Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 92
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. „Mestu lygar sem ég hef heyrt“
2. Kennsl borin á lík mæðgna
3. 18 stiga frost og snjór á Akureyri
4. 25 þúsund króna launahækkun
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Steinar Bragi er sagður vera rithöf-
undurinn á bak við dulnefnið Eva
Magnúsdóttir, sem er skrifuð fyrir
skáldsögunni Lausninni. Þetta kom
fram á Smartlandi Mörtu Maríu á
mbl.is í gærkvöldi. Forlagið gaf bók-
ina út á dögunum en hún komst í há-
mæli þegar blaðakona á Fréttatím-
anum var blekkt þegar hún tók viðtal
við meinta Evu Magnúsdóttur. »82
Steinar Bragi sagður
Eva Magnúsdóttir
Samúel Jón
Samúelsson Big
Band heldur tón-
leika í Gamla bíói í
kvöld kl. 21.
Hljómsveitin leik-
ur frumsamda
fönktónlist sem
er undir áhrifum
frá nígerísku afró-
bíti, eþíópískum djassi, brasilískum
sambatöktum, bandarísku fönki og
stórsveitardjassi í bland við íslenska
eyjarskeggjaþrjósku.
SJSBB heldur tón-
leika í Gamla bíói
Vídeóverk eftir 20 listamenn verða
sýnd í kvöld frá kl. 21 á Bólfestusýn-
ingu Ekkisens á Bergstaðastræti 25.
Verkin verða sýnd hvert á eftir öðru
og nefnist viðburðurinn Vídjóból og
er aðgangur að honum ókeypis. Ekki-
sens Bólfesta er önnur hústökusýn-
ingin sem Ekkisens listrými stendur
fyrir.
Vídeóverkakvöld á
sýningu Ekkisens
Á föstudag Sunnan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél en þurrt á
Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Gengur í norðan 13-18
m/s með slyddu eða snjókomu og kólnandi veðri norðvestantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 10-18 m/s sunnanlands undir kvöld
og bætir í rigningu og slyddu á þeim slóðum. Hiti yfirleitt 0 til 6
stig yfir daginn.
VEÐUR
„Liðsfélagar mínir stríddu
mér á æfingunni í gær á að
líklega hefði Aron ætlað að
hringja í nafna minn, Arnar
Frey Ársælsson, sem spilar
líka með Fram en þetta var
létt spaug hjá þeim,“ sagði
Arnar Freyr Arnarsson, sem
er kominn í landsliðshóp Ís-
lands í handknattleik, að-
eins 19 ára gamall, en hann
gerði það gott með U19 ára
landsliði Íslands fyrr á
þessu ári. »4
Ætlaði að hringja
í nafna minn
„Lið þeirra er svolítið óskrifað blað
þar sem það hefur ekki spilað neinn
alvöruleik á árinu. En það sem við
gerum fyrst og fremst er að einbeita
okkur að okkar eigin liði og hvað við
ætlum að gera í leiknum. Mikilvægast
er að við höldum bara áfram að spila
okkar leik og þetta eru þrjú mikilvæg
stig sem við þurfum að
sækja,“ segir Margrét
Lára, landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu, fyrir leik-
inn gegn Makedóníu í
Skopje í dag. »3
Einbeitum okkur fyrst
og fremst að eigin liði
Jón Guðni Fjóluson knattspyrnumaður
er á förum frá Sundsvall í Svíþjóð.
Hann var á dögunum tekinn út úr byrj-
unarliðinu og miðað við samskipti hans
við þjálfara liðsins virðist sú ákvörðun
hafa verið tekin af stjórn félagsins.
„Hann setti mig á bekkinn og sagði mér
að það væri ekki út af lélegri spila-
mennsku. Eitthvað meira virðist því
vera á bak við það,“ segir Jón Guðni. »1
Stjórnin setti Jón
Guðna á bekkinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Raggi Bjarna syngur með Senjór-
ítunum á hausttónleikum kórsins í
Seltjarnarneskirkju á laugardag og
Ragna Bjarnadóttir og Sigrún Ósk
Ingadóttir syngja einsöng. „Ég hef
aldrei sungið með svona mörgum
konum,“ segir Raggi um 70-80
kvenna kórinn.
