Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 105
MENNING 105
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Jólatónleikar Snorra Ásmundssonar
myndlistarmanns fara fram í Lista-
safni Íslands í dag kl. 16. Snorri kom
nú nýverið út úr skápnum sem pí-
anóleikari og hefur kom fram í Dan-
mörku og Póllandi í sumar. Tónleik-
arnir eru jafnframt líka
útgáfutónleikar vegna jólaplötu
Snorra, Jólasveit og jóladís. Snorri
telur sig vera besta píanóleikara í
Evrópu í dag og hélt sína fyrstu pí-
anótónleika í sumar í Mengi. Verða
þeir lengi greyptir í minni gesta og
eru margir sammála um að Snorri sé
það allra ferskasta sem komið hefur
fram í tónlistarlífinu í áratugi, eins
og segir í tilkynningu.
„Mig hefur alltaf langað að gefa út
jólaplötu, kannski vegna þess að ég
var skírður á jóladag og líka auðvit-
að vegna þess að sagan um jólabarn-
ið Jesús er svo rómantísk og spenn-
andi,“ segir Snorri þegar hann er
spurður að því af hverju hann sé að
gefa út jólaplötu. „Þetta hefur s.s.
blundað í mér alla tíð og nú þegar ég
er búinn að uppgötva tónlistarhæfi-
leika mína var sjálfsagt að kýla á
þetta.“
Snorri segir sex jólalög á plötunni
sem flestir eigi að kannast við. „Lög-
in eru sex til höfuðs vitringunum
þrem og Jósef, Maríu og jólabarninu
Jesú. Þegar ég söng inn á plötuna
var ég mjög kvefaður eins og heyrist
vel, en það kom aldrei til greina að
fresta því að syngja út af barnalegri
kvefpest, ekki voru Jósef og María
að kvarta undan kvefi. Svo er kvef-
aða röddin mín ekki síður kynþokka-
full en mín venjulega rödd,“ segir
Snorri. Hann sé í skýjunum yfir
plötunni og framleiðandi hennar,
Árni Grétar, sé sammála honum í því
að hún sé meistaraverk.
„Jólasveit og jóladís er hrokalaust
ein skemmtilegasta og fallegasta
jólaplata sem ég hef heyrt og það er
mikið hrós því öll munum við eftir
Elvis og Nönu Mouskouri,“ bætir
Snorri við. Jólatónleikarnir í Lista-
safninu verði geggjaðir og líklega
þeir allra bestu sem haldnir hafi ver-
ið. Flygillinn í safninu sé auk þess sá
besti á landinu. Ókeypis er inn á tón-
leikana. helgisnaer@mbl.is
Alltaf langað að gefa út jólaplötu
Sá besti? Snorri Ásmundsson telur sig besta píanóleikara Evrópu.
Snorri heldur jólatónleika í Listasafni Íslands í dag
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef stundum furðað mig áþví af hverju sterk svart-málmssena hefur ekki þrif-
ist á Íslandi. Það væri eitthvað rétt
við það. Þessi undirstefna þunga-
rokksins lifir góðu lífi víðast hvar á
Norðurlöndum, utan Danmerkur
kannski, og Ísland –
ef litið er til lands-
lags, myrkurs og
kulda – er hinn full-
komni hýsill fyrir
svona tónlist. Engu að
síður hefur hún átt erfitt með að
fóta sig. Við höfum átt öflugar
dauðarokkssenur og harð-
kjarnasenur en svartmálms-
sveitirnar hafa iðulega verið einar á
rófinu. Sólstafir, Fortíð, Myrk,
Carpe Noctem ... ólíkar og aleinar
og það vantaði einfaldlega meiri
mannskap til að hlaða í kringum
þær.
