Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 78
78 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú ætti fjárhagurinn að leyfa fjár-
festingu fyrir framtíðina. Við þurfum öll að
taka okkur tíma í að ganga frá skriffinnsku
svona endrum og sinnum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hafa verið fengin völd yfir störfum
annarra. Samræður við maka og nána vinu
ganga þar af leiðandi talsvert stirðlega. Ekki
fara ófögrum orðum um náungann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu það ekki eftir þér að grípa til
aðgerða bara til þess að hrista upp í mann-
skapnum. Komdu þér út slíkri klípu með lip-
urð og festu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hindranir gætu komið upp vegna
ferðaáætlana, útgáfutækifæra eða einhvers
tengdu menntun. Með þínum náttúrlegu
hæfileikum fyrir samræðum, geturðu fengið
fólk á þitt band.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Notið tækifærið til að rétta vinum ykkar
hjálparhönd sem þurfa á henni að halda nú
fyrir jólin. Gefðu þeim tíma til þess að sjá
það sigra í framkvæmd.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Brynjaðu þig fyrir andstöðu annarra
og haltu þig við fyrri áætlanir. Alltumlykjandi
ást einhvers er kannski dálítið yfirþyrmandi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sýndu varfærni á öllum sviðum ekki síst
í peningamálunum því það tekur oft skamma
stund að gera afdrifarík mistök á því sviði.
En mundu að aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu auga með bankareikn-
ingnum í dag. Hin mega bíða og þú skalt ekki
eyða tíma í þau á meðan hin eru óafgreidd.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að vera með opin huga
og sýna samstarfsvilja, þín fyrstu viðbrögð
eru að streitast við. Gleymdu samt hvorki
sjálfum þér né þeim sem næst þér standa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft ekki að sitja með hendur
í skauti og bíða þess að komi betri tíð með
blóm í haga. Kannski áttu þér leynilegan vel-
vildarmann, eða ert bara farinn að skilja eitt-
hvað í fjármálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nei þú ert ekki skrýtin/n. Gakktu
hiklaust til verks og láttu utanaðkomandi
hluti ekki trufla þig. Alveg eins og þú tengir
ekki við þeirra sýn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert með ýmsar vangaveltur í sam-
bandi við ákveðna samstarfsmenn þína. Einn
góðan veðurdag stendur þú uppi sem sig-
urvegarinn.
Menn hafa lengi dundað sér við aðleita uppi höfund Njálu og eru
margar tilgátur skemmtilegar. Mig
rekur minni til að faðir minn hafi
sagt mér að á miðilsfundi á Héraði
fyrir hálfri öld eða svo hafi skrifari
Páls biskups Jónssonar í Skálholti
(1155-1211) upplýst að Páll biskup
væri höfundur Njálu. Þar með virtist
málið upplýst – en mér sýnist Anton
Helgi Jónsson vera á annarri skoðun:
Landsins börn með hýrri há
um höfund Njálu þrefa.
Skyld’ann lifa skrattinn sá
og skyld’ann heita Eva?
Og nú varð mér hugsað til Hann-
esar Péturssonar. Í bók hans Rím-
blöð heitir eitt ljóðið „Höfundur
Njálu“ með undirtitli: „Brot úr nið-
urstöðu rannsóknar“:
…Staðreyndir ýmsar stangast á
stórum meir en vér héldum.
Ekki t.d. var Ingjaldur þá
orðinn bóndi á Keldum.
Áður hef ég áherzlu lagt
á örlög Hámundarsona.
Ég hygg því rétt, eins og hér var sagt
að höfundur Njálu sé kona.
Í Blöndu er rifjuð upp vísa úr
Njálu-rímum, „sem nú eru fyrir
laungu liðnar undir lok, en hafa ver-
ið ortar varla síðar en á 16. öld“:
Þegnar riðu á Þríhyrningsháls,
þaktir brynju og skjöldum:
allir komu þar óvinir Njáls,
nema Ingjaldur frá Kjöldum.
Matthías Johannessen skrifaði
skemmtilega bók um „Njálu í ís-
lenzkum skáldskap“. Þar er þessi
visa eftir Árna Böðvarsson á Ökrum
(1713-1776) um Hallgerði langbrók:
Enginn hafi það eftir mér,
allir heldur lofi víf.
Máske hún hafi séð að sér
og síðan hlotið eilíft líf.
Ólafur Stefánsson er á sólarströnd
og yrkir um Carmen og eilífðina:
Til eilífðar óska að vera,
á eyjunni La Comera,
því Carmen þar býr,
kurteis og hýr.
Við sólina sá hana bera.
