Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 94
94 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Söfn • Setur • Sýningar
12.-24. desember kl. 11: Jólasveinar skemmta í Myndasal.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
Sérkenni sveinanna jólasýning á Torgi
Jólaratleikur
Leitin að jólakettinum er stórskemmtileg skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Blaðamaður með myndavél á Veggnum
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Listasafn Reykjanesbæjar
Kvennaveldið: Konur og kynvitund
13. nóvember – 24. janúar
Töskur frá Handverki og hönnun
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Þyrping verður að þorpi
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
LISTASAFN ÍSLANDS
NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP 18.9. 2015 - 3.1. 2016
NÍNA TRYGGVADÓTTIR Ný bók frá Listasafni Íslands.
NÍNA SÆMUNDSSON - LISTIN Á HVÖRFUM 6.11.2015 - 17.1.2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
Jólatónleikar Snorra Ásmundssonar besta píanóleikara Evrópu,
laugardaginn 12. desember kl. 16
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
ÞÚ FINNUR JÓLAGJÖF LISTUNNANDANS Í SAFNBÚÐ LISTASAFNS ÍSLANDS
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar,
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánud.
Gömul jólatré Jólasýning í lestrarsal
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsið Kapers Ljúffengt kaffi og kruðerí
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17.
SAFNAHÚSIÐ
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Hádegisleiðsagnir á föstudögum
fram að jólum
Jóladagatal í anddyri safnsins
Á eintali við tilveruna
Eiríkur Smith
Verk frá 1983 – 2008
Skuggaleikur
Laugardag 12. desember kl. 13-15
Listasmiðja fyrir 6–12 ára börn.
Leik- og fræðslustofur opnaðar
Laugardag 12. desember kl. 12-17
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is - sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
FRÉTTASKÝRING
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Velgengni íslenskra kvikmynda á al-
þjóðlegum kvikmyndahátíðum á
þessu ári hefur verið lyginni líkust
og á tímabili í haust og vetur leið
varla helgi án
þess að íslensk
mynd fengi verð-
laun á einni slíkri.
Morgunblaðið
bað Kvikmynda-
miðstöð Íslands
að taka saman
upplýsingar um
verðlaun sem ís-
lenskar myndir
hafa hlotið á sein-
ustu þremur ár-
um, 2013-15, og samkvæmt þeim er
árið sem er að líða algjört metár
þegar kemur að fjölda alþjóðlegra
verðlauna. Leiknar íslenskar kvik-
myndir, stuttmyndir og heim-
ildamyndir hafa hlotið 81 verðlaun á
þessu ári sem er ótrúlegur fjöldi og
magnaður þegar litið er til ársins í
fyrra sem þó var gott. Þá voru verð-
launin 34 og árið 2013 voru þau 31
talsins.
Einnig vekur athygli sigurför ís-
lenskra kvikmynda á þessum árum
á svokölluðum A-kvikmynda-
hátíðum, þ.e. umfangsmestu og virt-
ustu hátíðum heims sem eru 15 tals-
ins. Kvikmyndin Hrútar og
stuttmyndin Hvalfjörður hlutu verð-
laun á hátíðinni í Cannes, kvikmynd-
in Fúsi verðlaun í Kaíró, Þrestir og
Hross í oss hlutu báðar verðlaun á
hátíðinni í San Sebastián, Þrestir og
Hvalfjörður verðlaun í Varsjá,
Hross í oss í Tókýó, Vonarstræti í
Tallinn, XL í Karlovy Vary og stutt-
myndin Hjónabandssæla í Mont-
réal. Það gera 11 verðlaun á A-
hátíðum sem er stórkostlegur ár-
angur hjá svo smárri
kvikmyndaþjóð.
„Það hefur markvisst byggst upp
bæði reynsla og hæfni til viðbótar
við sköpunarkraftinn og góða sagna-
hefð. Leikstjórar hafa verið með
sterkar raddir og þetta eru líka allt
persónulegar raddir,“ segir Laufey
Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvik-
Reynsla, hæfni og sterkar raddir
Íslenskar kvik-, stutt- og heimildamyndir hafa hlotið 81 verðlaun á alþjóðlegum kvikmyndahátíð-
um það sem af er ári Gott gengi á A-hátíðum á borð við Cannes og San Sebastián vekur athygli
Morgunblaðið/Skapti
Óskar? Hrútar, kvikmynd leikstjórans Gríms Hákonarsonar, hefur farið sigurför um heiminn. Myndin er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2016 fyr-
ir bestu erlendu kvikmyndina og telur kvikmyndaritið Variety líklegt að hún verði ein fimm mynda sem muni berjast um verðlaunin. Á myndinni má sjá
Grímar Jónsson, framleiðanda myndarinnar, með Grími Hákonarsyni á Íslandsfrumsýningu myndarinnar í Laugabíói á Laugum 25. maí sl.
