Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Slagsmál hófust á Úkraínuþingi í gær eftir að einn
þingmanna, Oleg Barna, gerði sér lítið fyrir og lyfti Ar-
sení Jatsenjúk, forsætisráðherra landsins.
Barna hefur verið fremstur í flokki þeirra sem vilja
að Jatsenjúk segi af sér. Rétti Barna honum fyrst rósa-
vönd áður en hann greip til sinna ráða.
AFP
Ráðherrann tekinn „klofbragði“
Tyrknesk yfirvöld gáfu í gær út 65
handtökuskipanir í tengslum við
rannsókn yfirvalda á umsvifum Fet-
hullahs Gulens, prédikara sem býr í
Bandaríkjunum. Einungis tókst að
hafa hendur í hári fimm einstakl-
inga, en talið er að allt að 43 hinna
grunuðu hafi þegar flúið land.
Gulen, sem fór í útlegð árið 1999,
var eitt sinn einn af helstu stuðn-
ingsmönnum Receps Tayyips Erd-
ogans, forseta Tyrklands, en í des-
ember 2013 kastaðist í kekki á milli
þeirra.
Kenndi tyrkneska ríkisstjórnin
Gulen um að ásakanir um spillingu
innan stjórnarflokksins AKP kom-
ust í hámæli. Erdogan og stuðnings-
menn hans hafa á móti ásakað Gulen
um að vilja steypa réttkjörnum
stjórnvöldum í Tyrklandi af stóli og
koma á fót annarri ríkisstjórn. Segja
þeir stuðningsmenn Gulens styðja
við bakið á hryðjuverkum.
Handtöku-
hrina í
Tyrklandi
Beinist að and-
stæðingum Erdogans
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ákveðið var í gær að framlengja viðræður um
nýjan sáttmála í loftslagsmálum um einn sólar-
hring og er stefnt að því að ná samkomulagi í
dag. „Það var fundað í [fyrri]nótt, og þar
greindi Laurent Fabius, utanríkisráðherra
Frakka, forseti COP21, frá því að það kæmi nýr
texti á laugardagsmorgun og að það yrði reynt
að ná samkomulagi á laugardag,“ segir Hugi
Ólafsson, formaður samninganefndar Íslands.
Sagði Fabius jafnframt á þeim fundi að hann
myndi nýta gærdaginn í samráð milli ríkja og
ríkjahópa. Lágu því formlegar viðræður að
mestu niðri eftir samningalotuna um nóttina.
Hugi segir að fólk sé bjartsýnt á að það muni
semjast, en að nú sé tekist á um helstu atriðin
sem út af standi. „Enginn þorir að spá hvort það
gangi eftir á laugardaginn, eða hvort það drag-
ist fram á sunnudaginn.“ Í fréttatilkynningu frá
umhverfis- og auðlindaráðuneytinu kom fram að
Ísland hefði skipað sér í sveit þjóða sem vildu að
loftslagssamkomulagið í París yrði metnaðar-
fullt, frekar en einföld umgjörð utan um inn-
send markmið ríkja.
Laurent Fabius sagði við AFP-fréttastofuna
að nú færi að líða að leiðarlokum samningaferl-
isins og að hann væri bjartsýnn á framvinduna.
Það væri „mjög stutt“ í sögulegan árangur, en
að til þess þyrftu allir að sætta sig við málamiðl-
anir.
Með nýjum sáttmála myndu ríki heims skuld-
binda sig til þess að draga úr útblæstri svo-
nefndra gróðurhúsalofttegunda, sem leiða til
hlýnunar á yfirborði jarðar, eftir árið 2020 þeg-
ar núverandi sáttmáli rennur sitt skeið.
Nýr samningur kynntur í dag
Bjartsýni á að samið verði um loftslagsmál Gæti dregist fram til sunnudags
AFP
Ísbjarnarblús Mótmælendur hafa verið algeng
sjón í París á loftslagsráðstefnunni.
Franska þjóðþingið samþykkti í gær að lækka skatt á
tíðatöppum og dömubindum, en hávær mótmæli höfðu
verið gegn skattlagningunni.
Álagningin var lækkuð niður í 5,5% en hafði áður
verið í 20%. Sagði ríkisstjórn Frakklands að kostnaðar-
aukningunni yrði mætt annars staðar í fjárlögum rík-
isins, en áður hafði ríkisstjórnin sagt kostnaðinn vera
um 55 milljónir evra. Áður höfðu þjóðir eins og Bretar,
Írar, Spánverjar og Hollendingar lækkað gjöld á þess-
um vörum. Franski femínistinn Georgette Sand fagnaði
ákvörðuninni og hvatti verslanir til þess að tryggja það
að skattalækkunin kæmist til neytenda.
„Tíðagjaldið“ fellt niður
Tíðir Ákvörð-
uninni fagnað.
Íþróttagerðardómurinn í Sviss
komst í gær að þeirri niðurstöðu að
staðfesta 90 daga bann alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins FIFA á Michel
Platini, formann evrópska knatt-
spyrnusambandsins UEFA, við öll-
um afskiptum af knattspyrnu.
Úrskurðurinn er talinn áfall fyrir
Platini og vonir hans um að verða
næsti forseti FIFA, en hann hafði
verið talinn líklegur eftirmaður
Sepps Blatter, núverandi forseta,
sem ákvað að stíga til hliðar í skugga
spillingarmála innan sambandsins. Í
september breyttist staðan hins
vegar þegar upp komu ásakanir um
að Platini hefði sjálfur þegið ólögleg-
ar greiðslur frá Blatter.
Lögmenn Platinis héldu því fram í
málflutningi sínum að knatt-
spyrnukempan fyrrverandi, sem
fyrr á árum lék með ítalska stórlið-
inu Juventus, hefði ekki brotið nein
lög og að bannið hefði stórskaðað
hagsmuni Platinis.
Gerðardómstóllinn taldi hins veg-
ar ekki að bannið hefði skaðað hags-
muni hans að óþörfu. Beindi hann þó
þeim tilmælum til FIFA að sam-
bandið hraðaði rannsókn sinni á
málum Platinis.
AFP
Áfrýjuninni hafnað Platini á leið til
dómstólsins fyrr í vikunni.
Áfrýjun
Platinis
hafnað
Fyrsta sending af
2016 komin í hús
Kletthálsi 15 | S: 577-1717 | stormur.is | stormur@stormur.isVerið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900
Það á að gefa börnum brauð…
FALLEG HÖNNUN Í ELDHÚSIÐ ÞITT