Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
Dagar koma“ er heiti róm-aðs upphafsljóðsins ífyrstu ljóðabók GyrðisElíassonar, Svarthvít
axlabönd, sem GM forlag gaf út árið
1983 þegar skáldið var aðeins 22 ára
gamalt. Þar sér ljóðmælandinn dag-
ana koma í birtingu þungstíga yfir
hæðina „og bera / við kaldsólaðan
himin // í þögulli ógn“.
Í þessari frumraun gaf að líta
furðu þroskuð ljóð, frumleg og
fersk, ljóð sem hrifu marga og þar á
meðal þennan rýni sem tókst á við
„Dagar koma“ í ljóðgreiningu á vor-
prófi þetta sama ár. Og ég var afar
lánsamur að fá
að kynnast
verkum Gyrðis
á mótunartíma
unglingsáranna
og að hafa feng-
ið að vera sam-
stiga þessu
merka og mik-
ilvæga skáldi og
rithöfundi allar
götur síðan; hreint makalaus og afar
persónuleg verk hans hafa á ein-
hvern furðulegan hátt orðið hluti af
minni sýn á umhverfið og líklega um
leið mótað alla mína upplifun af
skáldskap. Og þar með af heim-
inum.
Dagar hafa ekki bara komið, þeir
hafa líka liðið, árin eru orðin 32 og
ljóðabækur Gyrðis orðnar 14, auk
fjögurra safna ljóðaþýðinga sem
hafa orðið mikilvægur hluti höfund-
arverksins – allt fléttast það saman
hjá Gyrði, ljóð og prósaverk – frum-
samin sem þýdd – eiga í látlausri og
áhugaverðri samræðu.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
útgefandi Gyrðis hjá forlaginu
Dimmu, og skáldið og þýðandinn
Magnús Sigurðsson hafa tekið úrval
úr öllum ljóðabókum Gyrðis í þetta
fyllilega tímabæra ljóðaúrval, en
margar bókanna eru fyrir löngu ófá-
anlegar. Hvaða ljóð þeir hafa valið
úr bókunum er áhugavert, þeir
draga fram meginlínur og þemu í
hverri bók fyrir sig, en tekst jafn-
framt að sýna hvernig ákveðnir
straumar flæða gegnum agað og
persónulegt heildarverkið. Sumum
finnst að ljóðheimur skáldsins taki
ekki miklum breytingum frá einni
bók til annarrar, afstaða sem þessi
rýnir hefur löngum furðað sig á, og
hér má glögglega sjá hvernig
heimssýnin hefur breyst og mótast,
ungæðisleg á köflum í fyrstu, þó
ljóðin séu furðu þroskuð, þá á
stundum æði myrk og ekki er hún
björt sýn skáldsins á umgengni
manna um náttúruna, og fram-
koman við dýrin, sem birtist í síð-
ustu ljóðabókinni, Hér vex enginn
sítrónuviður (2012). Þetta er ljóðið
„Hreinsun“:
Einhverntíma kemur
að því að plánetan fær nóg,
tekur á sig snöggan rykk
á ofurhröðum snúningi sínum
og þeytir öllum þessum 7 milljörðum
ásamt því sem tilheyrir út í myrkan
geiminn, svona rétt einsog þegar
dýr hristir af sér óværu. Svo
byrjar hún í rólegheitum
upp á nýtt að safna
lífi
(143)
Ritstjórarnir velja sex til átta ljóð
úr flestum bókanna, þó ekki nema
þrjú úr þriðju bókinni, Einskonar
höfuðlausn (1985), þar sem skáldið
var á kafi í konkretljóðagerð, en
hins vegar leggja þeir mesta
áherslu á ljóð úr þremur af fjórum
síðustu ljóðabókum, birta fjórtán
eða fimmtán úr Hugarfjallið (1999),
Nokkur almenn orð um kulnun sól-
ar (2009) og fyrrnefndri Hér vex
enginn sítrónuviður. Valið er svo
áhugavert og laust við tilviljanir að
erfitt er að benda á einhverja galla á
því fyrir utan að rýnir hefði kosið að
sjá fleiri ljóð úr Bakvið maríuglerið
(1985), sannkölluðu lykilverki á fyrri
hluta ferils skáldsins. Á móti kemur
að ánægjulegt er að ljóðabálkurinn
Blindfugl / Svartflug (1986) er birt-
ur í heild sinni, allar 404 línurnar,
sem er vel enda eitt mikilvægasta
og merkasta verk íslenskra bók-
mennta á níunda áratugnum. Þessi
martraðarkennda lýsing á hugar-
heimum, draumsýnum og andvök-
um sem hefst með þessum orðum:
„Rósemi get ég ekki miðlað, / af
henni á ég ekkert, flugþol / órólegra
hugmynda virðist án / takmarka,
þær hefja sig á loft / í hvelfingunni
og sveima nótt / eftir nótt í húð-
vængjulíki milli / súlna …“ (32). Og
„Svefnleysið smíðar huganum
vængi / eða vefur honum töfrateppi,
hann / líður yfir spanskgrænt ólg-
andi / haf að sorfinni strönd …“ á
þessu makalausa og óhugnanlega
ferðalagi áður en, undir lokin, er
vaknað „með andfælum við hryglu-
/ kennt óp klukkunnar“ (48).
