar frá-
drátt rekstrarkostnaðar frá
tekjum. Nánari útfærslu á rekstr-
arkostnaði er að finna í reglugerð
nr. 483/1994, um frádrátt frá
tekjum af atvinnurekstri eða sjálf-
stæðri starfsemi.
Heimildin er rúm og nær til alls
þess sem talið er falla undir
rekstrarkostnað fyrirtækis. Með
rekstrarkostnaði er átt við gjöld
sem eiga að ganga til að afla við-
komandi tekna, tryggja þær og
halda þeim við og eru ekki sér-
staklega undanskilin í lögum.
Einkaútgjöld eigenda fyrirtækja
falla ekki undir ofangreinda skil-
greiningu og eru ekki frádrátt-
arbær frá tekjum rekstraraðila við
ákvörðun skattstofns. Til að kostn-
aður geti talist frádráttarbær í
skilningi skattalaga verða að vera
tengsl milli útgjalda og tekna og
geta yfirvöld krafist þess að
rekstraraðili sýni fram á slík
tengsl. Eins þarf frádráttur frá
tekjum að byggjast á gögnum sem
tilheyra viðkomandi rekstraraðila.
Skilin á milli raunverulegs
rekstrarkostnaðar og einkakostn-
aðar eru þó oft óskýr og rekstrar-
aðilum hættir til að færa einkaút-
gjöld frá tekjum í rekstri sínum
hvort sem það er vegna vankunn-
áttu í bókhaldi eða beins ásetnings
um að lækka greiðslu tekjuskatts.
Þegar einkakostnaður er færður
sem rekstrarkostnaður hjá virð-
isaukaskattsskyldum rekstraraðila
er kostnaðurinn oft einnig inn-
skattaður. Rekstraraðili fær þann-
ig endurgreiddan virðisaukaskatt
vegna gjaldanna jafnvel þótt slíkt
uppfylli ekki kröfur 1. gr. reglu-
gerðar nr. 192/1993, um innskatt,
þ.e. að umræddar vörur eða þjón-
usta sé nýtt í viðkomandi rekstri. Í
slíkum tilvikum tap-
ast miklir skattpen-
ingar er hefur áhrif á
samfélagið í heild.
Eins skapast ójafn-
ræði milli aðila utan
rekstrar og í rekstri
og þá á ég við tilvik
þar sem þessir aðilar
eru báðir að kaupa
vöru/þjónustu fyrir
sig persónulega.
Ennfremur virðist
þjóðfélagið beinlínis
ýta undir skattsvik af
þessu tagi, t.d. þegar aðilum er að
fyrra bragði boðið að setja kenni-
tölu á reikning við kaup. Margir
freistast þá til að gefa upp kenni-
tölu fyrirtækis síns. Fyrirtækjum
er að sjálfsögðu heimilt að greiða
fyrir ýmsan kostnað og færa hann
til frádráttar tekjum í reiknings-
skilum sínum en til að umræddur
kostnaður geti verið grundvöllur
lægri tekjuskatts og hugsanlega
endurgreiðslu innskatts þarf hann
að uppfylla áður nefnd skilyrði
skattalaga.
Virkt skatteftirlit opinberra að-
ila er með gjaldfærðum rekstr-
arkostnaði eins og vera ber. Þeir
sem hafa byggt upp sterkan
rekstrargrunn með langtímasjón-
armið að leiðarljósi ættu ekki að
óttast slíkt eftirlit enda líklegt að
þeir hafi haft metnað til að færa
bókhald sitt í samræmi við lög og
reglur. Þeir sem hafa stytt sér leið
í rekstri sínum ættu að huga að
bókhaldi sínu sem fyrst. Þeirri
hugsun „hvaða kostnað kemst ég
upp með að færa til frádráttar“
þarf að breyta í „hvaða kostnaður
er sannanlega tilkominn vegna öfl-
unar tekna í rekstrinum og heimilt
að færa til frádráttar“. Það er svo
miklu skemmtilegra og hagkvæm-
ara að hafa þessi mál á hreinu
enda óskemmtilegt að fá bakreikn-
ing frá skattyfirvöldum sem hrein-
lega getur kippt fótunum undan
hvaða rekstri sem er. Hvet ég
rekstraraðila til að kynna sér vel
reglur um frádráttarbæran rekstr-
arkostnað og færa aðeins til frá-
dráttar þann kostnað vegna vöru
og þjónustu sem þeir kaupa sann-
anlega fyrir rekstur sinn.