„Þetta er svona ömmukór,“ segir
Kolbrún Valdimarsdóttir, formaður
Senjórítanna, en á dagskrá verða
gamlir slagarar og létt og skemmti-
leg dægurlög. Raggi syngur níu lög
með kórnum. „Við tökum mörg af
þessum gömlu og góðu lögum,“
áréttar hann.
Kolbrún segir að vegna þess að
mikið framboð sé á vortónleikum
hafi kórinn ákveðið að vera með
hausttónleika í fyrra og hafi það gef-
ist vel. Þess vegna væri nú haldið
áfram á sömu braut. „Við sláum líka
tvær flugur í einu höggi með því að
halda upp á 20 ára afmæli kórsins
um leið.“
Kórinn æfir að jafnaði einu sinni í
viku frá september út maí en vegna
tónleikanna, sem hefjast kl. 16, verð-
ur þriðja æfingin í þessari viku í
kvöld. Agota Joó stakk upp á því að
fá Ragga Bjarna til að syngja með
kórnum og Kolbrún segir að það sé
skemmtileg nýbreytni að syngja með
honum.
Raggi á Sögu annað kvöld
„Þær syngja eins og englar,“ segir
Raggi um Senjóríturnar. „Það er
ótrúlegt hvað Agota hefur náð út úr
þeim.“ Hann segir að verkefnið sé
mjög skemmtilegt og þeim hafi
gengið vel á æfingum. „Þetta er
hörkudjobb,“ segir söngvarinn sí-
ungi, sem hefur sjaldan verið eins
önnum kafinn, en hann skemmtir
ásamt Helenu Eyjólfsdóttur og Ara
Jónssyni á Söguballi á Hótel Sögu
annað kvöld.
Senjóríturnar hafa farið reglulega
í æfingabúðir og sungið víða. Kon-
urnar eru á misjöfnum aldri, þær
yngstu um sextugt og þær elstu á tí-
ræðisaldri. „Það er ótrúlegur kraftur
í þessum konum og þær láta sig aldr-
ei vanta enda er ekki allt búið þó að
við eldumst. Útsetningar Vilbergs,
eiginmanns Agotu, eru skemmti-
legar og öðruvísi, en hann hefur spil-
að með kórnum frá því Agota byrjaði
að stjórna honum,“ segir Kolbrún.
„Það eru mikil raddgæði í þessum
kór,“ heldur hún áfram og bætir við
að konur sæki í kórinn ekki aðeins
söngsins vegna heldur félagsskap-
arins. „Það er gaman að syngja og
félagsskapurinn er góður. Auk þess
erum við með frábæran stjórnanda
og sólin kemur alltaf inn, þegar
Agota birtist. Einnig gefur það ynd-
islega samkennd að syngja saman í
kór.“
Senjórítur með Ragga Bjarna
Söngvarinn:
„Þær syngja eins
og englar“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Undirbúningur Kolbrún Valdimarsdóttir, Raggi Bjarna og Agota Joó með kórnum á æfingu í gær.
Margrét Pálmadóttir, þáverandi
kórstjóri Kvennakórs Reykjavík-
ur, stofnaði Senjóríturnar, kór
fyrir konur 60 ára og eldri,
haustið 1995. Rut Magnússon
var fyrsti kórstjórinn og lagði
grunninn. Sigrún Þorgeirsdóttir
tók við 2000, en Agota Joó frá
Ungverjalandi hefur stjórnað
kórnum síðan 2006. Vilberg
Viggósson útsetur og leikur und-
ir á píanó.
Tilgangurinn með stofnun
kórsins var að gefa konum tæki-
færi til að halda áfram að syngja
eftir sextugt. Kórinn hefur alla
tíð tengst Kvennakór Reykjavík-
ur og stundum sungið með hon-
um, næst á jólatónleikum í
Breiðholtskirkju 3. desember, en
flestar konurnar hafa áður sung-
ið með hinum ýmsu kórum um
árabil.
Á fyrstu tónleikum Senjórít-
anna, sem voru með Kvennakór
Hafnarfjarðar 1996, sungu 25
Senjórítur, en mikil ásókn hefur
verið í kórinn undanfarin ár og
nú eru um 70 til 80 konur í hon-
um.
Kór fyrir 60 ára og eldri
UM 70 TIL 80 KVENNA KÓR ÚT FRÁ KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR