Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
úruminjaskrá, svo sem Þjórsárver,
Guðlaugstungur, Kerlingarfjöll,
Orravatnsrústir og Hveravelli svo
dæmi séu nefnd.
Álag á svæðinu gæti aukist
„Með stofnun þjóðgarðs á svæð-
inu breytist áhersla friðlýsingar
þeirra svæða sem nú eru þegar frið-
lýst þannig að meiri áhersla er lögð
á félagslega náttúruvernd heldur en
nú er gert. Sem dæmi má nefna að
Þjórsárver eru nú flokkuð í flokki Ib
í flokkunarkerfi IUCN. Í þeim
flokki eru svæði sem eru venjulega
stór svæði sem eru lítt eða ekki mót-
uð af manninum og hafa haldið sín-
um náttúrulegu eiginleikum og
áhrifum. Innan svæða í flokki Ib er
ekki varanleg eða umtalsverð bú-
seta og verndun og stjórnun svæð-
anna miðar að því að varðveita nátt-
úrulegt ástand þeirra. Verði svæðið
friðlýst sem þjóðgarður færist
áherslan til þess að vera einkum til
vemdar vistkerfum og til útivistar
fyrir almenning.
Með þessum breytingum gæti
álag á svæðinu aukist og það er alls
óvíst að svæði eins og Þjórsárver
myndu þola það aukna álag ferða-
manna. Umhverfisstofnun telur því
rétt að kanna vel hvort þjóðgarður
sé heppilegasti flokkur friðlýsingar
eða hvort unnin verði vönduð svæð-
isskipting sem tekur tillit til mis-
munandi þols svæða fyrir umferð
hvers konar,“ segir í umsögn Um-
hverfisstofnunar.
Markmið gætu náðst í áföngum
Hjörleifur Guttormsson, fyrrver-
andi alþingismaður og ráðherra,
tekur efnislega undir tillöguna.
Hann bendir á nokkur efnisatriði,
m.a. segist hann telja rétt að halda
opnum möguleika á að umrætt
markmið náist í áföngum. Hann
nefnir Hofsjökulsþjóðgarð sem
dæmi um mikilvægan áfanga og
einnig Mýrdalsjökulsþjóðgarð með
Friðland að fjallabaki og landsvæði
vestur fyrir Heklu innan sinna
marka.
Náttúrufræðistofnun styður að
það verði skoðað af fullri alvöru að
stofna þjóðgarð sem taki yfir allt
miðhálendið. Svæðið verði þar með
gert að einni skipulagseiningu, sem
auðveldi margt en krefjist mikils
undirbúnings og samvinnu.
Veðurstofan lýsir ánægju með til-
löguna og telur mikilvæga þá um-
ræðu sem hún kann að skapa í sam-
félaginu.
Þjóðgarður á öllu miðhálendinu
Verði að veruleika vorið 2018 samkvæmt þingsályktunartillögu Vinstri grænna Umhverfis-
stofnun segir að álag gæti aukist og óvíst að svæði eins og Þjórsárver myndu þola slíkt
Þjóðgarður á miðhálendinu
Kerlingarfjöll
Hveravellir
Veiðivötn
Vatnajökull
Kj
al
ve
gu
r
Sp
re
ng
is
an
du
r
Askja
Mýrdalsjökull
Landmannalaugar
Langjökull
Hofsjökull
Þórsmörk
Skiptar skoðanir
» Ferðamálastofa fagnar til-
lögunni enda séu fjölmargir
ferðamannastaðir á hálendinu
utan friðlanda og þjóðgarða og
njóti þar af leiðandi hvorki
verndar né fjármagns til upp-
byggingar nema í undantekn-
ingatilfellum.
» Samorka minnir á að Íslend-
ingar standi nú þegar mjög
framarlega á sviði náttúru-
verndar. Að mati Samorku eru
ekki sérstök rök fyrir að ráðist
verði í stofnun þjóðgarðsins
með tilheyrandi kostnaði.
» Bæjarráð Árborgar áréttar
að þess verði gætt að hafa
samráð við hagsmunaaðila,
svo sem vegna upprekstrar- og
beitarréttar á svæðinu.
» Stjórn Félags leiðsögu-
manna og Landvernd styðja til-
löguna, en byggðarráð Blá-
skógabyggðar er á móti.
„Landsvirkjun hefur ekki aðra skoðun á því hvort
myndaður verði þjóðgarður sem kenndur er við
miðhálendið en að hann verði afmarkaður með
langtímahagsmuni þjóðarinnar í huga, þar á meðal
þörf okkar fyrir raforku til brýnna eigin þarfa svo
sem samgangna og til að efla og viðhalda fjöl-
breytni í atvinnulífi landsmanna, m.a. með því að
taka að okkur verkefni sem annars myndu unnin
með aðstoð ósjálfbærrar orkuvinnslu.“
Þannig segir meðal annars í umsögn Landsvirkj-
unar um þjóðgarð á miðhálendinu. Þar er bent á
orkuvinnslukosti sem hafi verið til umfjöllunar í
rammaáætlun. Landsvirkjun hefur ekki lagt fram
alla þessa kosti, en telur rétt að benda á þá við um-
fjöllun um þjóðgarðinn.