Auðvitað gat Davíð Hjálmar Har-
aldsson ekki stillt sig:
Þónokkuð skýrt er þetta ljóð:
Þarna var tvennt í sólarglóð.
Ólafur kúrði, Carmen stóð,
kíkt’ann upp undir pilsklætt fljóð.
Gáta um Seljalandsfoss:
Að kom ég þar elfan hörð
á var hlaupum fljótum;
undir vatni, ofan á jörð
arka ég þurrum fótum.
Gengt er bak við fossinn þurrum
fótum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Höfundur Njálu og Carmen
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÆ, JÓNSI, ERTU ENN AÐ HORFA Á
50-TOMMU SJÓNVARPIÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann breytir
um stefnu í áttina að
þér.
ÉG ER PÍNU
SYFJAÐUR
ÞÚ REYNIR EKKI
EINU SINNI, JÓN
ÉG ER SOFANDI MEIRA
AÐ SEGJA ÞEGAR ÉG VAKI!
PÍNU
SYFJAÐUR?
PÍNU
SYFJAÐUR?!
ÉG HATA
AÐ FARA
HEIM!
HELGA ER Í
ÓÐAÖNN AÐ SINNA
HVENÆR
BYRJAÐI
HÚN?
HÚN HÆTTI
ALDREI!
„VORHREIN-
GERNING-
UNUM“
LÖGREGLAN HEFUR VERIÐ SÖKUÐ
UM AÐ BEITA OF
MIKLU AFLI
EN Á HINN BÓGINN…
EKKI
SANNGJARNT!
… VAR MÓTMÆLANDINN Í KANÍNU-
BÚNINGI – ÞANNIG AÐ KANNSKI LEIT
ÞAÐ BARA ÚT FYRIR AÐ VERA OF MIKIÐ
Allt fram streymir, eins og skáldiðkvað, ár og dagar líða. Þessi
merkilega staðreynd virðist ansi oft
vefjast fyrir kvikmyndagerðar-
mönnum, sérstaklega þeim sem búa
til myndir upp úr vísindaskáldskap,
eða sem gerast í framtíðinni. Oftar
en ekki eru myndirnar tímasettar
ca. „kortér inn í framtíðina,“ og fyrr
en varir er sá tími runninn upp, að
kvikmyndin um framtíðina er orðin
að „heimildarmynd“ um fortíðina.
x x x
Í gær var til dæmis merkilegur dag-ur, 21. október 2015, en söguþráð-
urinn í Back to the Future-
myndunum hverfist að nokkru leyti
um þennan dag. Frá og með næstu
viku, þegar atburðum myndarinnar
lýkur, verður hún ekki lengur að
„framtíðartrylli“, þar sem framtíðin
í myndunum verður orðin að fortíð.
Sem ævintýri hafa myndirnar elst
ágætlega, en það dregur að sjálf-
sögðu ögn úr boðskap myndarinnar
um tímaflakkið, að hin fjarlæga
framtíð var ekki fjarlægari en þetta.
x x x
Í tilefni af deginum mátti síðan lesaurmul greina á netinu um það sem
myndirnar hefðu spáð rétt fyrir um,
og síðan hitt, þar sem myndirnar
voru víðsfjarri. Myndsímtöl, sem
virðast fastur liður í flestöllum fram-
tíðarmyndum, eru til dæmis ekkert
sérstaklega algeng, jafnvel þó að
Skype og Facetime hafi aðeins opn-
að fyrir þann möguleika. Þá sakna
líklega flestir aðdáendur myndanna
svifhjólabrettisins sem Marty
McFly, aðalhetja myndanna, svífur
um á í Back to the Future II. Eitt-
hvað hefur þó heyrst um tilraunir
fólks til þess að láta slíkt verða að
veruleika.
x x x
Hitt er síðan annað mál, að Back tothe Future er ekki fyrsta eða
síðasta myndin sem hefur eða mun
eldast framyfir þann sögutíma sem
kvikmyndagerðarfólkið setti á hann.
Escape from New York og Term-
inator 2 spáðu t.d. báðar fyrir um að
1997 yrði hræðilegt ár. Þá þarf ým-
islegt að gerast á næstu fjórum ár-
um til þess að Blade Runner geti
orðið að veruleika. Víkverji bíður all-
tént spenntur. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara
himins og jarðar. (Sálm. 121:2)
SLIK -SLÉTTUJÁRN
SLIK -KEILUJÁRN
slik -hárblásari
SLIK -KRULLUJÁRN
lúxushártækjalína
fyrirþásemviljaaðeinsþaðbesta
Fæst í öllum helstu
raftækjaverslunum á Íslandi