Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Vandaður kuldafatnaður
á góðu verði
Útsöluaðilar: Útilíf Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ I K Sport Keflavík I Nína Akranesi
Sportver Akureyri I Borgarsport Borgarnesi I Sportbær Selfossi I Axel Ó Vestmannaeyjum
Stærðir 2–12 ára
Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þegar frímerki gegndu stærra hlut-
verki í póstþjónustu en nú, voru þau
stundum notuð til að afla fjár til
góðra verka. Til dæmis voru gefin út
sérstök líknarfrímerki og fyrir kom
að almenn frímerki fengju yf-
irstimplun og rann þá ágóði af söl-
unni til einhvers málefnis, eins og
Hollandshjálparinnar á sjötta ára-
tug síðustu aldar. Tvívegis voru gef-
in út sérhönnuð frímerki til fjáröfl-
unar fyrir flóttafólk í útlöndum, 1960
og 1971. Í bæði skiptin var um að
ræða þátttöku í átaki margra ríkja
sem öll gáfu út eigin frímerki í sama
skyni. Ekki er annað vitað en að út-
gáfan hafi náð tilætluðum árangri.
En þegar myndefni íslensku frí-
merkjanna frá þessum tíma er skoð-
að vekur athygli hve frábrugðið það
er myndefni erlendu frímerkjanna.
Íslensku frímerkin sýna ógæfusama
einstaklinga á flótta undan réttvísi,
en erlendu frímerkin sýna venjulegt
fólk á flótta frá stríði og þjóðfélags-
legri upplausn.
Alþjóðaár flóttamanna
Það var að tillögu Breta að Sam-
einuðu þjóðirnar samþykktu í des-
ember 1958 að efna til alþjóðlegs árs
flóttamanna. Var ákveðið að það
stæði frá miðju ári 1959 og til miðs
árs 1960. Tilgangurinn var að vekja
mannkynið allt til skilnings á hvílík
ógæfa væri búin milljónum manna í
heiminum sem hrakist höfðu frá
heimilum og átthögum vegna ófriðar
og umbyltinga. Á þessum tíma voru
tugþúsundir flóttamanna í Vestur-
Evrópu; höfðu flestir hrakist frá
Ungverjalandi eftir uppreisnina þar
1956. Fjöldi flóttafólks var í Hong
Kong, Palestínu og ríkjum Afríku,
ekki síst Kongó.
Aðildarríkin voru hvött til að
leggja fé af mörkum til stuðnings
flóttafólkinu svo hægt væri að kaupa
matvæli fyrir það og koma upp hús-
næði. Náðist samstaða um það meðal
um 70 ríkja að afla fjár með útgáfu
sérstakra frímerkja og skyldi sölu-
andvirði þeirra varið til flótta-
mannahjálparinnar. Voru flest
merkin gefin út vorið 1960.
Á flótta undan réttvísinni
Íslendingar tóku þátt í þessu
verkefni. Í apríl 1960 voru gefin út
frímerki með tvenns konar verðgildi
og í tveimur mismunandi litum. Var
myndefnið stytta Einars Jónssonar
myndhöggvara, Útlagar, gerð 1901.
Auk sölu innanlands voru 50 þúsund
eintök af frímerkjunum gefin Sam-
einuðu þjóðunum til styrktar flótta-
mannahjálpinni og voru þau öll seld
erlendis.
Rúmum áratug síðar, í mars 1971,
gaf íslenska póststjórnin út nýtt
flóttamannafrímerki. Tilefnið var
þátttaka í flóttamannasöfnun Norð-
urlanda sem nefnd var „Flóttafólk
’71“. Fram kemur í blöðum frá þess-
um tíma að um tvær og hálf milljón
flóttafólks njóti liðsinnis Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Flest fólkið var í Afríku, um 900 þús-
und manns, rúmlega 60 þúsund Tíb-
etar voru í Indlandi og Nepal og 80
þúsund flóttamenn frá Kína voru í
Macao. Auk frímerkjaútgáfunnar
efndu fjölmörg félagasamtök til fjár-
söfnunar vorið 1971 til stuðnings
flóttamönnum og skyldi söfnunarféð
einkum renna til Afríkubúa.
Íslenska frímerkið prýddi að þessi
sinni mynd af málverki Ásgríms
Jónssonar listmálara frá 1905,
Flótti. Var frímerkið aðeins gefið út í
einu verðgildi.
Lítum nánar á myndefni íslensku
flóttamannafrímerkjanna. Útlagar
Einars Jónssonar, eða Útilegumað-
urinn eins og verkið hét þegar það
var fyrst sýnt í Kaupmannahöfn í
byrjun síðustu aldar, byggist á ís-
lenskum þjóðsögum um úti-
legumenn. Samkvæmt sýning-
arskránni frá þessum tíma á verkið
að tákna mann sem dæmdur hefur
verið fyrir glæp og flúið með konu
sína og barn inn á öræfi Íslands. Í út-
legðinni deyr konan og maðurinn
snýr til byggða að næturlagi til að
hún geti fengið leg í kirkjugarði.
