Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Lög sem sett voru árið 2013 oggera það að verkum að olíufé-
lögin verða að setja íblöndunarefni
í eldsneytið eru vafasöm fyrir
margra hluta sakir.
Fyrir það fyrstavoru vinnu-
brögðin við laga-
setningu stórundar-
leg, þar sem í ljós
kom að tiltekinn
hagsmunaaðili
hafði samið lögin.
Þá hefur verið bent á að lögin,sem sett voru til að mæta til-
skipun frá ESB, ganga mun lengra
en þörf var á og væru jafnvel al-
veg óþörf ef stjórnvöld hefðu frek-
ar farið þá leið að sækja um und-
anþágu, sem ætti að vera sjálfsögð
miðað við hve stór hluti orkunýt-
ingar hér á landi er frá umhverf-
isvænni orku.
Einnig hefur komið fram aðlögin hafa leitt til þess að
miklar fúlgur af dýrmætum er-
lendum gjaldeyri hafa farið í að
kaupa íblöndunarefnið, langt um-
fram það sem eldsneytið sjálft
kostar. Þar við bætist að elds-
neytið nýtist verr með íblöndunar-
efninu í, sem eykur líka kostnað
bíleigenda.
Nýjast í þessu máli er svo aðSamkeppniseftirlitið bendir á
það í nýrri skýrslu sinni um elds-
neytismarkaðinn að þessi lagasetn-
ing sé samkeppnishamlandi og
hafi einnig þannig orðið til að
auka kostnað neytenda.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-varp Sigríðar Andersen og
nokkurra annarra þingmanna um
að vinda ofan af þessar vitleysu.
Alþingi hlýtur að afgreiða frum-
varpið með hagsmuni íslenskra
neytenda í huga.
Sigríður
Andersen
Lagasetning sem
verður að laga
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 11.12., kl. 18.00
Reykjavík -4 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -3 alskýjað
Nuuk -10 léttskýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 skýjað
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Helsinki 3 skúrir
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 10 skýjað
París 8 alskýjað
Amsterdam 8 skúrir
Hamborg 6 skýjað
Berlín 6 skýjað
Vín 0 skýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 11 heiðskírt
Aþena 10 skýjað
Winnipeg -5 alskýjað
Montreal 8 skúrir
New York 12 heiðskírt
Chicago 8 skýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:11 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 11:55 14:59
SIGLUFJÖRÐUR 11:40 14:40
DJÚPIVOGUR 10:50 14:53
Grænlenska uppsjávarskipið Polar
Amaroq hefur verið við loðnuleit á
Grænlandssundi síðustu daga. Sam-
kvæmt leyfi frá Hafrannsókna-
stofnun hefur skipið heimild til að
taka sýni með flotvörpu innan ís-
lensku lögsögunnar, en áður höfðu
veiðar með nót verið reyndar.
Loðnan reyndist standa of djúpt til
að slíkar veiðar skiluðu árangri, en
frá þessu er greint á heimasíðu Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað. Polar
Amaroq var í gær búið að skanna um
400 fermílna svæði úti fyrir Vest-
fjörðum og haft var eftir Geir Zoëga,
skipstjóra, að mikla loðnu væri að sjá.
„Hér lóðar víða á mikla loðnu og
það er mikið líf á svæðinu. Hér sjáum
við oft tugi eða jafnvel hundruð
hnúfubaka og þeir voru til vandræða
þegar við vorum að kasta nótinni. Við
erum nýbúnir að taka eins og hálfs
tíma hol og fengum þá yfir 200 tonn
af stórri og fallegri loðnu. Að mínu
mati lítur þetta ágætlega út allt sam-
an og við munum halda áfram að
kanna svæðið en nú erum við staddir
um 15 mílur frá grænlensku lögsög-
unni,“ er haft eftir Geir.
Fyrr í haust er búið að fara tvíveg-
is í loðnuleiðangra við erfiðar að-
stæður og hefur lítið fundist. aij@m-
bl.is
„Lóðar víða á mikla loðnu“
Ljósmynd/Geir Zoëga
Til vandræða Hnúfubakur í nótinni
á loðnuslóð djúpt útaf Vestfjörðum.
Mikið líf á svæðinu og hnúfubakar til vandræða
JÓLAGJÖFIN HENNAR
DRAUMAKÁPAN - GLÆSIKJÓLAR - SPARIDRESS
Loðkragar - Peysur - Gjafakort
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
Opið 10-16 í dag
Opið sunnudag 13-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030, Við erum á Facebook
Str. 36-56
Verð:
kr. 5.900
kr. 12.900
kr. 14.900
Nýtt kortatímabil
KLÆÐILEGAR
SPARIBUXUR
MEÐ BROTI