Gjaldfærir þú
einkakostnað í
rekstrinum þínum?
Eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur
» Grunnurinn að góð-
um rekstri er að
fyrirtæki hafi sterkan
rekstrargrunn.
Ingibjörg Björnsdóttir
Höfundur er lögmaður, viðurkenndur
bókari og rekstrarráðgjafi hjá
ACTIO ráðgjöf.
„En sú á einmitt að
vera undirstöðu-
hugsun í afskiftum
vorum og allri afstöðu
til barna, að vér vit-
um ekkert um þau
nema eitt: að þau eru
í heiminn borin –
hvernig kemur þjóð-
félaginu ekki við.
Hvert barn er alfull-
komið gagnvart rétt-
lætinu, hvort heldur
storkurinn kom með það í nefinu
ellegar læknirinn í tösku; eða það
er eingetið eins og Jesús Kristur.“
Nóbelsskáldið gat þess í Al-
þýðubókinni að hvert einasta barn
er fætt fullkomið gagnvart rétt-
lætinu. Þetta fer greinilega úr
skorðum við úthlutun fjármagns
vegna skólabarna frá ríki til sveit-
arfélaga. Skuldsetning kallar á
ójöfnuð og sýnir afleiðingar slóða-
skapar sveitarfélaga (sjá töflu).
Það fer t.a.m. alfarið eftir því í
hvaða sveitarfélagi við búum á
höfuðborgarsvæðinu hvaða þjón-
ustu barn fær í grunnskólum þrátt
fyrir að ríkið skili hinu sama fyrir
hvert barnsnef.
Skuldsetning sveitarfélaga
og sameining
Um árabil hafa sveitarfélög ver-
ið að sameinast. Garðabær tók yf-
ir Álftanes sem gat ekki staðið
lengur undir sér en þar komu til
ástæður sem óþarfi er að tíunda
enda flestum kunnugar. Hvaða
áhættu ganga sveitarstjórnarmenn
undir og hvaða ábyrgð sæta þeir
sem setja sveitarfélög sín í
greiðsluþrot? Er hún ekki aðeins
pólitísk?
Með tilkomu R-listans á síðustu
öld var farið að bjóða upp lóðir á
hinum „frjálsa markaði“. Það vita
allir sem vilja vita að hér var um
dulbúna skatta að ræða. Það vita
allir hvernig þetta endaði. Verð-
bólga rauk upp, fjármagn var sog-
ið frá almenningi langt inn í fram-
tíðina.
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu byggðu síðar á þessu
vænta tekjuflæði sínu og skuld-
settu sig mörg upp í rjáfur. Sam-
hliða brutu sveitarfélögin eigin
loforð sín í millum
þess efnis að hvorki
ætti að byggja né
skipuleggja, þ.e. fyrir
hrun, nema ákveðið
marga fermetra svo
slíkt myndi ekki valda
óróa og ofþenslu.
Sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu
gengu sjálf gegn eigin
loforðum í þessu efni.
Flest þeirra veltu
þessu yfir á almenn-
ing eftir hrun í formi
hærri gjalda og
skatta.
Þetta finna allir á eigin skinni.
Nú vilja hinir sömu „breiðari
skattstofn“ rétt eins og bankar
sem hafa yfir 40 blaðsíðna
verðskrá til handa þeim sem tæp-
ast geta sótt þessa þjónustu ann-
að. Ber hér ekki allt að sama
brunni?
Hvað gerist í bæ skáldsins?
Svo er komið fyrir sveit Nób-
elsskáldsins að búið er að loka
bókasafni í Varmárskóla, bóka-
safni skáldsins. Eldri börn skólans
geta ekki farið þar inn á skólatíma
til að stunda lestur bóka. Það er
ekki lengur hægt að láta sig
hverfa inní heim bókmenntanna
og fá þar frið eða stuðning fag-
fólks á sviði bókmennta og bóka-
safna.
