Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Í ofsaveðri mánudagsins varð Vigfús
Andrésson, bóndi í Berjanesi undir
Eyjafjöllum, fyrir töluverðu tjóni á
útihúsum sínum. Þegar Morgun-
blaðið fór að skjalfesta tjón sveit-
arinnar stakk ljósmyndari ferð-
arinnar, Ragnar Axelsson, RAX,
upp á því að skoða Berjanes. „Ég hef
myndað þar áður,“ sagði hann.
Í blaði þriðjudagsins birtist mynd
af Vigfúsi í foknu fjárhúsi sínu. Þetta
er þó ekki í fyrsta sinn sem Morg-
unblaðið greinir frá tjóni Vigfúsar í
ofsaveðri. Þannig birtist mynd RAX
af honum á forsíðu blaðsins 20. jan-
úar 1983. Þar gefur hann hrossunum
úr hlöðugrunninum eftir að veggir
og þak fuku. Tvær hlöður stór-
skemmdust, fjárhús, íbúðarhúsið,
þrír bílar, 35 tonn af heyi fuku og
vatn olli miklum skemmdum á heyi.
Þá fóru flestar rúður úr húsum og
m.a. fennti inn í fjós þar sem 14
mjólkandi kýr voru.
Vigfús var aftur til umfjöllunar 25.
apríl 1992 þegar ofsaveður gerði á
sumardaginn fyrsta. Þak fauk þá af
fjósinu og skall þekjan til jarðar inn-
an við metra frá þeim stað í íbúðar-
húsinu þar sem húsfreyjan var með
tvö ung börn. Hvorki menn né
skepnur sakaði. Þá hrundi gafl úr
hlöðnum steini á fjósinu, auk þess
sem skemmdir urðu á þaki fjárhúss-
ins.
Hinn 12. janúar 1993 var Vigfús
enn á forsíðu blaðsins eftir að ein
dýpsta lægð sem sögur fara af fór
yfir landið. Fjárhús Vigfúsar sprakk
þá nánast í veðurofsanum. Á þriðju-
dag birtist svo nýjasta myndin af
Vigfúsi.
Þrátt fyrir að það blási duglega í
Berjanesi og ýmislegt hafi gengið á,
eins og eldgos og eldsvoðar, hefur
Vigfúsi aldrei dottið í hug að flytja.
Tryggingafélög hafa hins vegar neit-
að að tryggja mannvirki á staðnum
fyrir foki.
„Það er margt sárt í þessari sögu
minni. Ég gæti skrifað heila bók og
ekkert af því væri lygi. Það á ekkert
eftir að gerast í Berjanesi nema að
loftsteinn detti á túnið,“ segir hann
og hlær.
„Faðir minn var fyrsti maður á Ís-
landi sem lét sér detta í hug að fok-
tryggja hús því 50 metrum norðar
og sunnar verður ekki svona mikið
rok. Berjanes er í miðjum vind-
streng í vissri norðvestanátt, svo það
er eins og byssuskot ríði á húsin.
Í gamla daga var allt tryggt hjá
Brunabótamati Íslands. Síðan
breiddist foktryggingin út og varð
almenn, sem veitti ekkert af því það
hafa orðið foktjón víða.
Svo þegar brunabótamatið var
lagt niður sögðu tryggingafélögin
öllum tryggingum upp, til að færa
tryggingarnar í ný félög með nýjum
formerkjum. En mér var neitað um
foktryggingu og ég hef ekki verið
tryggður í mörg ár. Það hafa orðið
mörg foktjón hjá mér síðan, upp á
margar milljónir. Heilu fjárhúsin
hafa farið og fjóshlöður og ýmislegt
annað, sem þýðir að ég hef setið í
súpunni,“ segir Vigfús sem hefur
ekki heldur fengið bætur frá Bjarg-
ráðasjóði. „Það er aumingjasjóður.
Fyrst það er hægt að tryggja svona
tjón þá bætir sjóðurinn það ekki. En
ég get ekki tryggt! Ég hef setið eftir
með sárt ennið og milljónatjón. Er
nema von að maður sé sár.“
Hænurnar fuku
Framundan eru enn einar við-
gerðirnar hjá Vigfúsi og var hann í
óðaönn að undirbúa þær þegar
Morgunblaðið bar að garði. Hann
ætlaði að bíða eftir mannskap sem
gæti hjálpað sér því ekki færi hann
einn upp á þak. Fyrir utan veðurofs-
ann hefur Vigfús fengið eldgos nán-
ast í bakgarðinn þegar Eyjafjalla-
jökull gaus, flóð og tvo eldsvoða,
síðast í fyrra þar sem Vigfús rétt
slapp út.
„Skepnur og menn hafa sem betur
fer sloppið vel úr þessu öllu saman.
Reyndar var ég einu sinni með ellefu
hænur en hænsnakofinn fauk í einu
veðrinu og hænurnar með. Þær hafa
ekki sést síðan,“ segir Vigfús í
miðjum aðgerðum eftir síðasta fok-
tjón.
1983 Vigfús birtist á forsíðu Morgunblaðsins 20. jan-úar 1983 að gefa hrossunum út úr hlöðugrunn-
inum, en veggir og þak fuku í ofviðrinu.
Vindar blása um Berjanes
1993 Vigfús birtist á forsíðu Morgunblaðsins 12. jan-úar 1993 þar sem hann var að kanna rústir
fjárhússins sem gereyðilagðist í ofsaveðri.
Berjanes
Berjanes
Eyjafjallajökull
Mýrdalsjökull
Markarfljót
Morgunblaðið/RAX
Í Berjanesi Ýmislegt lauslegt fauk af túnum Vigfúsar í veðurhamnum sem fór yfir landið á mánudag. Það hefur gerst áður og mun væntanlega gerast aftur.
1992 Vigfús og Jonna birtust á forsíðu Morgunblaðsins1992 eftir að gafl hrundi úr hlöðnum steini á fjós-
inu, auk þess sem skemmdir urðu á þaki fjárhúss.
Hugljúfar gjafir á frábæru verði
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5010
ARISA
„Brave”