En nú er þetta breytt. Und-
anfarin misseri hefur verið mikið líf
í svartmálmsgeiranum og sena
fædd sem raðar sér m.a. í kringum
útgáfuna Vánagand sem stofnsett
var í fyrra. Svartidauði, Sinmara,
Grafir, Úrhrak, Abominor, Dynfari,
Zhrine, Wormlust, Vansköpun,
Norn, Naðra og 0, þetta eru bara
Þegar allt varð svart
Svartagall Meðlimir Misþyrmingar í ísköldum og alíslenskum garranum.
nokkur þeirra nafna sem hægt er að
tengja við þessa virkni, hvert með
sitt sérkenni; allt frá hörðum, rokk-
uðum svartmálm yfir í framsækin
og epískan og einnig er pláss fyrir
svefnherbergis/einsmanns málm.
Það er því rúm fyrir fjölbreytni en
einnig er mikið líf í útgáfu – sem er
margháttuð – og tónleikahaldi.
Að öðrum ólöstuðum er Mis-
þyrming það band sem er á mestu
háflugi nú um stundir, ekki síst
vegna þessa glæsilega verks sem
kom út fyrr á árinu. Söngvar elds og
óreiðu er frábær svartþungarokks-
plata sem heltekur hlustandann frá
fyrsta tóni eða hljóði öllu heldur.
„Söngur heiftar“ hefst á ískrandi
glym, eins og sagarblöðum sé rennt
utan í hvort annað, og svo fer allt af
stað, byljandi keyrsla þar sem pískr-
andi gítar keppist við sprengi-
trommur („blast beat“) og yfir syng-
ur D.G í hálfkæfðu, píndu öskri.
Tilkomumikið, svo sannarlega. Lag-
ið er mjög ágengt og heiftúðugt og
svipað er uppi á teningnum í næsta
lagi, „...af þjáningu og þrá“. Söng-
rödd D.G er af dýpri toganum, þetta
er ekki hvellt nornaöskur, ekki
heldur lengst niðri í iðrum dauða-
rokkssöngur heldur meira svona
kvalafullt öskur og giska áhrifamik-
ið sem slíkt.
Tónlistin er þó alls ekki ein-
tóna. Lögin rokka af ákefð en það er
líka rúm fyrir litskrúðugri spretti;
haganlega samsettir, útpældir og
melódískir kaflar og brýr gera vart
við sig og „Frostauðn“ er þá ósung-
in, sveimbundin stemma, andrúms-
loftið þar skuggalegt og hættu
bundið og í fullkomnum takti við
annað á plötunni. Ég verð líka sér-
staklega að nefna frágang á plöt-
unni en forláta vínyleintak – press-
að á blóðrauðan vínyl en ekki hvað –
rúllar hérna á bakvið mig. Vínyllinn
er þykkur, hljómar einstaklega vel
og umslagið tvöfalt eða „opnanlegt“
, glæsilega myndskreytt og meira
að segja er sérblað inni í með helstu
upplýsingum og dularfullri mynd af
meðlimum.
Söngvar elds og óreiðu er
glæstur vottur um þessa yfirstand-
andandi senu, þar er margt for-
vitnilegt að finna sem er þess virði
að slægjast eftir. Ég drúpi höfði
svörtu og hlakka til næstu mánaða.
» Lögin rokka afákefð en það er líka
rúm fyrir litskrúðugri
spretti; haganlega sam-
settir, útpældir og mel-
ódískir kaflar og brýr
gera vart við sig.
Söngvar elds og óreiðu er eftir svartmálms-
sveitina Misþyrmingu. D.G. leikur á öll hljóð-
færi og syngur en H.R.H spilar á trommur.
Platan var hljóðrituð í Gryfjunni.
mbl.is
alltaf - allstaðar
THE 33 8,10:35
KRAMPUS 6,8
THE NIGHT BEFORE 10:45
HUNGER GAMES 4 5,8,10:10
GÓÐA RISAEÐLAN 2,5
HANASLAGUR 2,3:50
HOTEL TRANSYLVANIA 2 1:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
Opið alla daga til Jóla
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Næg bílastæði
Selena undirfataverslun
Gjöfin
hennar
- Nýtt kortatímabil -