Aðeins er hér um eitt atvik af
mörgum að ræða þar sem meiri-
hlutinn í bænum, með bæj-
arskáldið innanbúðar, fer illa að
ráðum sínum og skerðir þjónustu
við börn og foreldra þeirra. Þetta
er ekki stjórnendum skóla um að
kenna. Krafan um niðurskurð
kemur að ofan.
Samhliða eru frjáls félagasam-
tök að berjast gegn ólæsi barna
og hið opinbera er með átak á
mörgum sviðum til að tryggja
aukinn lestur og lesskilning. Er
þetta forsvaranleg forgangsröðun
hjá meirihlutanum í Mosfellsbæ?
Borgar- og bæjarráð
bregðast við
Um þessar mundir, sbr. frétt í
Stöð 2 þann 11. október sl., eru
borgar- og bæjarráð sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu að sam-
þykkja hvert á fætur öðru álykt-
anir þar sem skorað er á ríkis-
stjórnina að „beita sér fyrir
nauðsynlegum breytingum á
tekjustofnum sveitarfélaga“.
Hér vekur sérstaka athygli að í
forsvari fyrir þessu ákalli til rík-
isins eru fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Við erum að óska eftir því að
tekjustofnar sveitarfélaganna
verði fjölþættari og breiðari. Það
er ástæða fyrir því. Nú eru ný-
gerðir kjarasamningar kennara og
fleiri aðila og þetta kostar gríð-
arlega mikla fjármuni,“ sagði
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, í viðtali á dögunum.
Er þetta svona einfalt? Hækk-
aði ekki útsvarið umfram lækkun
tekjuskatts þegar verkefni grunn-
skóla var fært frá ríki til sveitar?
Fylgdu ekki fjármunir frá ríkinu
vegna einsetningar skóla? Hvað
með dulbúna ríkisvæðingu við
flutning verkefna frá ríki til sveit-
arfélaga? Er það vinnumat kenn-
ara sem er að setja sveitarfélög á
hliðina? Nei, vinnumat mun aðeins
segja stjórnum sveitarfélaga hvað
þær skulda börnum og foreldrum
þeirra.
Sumir sjálfstæðismenn vilja
leita í vasa skattgreiðenda
Viljum við að sveitarfélögin geti
skattlagt okkur enn frekar?
Ríkja ekki afar undarlegar
áherslur í Sjálfstæðisflokknum um
þessar mundir? Er þetta e.k.
„sósíalismi“ í Sjálfstæðisflokkn-
um? Hvað með sparnað eða sam-
einingu í stað þess að heimta sí-
fellt meira fjármagn frá ríkinu án
þess að skila því í réttar hendur?
Sveitarfélög virðast nú í vörn eins
og ofvaxin ólesin börn.
Sýnir reynslan ekki að sveit-
arstjórnum, sem kjörnar eru til
fjögurra ára án þess að rjúfa megi
það tímabil og boða til kosninga,
er tæpast treystandi til að fara
með skattstofn og hvað þá
breiðari skattstofn.? Er ekki kjör-
ið að sameina og spara?
Menn eiga ekki að taka bækur
frá börnunum eða brauðpening til
kennslu. Það er annaðhvort tær
mannvonska eða einskær fáviska.
Sósíalisminn
í Sjálfstæðisflokknum
Eftir Svein Óskar
Sigurðsson »Nóbelsskáldið gat
þess í Alþýðubókinni
að hvert einasta barn er
fætt fullkomið gagnvart
réttlætinu.
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Höfundur er fv. formaður Sjálfstæð-
isfélags Mosfellinga, situr í skólaráði
Varmárskóla og stjórn foreldrafélags
Varmárskóla. Er talsmaður FGMOS,
svæðisráðs grunnskólaforeldra í Mos-
fellsbæ.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
BMW 520D XDRIVE F10
nýskr. 04/2014, ekinn 28 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Sportsæti, sportstýri, sóllúga, gardínur ofl.
Verð 9.900.000 kr. Tilboðsverð 8.990.000 kr. Raðnr.254156Mjög vel útbúinn,stórglæsilegur bíll!
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/