Laufey
Guðjónsdóttir
Eftirfarandi er yfirlit yfir verðlaun sem
myndir frá árunum 2012-15 hafa hlotið
fram að þessu, skv. upplýsingum frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands. Sá fyr-
irvari skal þó hafður á að ekki náðist í
aðstandendur tveggja stuttmynda,
Málarans og Ástarsögu, upp á end-
anlega staðfestingu á fjölda verðlauna.
Leiknar kvikmyndir
Hrútar (2015). 21 alþjóðleg verð-
laun, þau virtustu Un Certain Regard á
Cannes-kvikmyndahátíðinni.
Fúsi (2015). 12 alþjóðleg verðlaun,
þar af Norrænu kvikmyndaverðlaunin
og Dagur Kári valinn besti leikstjórinn
á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Kaíró.
Þrestir (2015). Sex alþjóðleg verð-
laun. Gullna skelin fyrir bestu mynd í
San Sebastián og besta myndin í 1.-2.
flokki alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
arinnar í Varsjá þau merkustu.
París norðursins (2014). Tvenn
Edduverðlaun árið 2015.
Harry & Heimir: Morð eru til alls
fyrst (2014). Ein Edduverðlaun 2015.
Vonarstræti (2014). Þrenn alþjóðleg
verðlaun, m.a. besti nýliðinn á Tallinn
Black Nights í Eistlandi 2014. Hlaut 14
Edduverðlaun 2015.
Hross í oss (2013). 20 alþjóðleg
verðlaun, þau merkustu Kutxa – New
Directors í San Sebastián árið 2013 og
Norrænu kvikmyndaverðlaunin árið
2014. Sex Edduverðlaun 2014.
Málmhaus (2013). 10 alþjóðleg verð-
laun og átta Edduverðlaun 2014.
XL (2013). Ein alþjóðleg verðlaun og
það merkileg, Ólafur Darri Ólafsson
var valinn besti leikari í aðalhlutverki á
kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary
2013.
Falskur fugl (2013). Ein alþjóðleg
verðlaun, aðalverðlaun Lighthouse
Film Festival í New Jersey 2014.
Djúpið (2012). 11 Edduverðlaun
2013.
Svartur á leik (2012). Þrenn Eddu-
verðlaun 2013.
Stuttmyndir
Brothers (2015). Ein alþjóðleg verð-
laun – sérstök viðurkenning dóm-
nefndar á Palm Springs Shortfest.
Zelos (2015). Fern alþjóðleg verð-
laun, þar af tvenn á Palm Springs
Shortfest.
Regnbogapartý (2015). Ein al-
þjóðleg verðlaun, London Calling á
samnefndri hátíð. Besta íslenska
stuttmyndin á RIFF, deildi þeim með
Heimildaminnd (2015).
Þú og ég (2015). Ein alþjóðleg
verðlaun, sérstök verðlaun héraðs-
stjórnar Bretagne á Brest European
Short Film Festival. Var einnig valin
besta íslenska stuttmyndin á North-
ern Wave-kvikmyndahátíðinni.
Ártún (2014). Sex alþjóðleg verð-
laun, þar af Gullni skjöldurinn á kvik-
myndahátíðinni í Chicago 2014.
Hjónabandssæla (2014). Fimm al-
þjóðleg verðlaun, m.a. besta stutt-
myndin í Montréal World Film Festi-
val 2014. Ein Edduverðlaun 2015.
The Pride of Strathmoor (2014).
Fimm alþjóðleg verðlaun, besta
norræna stuttmyndin á Nordisk
Panorama árið 2015 þau merkustu.
Sub Rosa (2014). Ein alþjóðleg
verðlaun, besta stuttmyndin á kvik-
myndahátíðinni í San Diego 2015 og
hlaut einnig sérstaka viðurkenningu
dómnefndar á RIFF 2014.
Hvalfjörður (2013). 40 alþjóðleg
verðlaun, þau merkustu sérstök
dómnefndarverðlaun í aðalkeppni
Hross í oss með 20 verð-
laun og Hvalfjörður 40
ÍSLENSKAR MYNDIR SÓPA AÐ SÉR VERÐLAUNUM
Verðlaunafjöld Guðmundur Arnar Guð-
mundsson, leikstjóri stuttmyndarinnar
Hvalfjörður sem hefur hlotið 40 verðlaun.