Morgunblaðið - 12.12.2015, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samkvæmt úttekt Rannsóknaseturs
verslunarinnar, sem unnin var fyrir
Samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ), varð 20% aukning í sölu fatn-
aðar í síðustu viku, miðað við sama
tíma í fyrra, Bókaverslun er einnig
sögð fara vel af stað fyrir jólin og
merkjanleg aukning er í sölu barna-
bóka. Greina mátti samdrátt í sölu
búsáhalda og heimilisbúnaðar en
einhver aukning varð í sölu raftækja.
Sala á spjaldtölvum er talin hafa
dregist saman og merki um að neyt-
endur kjósi fremur snjallsíma með
stóra skjái. Sala á ferðahátölurum og
heyrnartólum hefur hins vegar auk-
ist nokkuð.
Emil B. Karlsson hjá Rann-
sóknasetri verslunarinnar segir að
um lauslega úttekt sé að ræða, sem
gefi vísbendingu um hvernig jóla-
verslunin fari af stað. Upplýsingar
hafi fengist frá tveimur til þremur
stórum verslunum í hverjum flokki.
Hann bendir á að með „Black
Friday“ og „Cyber Monday“ hafi
jólaverslunin hafist fyrr og af þeim
völdum hafi fyrstu dagarnir í desem-
ber verið rólegri en oft áður. Þá hafi
fannfergi og óveður haft sitt að segja
um traffíkina. Emil bendir jafnframt
á að nýtt kortatímabil hefjist núna
viku seinna en fyrir síðustu jól, eða
12. desember í stað þess 5. í fyrra.
Þetta muni færa jólaverslunina aftar
í mánuðinum.
Fleiri sendingar að utan
Eins og kemur fram hér til hliðar
hefur verslun á netinu verið að
aukast. Það sést vel í tölum frá Hag-
stofunni um fjölda póstsendinga frá
öðrum löndum og verðmæti þeirra.
Á fyrstu 10 mánuðum ársins er fjöldi
sendinga um 250 þúsund og verð-
mætið um 1,5 milljarðar króna. Á
sama tíma í fyrra voru sendingarnar
um 243 þúsund. Allt síðasta ár var
fjöldi sendinga um 293 þúsund og
tollverðið nærri 1,8 milljarðar króna.
Til samanburðar var fjöldi sendinga
að utan um 187 þúsund og verðmæt-
ið rúmir 1,2 milljarðar. Sé farið enn
lengra aftur þá voru sendingar að ut-
an vegna netverslunar um 84 þúsund
árið 2008 og verðmætið tæplega 600
milljónir.
Lokanir fara illa í kaupmenn
En hvernig er hljóðið í kaup-
mönnum í upphafi jólavertíðar?
Gunnar Guðjónsson í Gleraugna-
miðstöðinni við Laugaveg, sem jafn-
framt er stjórnarformaður Samtaka
kaupmanna og fasteigendaeigenda
við Laugaveg, segir ágætt hljóð í
kaupmönnum, sem reyndar vilji
miklu frekar kalla félagsskapinn
Miðbæjarfélagið.
„Það eru allir tilbúnir að taka á
móti viðskiptavinum en þessar lok-
anir á Laugavegi fara illa í menn.
Það átti að vera meira um þetta en
að okkar tilmælum náðist sátt um að
hafa bara lokað um helgar. Um síð-
ustu helgi var kalt í veðri og þá hefði
nú verið betra að hafa allt opið. Þeir
sem ráða þessu hjá borginni taka
ekki mikið tillit til þess að það er vet-
ur,“ segir Gunnar.
Heiða Lára Aðalsteinsdóttir, sem
rekur fataverslunina Boutique Bella
á Skólavörðustíg, tekur undir með
Gunnari um að lokanir helstu versl-
anagatna í miðbænum leggist al-
mennt illa í kaupmenn, ekki síst á
þessum árstíma þegar allra veðra sé
von. „Það er verið að loka á ákveðna
hópa sem komast ekki leiðar sinnar
nema á bíl,“ segir hún.
Karlarnir fyrr á ferðinni
„Annars er búin að vera góð
stemning í bænum, það liggur vel á
fólki og verslunin fer vel af stað.
Miðað við síðustu ár hefur þetta
byrjað fyrr, sérstaklega hjá karl-
mönnunum. Það er líka að bætast
stöðugt í flóru verslana á svæðinu,“
segir Heiða Lára.
Sturla G. Eðvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, segir
viðskiptin vera að glæðast. „Það er
mikil og góð stemning í húsinu,
uppákomur á hverjum degi og bara
gott hljóð í verslunareigendum,“
segir hann. Verslanir verða nú leng-
ur opnar, eða til kl. 10 á kvöldin,
fram að jólum.
Spurður út í vöxt netverslunar
segir Sturla hana vissulega hafa ein-
hver áhrif en Smáralind hafi hvatt
kaupmenn til að líta á það sem tæki-
færi en ekki ógn.
Jólaverslunin að komast í gang
Aukin sala á fatnaði, bókum og raftækjum fyrir jólin Black Friday setti jólaverslun fyrr af stað
Veðrið dró úr aðsókninni Aukin sala gegnum netið Kaupmenn ósáttir við lokanir á Laugavegi
Morgunblaðið/Golli
Jólaverslunin Nú þegar aðeins 12 dagar eru til jóla fara kaup landsmanna á jólagjöfum og matvöru margskona að nálgast hámark.
Verslun gegnum netið færist í aukana ár frá ári. Það sést t.d. vel í greidd-
um virðisaukaskatti vegna kaupa á vörum gegnum vefverslanir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti ríkisskattastjóra námu þær greiðslur
414 milljónum kr. á síðasta ári, borið saman við 297 milljónir árið 2013.
Voru tölurnar fengnar á grunni gagna frá Íslandspósti.
Virðisaukaskattur af rafrænt afhentri þjónustu, eða niðurhali, var
tæpar 119 milljónir í fyrra og 114 milljónir árið áður.
Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs versl-
unarinnar, segir miklar breytingar eiga sér stað í inn-
kaupum fólks. Netverslun aukist jafnt og þétt og hefð-
bundnar verslanir séu farnar að nýta sér netið í meira
mæli, t.d. velji vörur á netinu og sæki þær í verslanir eða
noti jafnvel netið inni í verslunum.
„Netverslun sem slík er ekki að ógna hefðbundinni
verslun heldur styðja þær hver við aðra,“ segir Emil.
Hann bendir einnig á að greiðslumiðlun sé að breyt-
ast. Þannig nýti fleiri sér netgíró og fái rukkun beint í
einkabanka sinn, eða versli í gegnum símann,
framhjá kortafyrirtækjunum.
Aukinn vsk. af netverslun
BREYTT VERSLUNARMYNSTUR NEYTENDA
Emil B. Karlsson
ENGIN BANKASKÍTAFÝLA!
holar@holabok.is — www.holabok.is
Í þessari bráðskemmtilegu bók rekur Ásmundur Friðriksson sögu
Hrekkjalómafélagsins; segir frá hrekkjunum og viðbrögðunum og …
afleiðingunum sem urðu stundum alvarlegri en menn héldu í upphafi.
Halli í Turninum fær ís
Ráðherrahjónum er gert rúmrusk
Geir Jón handtekur Tóta rafvirkja
Sjálfvirkur sleppibúnaður er kynntur
til sögunnar
Össur Skarphéðinsson skartar skófari
á rassinum
Guðjón Hjörleifs prófar sjónvarpssíma
Logi Snædal gengur berfættur yfir flöskubrot
og margt fleira
Það er engin BANKASKÍTAFÝLA
af þessari bók!