Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 75
75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
voru sveimandi í kringum hann. Mér
þótti þetta einkennileg sjón og ekki
minnkaði undrunin er ég varð þess
var að þessir fiskar, sem voru 8 eða
9 talsins, voru að elta laxinn sem
fastur var á önglinum hjá mér. Það
sem meira var, þeir syntu á línuna
hver af öðrum, allt virtist skipulagt
og þeir virtust vita upp á hár hvað
þeir voru að gera.
Er draga fór af laxinum gerði
hann það sem vænir laxar gera
gjarnan, hann lét strauminn taka
sig, en fyrir neðan hylinn er mörg
hundruð metra sprettur niður í
næsta hyl sem er pínulítill pottur, en
stórgrýttar flúðir á milli, og allt ann-
að en auðvelt að fylgja laxi eftir. Það
tókst, en röstin á eftir laxinum
leyndi sér ekki, allt stóðið fylgdi
honum og þegar komið var í pottinn
ólgaði hann allur og kraumaði af
fylgilöxum sem reyndu enn að synda
á línuna. Þarna gafst laxinn upp og
ég landaði honum. Laxatorfan fylgdi
alveg upp í vatnsborð.“
Af Mike Savage og félögum
Mike Savage hét enskur maður
sem veiddi margoft á Íslandi til
fjölda ára. Honum kom um síðir til
hugar að skrifa bók um reynslu sína
af íslenskum ám, enda hafði hann
haldið nákvæmar dagbækur og
veiðiskýrslur fyrir sig og félaga sína.
Bókin heitir Fishing in Iceland og
var um tíma aðeins önnur bókin sem
hefur verið skrifuð af erlendum
manni um stangaveiði á Íslandi. Áð-
ur var aðeins klassíska bókin Rivers
of Iceland eftir skoska herforingj-
ann R.N. Stewart. Savage entist
ekki aldur til að ljúka verki sínu, en
aðilar nákomnir honum hnýttu
endahnútana. Bókin kom út í mars
2003. Meðal áa sem Savage og fé-
lagar hans veiddu í var bæði Þverá
og Kjarrá. Við grípum hér niður í
frásögn Mikes, fyrst frá fyrri heim-
sókn hans í Þverá - Kjarrá 1964:
„Fyrir morgunmatinn skruppum
við í Steinahyl sem er rétt neðan við
veiðihúsið þar sem við dvöldum
(Melshúsin). Á þeim árum var hyl-
urinn afar góður og við veiddum vel
í honum, m.a. stærsta laxinn okkar í
ferðinni, lax sem Graham setti í og
þurfti að elta 300 metra niður með á,
áður en honum varð landað.
Graham fór í innkaupaleiðangur
með kvenfólkinu á fjórða deginum
okkar, sem bar upp á 29. júlí. Ég
byrjaði að veiða mig niður neðsta
svæðið okkar og byrjaði efst. Var
búinn að veiða tvo smálaxa þegar ég
sá Christopher Sellick sitja eins og
sperrtan otur á bakkanum við út-
fallið úr Gelli. Við vorum báðir með
maðk sem við köstuðum með flugu-
stöng og létum svifa líkt og fluga
væri undir. Hann hafði landað fjór-
um löxum, öllum jafn stórum, eða 15
pund. Síðan tók hann þrjá í viðbót,
alla jafn stóra og ég var að landa
mínum fjórða þegar hópurinn skilaði
sér úr verslunarleiðangrinum. Gina
veiddi þá tvo 15 punda og Alys einn
15 punda. Graham, sem hélt sig við
fluguna, var með Yellow Torrish og
landaði einum 15,5 punda. Þar með
höfðum við landað þarna þrettán
löxum, öllum af þessari stærð, um 15
pundin. Alls veiddum við 43 laxa
þessa viku sem við vorum að veið-
um, stærsti var 18,5 pund, 13 voru
smálaxar og 30 tveggja ára laxar.
Þetta voru fyrstu laxar sem ég hafði
veitt á maðk og eftir þessa vertíð
kastaði ég aldrei aftur maðki. Einn
laxinn höfðum við í mat, þrjá gáfum
við bændum sem þakklætisvott, en
mjólkurbíllinn sótti hina og skilaði
þeim til byggða.“
Næst kom Mike Savage í Þverá
og Kjarrá sumarið 1982, þá boðinn
af Sigurði Helgasyni og nú var öldin
önnur í aðbúnaði við árnar. Komin
þau vönduðu veiðihús sem enn
prýða bakkana. Hann lýsir veiði-
svæðum árinnar og getur þess að
áin sé svo tilvalin og aðgengileg til
veiða að þegar George Bush eldri,
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
hafi komið til Íslands, hafi Þverá
verið valin fyrir hann. Bush var sett-
ur niður við Kirkjustreng þar sem
hann setti í og landaði 5 punda laxi á
spón.
Síðan segir hann magnaða veiði-
sögu frá Þórunnarhyl:
„Neðsti hylurinn á miðsvæðinu er
Þórunnarhylur, sem myndi einnig
vera (ásamt Klapparfljóti) í drauma-
laxveiðiá minni.
Ímyndið ykkur bestu hugsanlegu
skilyrði. Það er miður ágúst 1983,
það er enn hátt í ánni eftir flóð, en
áin er að hreinsa sig og það lækkar í
henni. Frá vinstri bakkanum veð ég
út í miðja á, út á malarkamb og
kasta að klöppinni á öndverðum
bakka. En kasta einnig af og til að
vinstri bakkanum þar sem laxar
liggja hér báðum megin við mig.
Laxar sýna sig víða um hylinn. Neð-
ar er Robyn bróðir minn að kasta á
hylinn ofan af háum kletti á vinstri
bakkanum og hann setur í sannkall-
aðan stórlax. Á sama tíma lendir
flugan mín við hinn bakkann og lax
rýkur af stað á eftir henni. Ég næ
mínum á land og veð aftur út í til að
reyna aftur. Robin er enn að glíma
við laxinn sinn, en ég set strax í ann-
an fisk og landa honum einnig. Ég
hvet hann til að fara niður af klett-
inum og reyna að koma laxinum
neðar í ána. Hann gerir það og á
endanum landar hann glæsilegum
19 punda laxi, nýgengnum. Vel-
gengni mín heldur áfram og ég finn
annan tökustað, nærri útfallinu við
vinstri bakkann. Nærri útfallinu er
hægt að vaða yfir ána og veiða
hægri bakkann frá klettinum. Setji
maður í lax þar, þarf að renna sér á
rassinum niður brekkuna, niður á
grasbakka og þar er löndunar-
aðstaða. Robin hafði misst þarna
enn stærri lax daginn áður og næsta
dag veiddi sonur minn Sandy 23
punda lax, einnig í Þórunnarhyl.
Kvöldið eftir tók ég mynd af þeim
Robin og Sandy með stórlaxana,
Robin með 19 pundarann, Sandy
með 23 pundarann sem ég tel að hafi
verið stærsti fluguveiddi lax á Ís-
landi það sumar. Það er sjaldgæft að
geta birt mynd af tveimur svo
stórum löxum á sömu myndinni við
íslenska á.“
f fylgilöxum
Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson
Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson
Norðtunga Einn gjöfulasti veiðistaðurinn í Þverá er Kirkjustrengur við
Norðtungu. Vorlaxinn velur sér oft þennan stað til að stoppa á um stund.
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
102985
HALDA AFMÆLI
Gefðu barninu ævintýralega jólagjöf
Fallegt gjafabréf fæst í miðasölu Borgarleikhússins
eða í síma 568 8000
.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/