Þetta ljóðaúrval hefði mögulega
nýst nýjum lesendum verka Gyrðis
enn betur hefðu ritstjórar skrifar
for- eða eftirmála, greint heild-
arverkið og rétt lesendum lykla að
ljóðheimunum. Fjarvera slíks texta
dregur þó ekki úr mikilvægi eða
gæðum ljóðanna.
Í einni sagna Gyrðis lætur per-
sóna orðið magnað fara í taugarnar
á sér en ég kýs að nota það engu að
síður; í þessu látlausa kveri birtist
lesendum magnaður ljóðheimur, úr-
val af einhverjum bestu og mik-
ilvægustu bókmenntum sem skap-
aðar hafa verið á Íslandi á síðustu
þrjátíu árum, af einu af höf-
uðskáldum þjóðarinnar í dag. Það
er ekkert öðruvísi. Lesið þessi ljóð.
Morgunblaðið/Einar Falur
Meistaraverk „… í þessu látlausa kveri birtist lesendum magnaður ljóð-
heimur, úrval af einhverjum bestu og mikilvægustu bókmenntum sem skap-
aðar hafa verið á Íslandi á síðustu þrjátíu árum, af einu af höfuðskáldum
þjóðarinnar í dag,“ skrifar rýnir um Ljóðaúrval Gyrðis Elíassonar.
Flugþol órólegra hug-
mynda virðist án takmarka
Ljóð
Ljóðaúrval 1983-2012 bbbbb
Eftir Gyrði Elíasson.
Dimma, 2015. Kilja. 155 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran
og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari
flytja íslensk sönglög, ljóð og léttar
aríur í hádeginu í Fríkirkjunni í
dag. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
verða um 30 mín. að lengd. Að-
gangseyrir er 1.500 kr. og er ekki
tekið við greiðslukortum.
Ingibjörg og Hrönn
í Fríkirkjunni
Ingibjörg Aldís
Ólafsdóttir
Hrönn
Þráinsdóttir
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn
Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn
Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn
Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn
Sun 25/10 kl. 19:30 22.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn
Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 18.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 24/10 kl. 19:30 Frums. Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn
Lau 24/10 kl. 22:30 2.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn
Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 24/10 kl. 13:30 Lau 24/10 kl. 15:00
Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 25/10 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
DAVID FARR
HARÐINDIN
Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 23/10 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00
Fös 6/11 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00
Fim 12/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 20:00 aukas. Sun 1/11 kl. 20:00 Sun 8/11 kl. 20:30
Allra síðustu sýningar!
At (Nýja sviðið)
Fim 22/10 kl. 20:00 14.k Fös 23/10 kl. 20:00 15.k
Allra síðustu sýningar!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k
Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 8/11 kl. 13:00 9.k
Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 15/11 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k.
Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Lau 28/11 kl. 20:00
Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fös 4/12 kl. 20:00
Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 12/12 kl. 20:00
Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Mið 25/11 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Sun 1/11 kl. 20:00 9.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k
Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Mið 18/11 kl. 20:00
Mið 28/10 kl. 20:00 7.k. Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Fim 19/11 kl. 20:00
Fim 29/10 kl. 20:00 8.k. Sun 8/11 kl. 20:00 12.k
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k
Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Fim 19/11 kl. 20:00
Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas.
Allra síðustu sýningar!
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00
Sun 15/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
.. — —
Nazanin (Salur)
Mið 18/11 kl. 20:30
Lokaæfing (Salur)
Lau 24/10 kl. 20:30 Sun 8/11 kl. 19:00
Lau 31/10 kl. 20:30 Fös 13/11 kl. 20:30
Þú kemst þinn veg (Salur)
Sun 25/10 kl. 20:30
Lífið (Salur)
Sun 1/11 kl. 13:00 Sun 15/11 kl. 13:00 Lau 21/11 kl. 13:00
Petra (Salur)
Fös 30/10 kl. 19:00
Ævintýrið um Augastein (Salur)
Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
This conversation is missing a point (Salur)
Mið 28/10 kl. 20:30 Mið 11/11 kl. 20:30 Þri 17/11 kl. 20:30
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/