Þeir eru: Skatastaðavirkjun, Hrafnabjargavirkjun
ásamt virkjun við Fljótshnjúk, Fremri-Námar austan
Bárðardals, virkjun í Skaftá, Hólmsárvirkjun (snert-
ir líklega ekki efni þingsályktunarinnar), Há-
gönguvirkjun, Skrokkölduvirkjun, Kjalölduveita,
Bjallavirkjun og Tungnaárlón og vindlundir við
Þjórsá og Blöndu.
Landsvirkjun bendir einnig á að við úrvinnslu til-
lögunnar þurfi einnig að leiða til lykta með hvaða
hætti orkukerfi landsins (orkuver) eru tengd saman,
en einn af þeim kostum sem eru til skoðunar varðar
miðhálendið.
Tilgangur og markmið
„Landsvirkjun vill að endingu benda á, komi til þess
að stofnaður verði þjóðgarður eins og hér er gerð
tillaga um, að brýnt er að fram komi með skýrum
hætti hver sé tilgangur og markmið með stofnun
þjóðgarðsins og að ávallt fylgi áætlun um vöktun og
aðgerðir ef markmið nást ekki.
Þetta er sérstaklega mikilvægt til að unnt sé að
meta umsóknir um landnotkun og nýtingu auðlinda
innan svæðisins sem afmarkað er og heimila notkun
stangist hún ekki á við tilgang eða markmið þjóð-
garðsins,“ segir í umsögn Landsvirkjunar.
Langtímahagsmunir verði hafðir í huga
FRAM KOMI MEÐ SKÝRUM HÆTTI HVER SÉ TILGANGUR OG MARKMIÐ MEÐ STOFNUN ÞJÓÐGARÐSINS
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ýmissa grasa kennir í umsögnum
um þingsályktunartillögu um þjóð-
garð á miðhálendinu. Hagsmunir
samtaka og stofnana eru mismun-
andi og sjónarmiðin vegast á í um-
sögnum. Það er þingflokkur Vinstri
grænna sem leggur tillöguna fram
og var skylt mál flutt á síðasta þingi.
Fyrsti flutningsmaður er Katrín
Jakobsdóttir, formaður VG.
Ómetanlegt gildi
Í tillögunni er gert ráð fyrir að Al-
þingi álykti að fela umhverfisráð-
herra að undirbúa og hrinda í fram-
kvæmd, í samstarfi við hlutað-
eigandi aðila, stofnun þjóðgarðs sem
taki yfir allt miðhálendi Íslands.
Ráðherra leggi áætlun um þjóð-
garðsstofnun og ráðstafanir sem
gera þarf vegna verkefnisins fyrir
Alþingi á haustþingi 2017 með það
að markmiði að miðhálendisþjóð-
garður verði stofnaður vorið 2018
þegar 90 ár verða liðin frá því að
sett voru lög um friðun Þingvalla.
Í greinargerð með tillögunni segir
meðal annars: „Hugmyndir og áætl-
anir um stórfellda mannvirkjagerð á
miðhálendi Íslands ganga meðal
annars út á vatnsaflsvirkjanir, lagn-
ingu raflína og gerð uppbyggðra
vega. Allt er þetta til þess fallið að
svipta þetta landsvæði, og þar með
landið í heild, mikilsverðum sér-
kennum og eiginleikum sem erfitt
eða ómögulegt er að endurheimta en
hafa ómetanlegt gildi í sjálfum sér
og búa auk þess yfir aðdráttarafli
fyrir fjölda ferðamanna, innlendra
og erlendra, sem nú gegna stóru
hlutverki í hagkerfi landsins.“
Fjármunir fylgi
Samtök ferðaþjónustunnar fagna
almennt hugmyndum um stofnun
þjóðgarða á svæðum sem nauðsyn-
legt er að vernda. „Það verður þó að
benda á að það er ekki nægilegt að
stofna þjóðgarða. Það þurfa að
fylgja þeim fjármunir til uppbygg-
ingar og skipulagningar, það er til
dæmis nauðsynlegt að góð aðstaða
sé sköpuð fyrir fyrirtækin til að fara
með ferðamenn um svæðið og mótuð
sé atvinnustefna fyrir þjóðgarðana,“
segir í umsögn Samtaka ferðaþjón-
ustunnar.
Umhverfisstofnun telur hugmynd
um stofnun þjóðgarðs á öllu miðhá-
lendinu áhugaverða og vel þess virði
að skoða nánar. Gera megi ráð fyrir
að þjóðgarðurinn muni þá ná yfir
svæði sem eru friðlýst eða á nátt-
Þjóðgarður Svæðið hefur ekki verið nákvæmlega afmarkað, slíkt kæmi í hlut umhverfisráðherra ef af yrði.
Havarti er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst
framleiðsla á honum árið 1987. Ostinum var upphaflega
gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havarti varð til
um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu,
Hanne Nielsen. Havarti er mildur, ljúfur og eilítið
smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum
og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með
fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og
eplum.
HAVARTI
FJÖLHÆFUR
www.odalsostar.is