Sótt í þjóðsagnir
Flótti Ásgríms Jónssonar sýnir
konu með stúlkubarn í fanginu og
virðist konan vera að vaða yfir mikið
vatnsfall. Greina má Búrfell í bak-
grunni. Er talið að þarna hafi lista-
maðurinn sótt efniviðinn í sagnir um
útileguhjúin frægu, Höllu og Fjalla-
Eyvind, sem á seinni hluta 18. aldar
voru árum saman á flótta undan yf-
irvöldum fyrir margvísleg afbrot.
Hafa sumir skilið verkið sem svo að
það tákni þann atburð í einni þjóð-
sögunni þegar Halla fleygir ný-
fæddu barni sínu í foss til að auð-
velda sér flóttann.
Erlendu flóttamannafrímerkin
1960 og 1971 voru yfirleitt sérteikn-
uð fyrir tilefnið. Myndefni þeirra vís-
ar á táknrænan hátt til hins al-
þjóðlega flóttamannavanda. Svo
dæmi séu tekin sýnir bandaríska
merkið 1960 hjón með tvö börn
ganga á vit nýrrar framtíðar, norska
frímerkið móður með barn í fangi á
flótta undan eyðandi her, sænska
merkið andlit fólks af ólíkum kyn-
þáttum og franska frímerkið flótt-
astúlku innan um rústir. Mörg frí-
merkjanna hafa eingöngu táknmynd
flóttamannaársins: tré rifið upp með
rótum. Sænska frímerkið 1971 sýnir
hóp flóttafólks í Afríku á leið til
nýrra heimkynna og það danska
móður á flótta með tvö börn.
Heppileg tákn?
Um það er ekki deilt að Útlagar
Einars og Flótti Ásgríms eru lista-
verk sem standa sem slík maklega á
eigin forsendum. En hversu heppi-
leg voru þau sem tákn fyrir vega-
laust fólk í útlöndum sem flúði stríð
og hungursneyð sem það bar enga
sök á? Um það eru meiri áhöld.
Óneitanlega virkar myndefnið á
mann sem klaufalegt, jafnvel óvið-
eigandi, í þessu samhengi. En engar
opinberar umræður urðu um mynd-
efnið á sínum tíma og aldrei heyrðist
gagnrýnisrödd. Hugsanlegt er að Ís-
lendingum hafi fundist ógæfa úti-
legufólksins sambærileg við örlög
flóttafólksins í útlöndum. Réttvísin á
Íslandi forðum daga gat verið harð-
neskjuleg og kaldlynd og úti-
legumaður Einars og Halla Ásgríms
sýna óneitanlega niðurbrotið og ör-
væntingarfullt fólk.
Sennilegt er að hvorki hafi mikil
vinna né hugsun verið lögð í undir-
búning íslensku flóttamannafrí-
merkjanna. Fyrsta hugmyndin hafi
verið gripin á lofti. Póststjórnin
hafði lengi vel engan starfsmann
sem sérhæfður var í frímerkjaútgáfu
eða sinnti henni eingöngu. Ákvarð-
anir voru gjarnan teknar án mikils
undirbúnings og oft í kapphlaupi við
tímann. Þótt dæmi séu um að lista-
menn og teiknarar hafi verið fengnir
til að hanna frímerki var slíkt yf-
irleitt undantekning fram á áttunda
áratug síðustu aldar þegar sérstök
frímerkjaútgáfunefnd var stofnsett
fyrir frumkvæði samgönguráðherra.
Algengast var að valið væri eitthvert
myndefni sem þegar var til, ljós-
mynd tekin af því og erlendri prent-
smiðju falið að ljúka verkinu.
Skilningur á vandanum
Umfjöllun blaða frá 1960 og 1971
sýnir að Íslendingar höfðu fullan
skilning á því hvers eðlis flótta-
mannavandinn í útlöndum væri þótt
myndirnar á frímerkjunum væru
sérstæðar. Þetta má til dæmis lesa
út úr ávarpi Íþróttasambands Ís-
lands 1971, en sambandið hvatti
landsmenn til rausnarlegrar þátt-
töku í fjársöfnuninni það ár. „Raunir
og hörmungar flóttafólks eru með
ólikindum og eiga sér margvíslegar
orsakir. Styrjaldir, stjórnleysi,
þekkingarleysi og vankunnátta eiga
hér mikinn þátt í. Alsaklaust fólk,
svo milljónum skiptir, verður þess-
um vágesti að bráð. Allir velviljaðir
menn hljóta því með ánægju að
hjálpa til í baráttunni fyrir því að
skapa þessu fólki viðunandi lífsskil-
yrði,“ sagði til dæmis forseti ÍSÍ í
blaðagrein.
Íslensku frímerkin höfðu sérstöðu
Íslensku flóttamannafrímerkin frá 1960 og 1971 sýna ógæfufólk á flótta undan réttvísinni
Erlend frímerki í sömu útgáfuröð sýna vegalaust fólk flýja stríð og upplausn í heimalandinu
Flótti Málverk Ásgríms Jónssonar sem prýðir frímerkið er frá 1905. Útlagar Verk Einars Jónssonar var fyrst sýnt í Kaupmannahöfn 1901.
Móðir og barn Flóttamannafrímerkið sem Norðmenn gáfu út 1960. Á vit framtíðar Bandaríska flóttamannafrímerkið frá 1960.
Til nýrra heimkynna Sænska flóttamannafrímerkið árið 1971.