Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Frá því að úrskurðarnefnd í vátrygg- ingarmálum tók til starfa fyrir um 20 árum hefur málafjöldi aukist nokkuð. Fyrsta heila starfsárið, 1995, voru felldir 256 úrskurðir en flestir urðu þeir árið 2012, eða 542. Síðan þá hefur dregið úr fjölda mála, voru 428 árið 2013 og 374 úrskurðir 2014. Það sem af er þessu ári hafa 427 mál verið skráð, en þau enda ekki öll sem úr- skurðir þar sem í nokkrum málum er samið um niðurstöðuna. Einnig er nokkrum málum vísað frá árlega. Frá upphafi hafa um 6.500 úrskurðir verið felldir hjá nefndinni. Ekki eru gefnar upplýsingar um hvernig málafjöldinn skiptist milli tyggingafélaga þar sem kveðið er á um nafnleynd málsaðila í samþykktum um nefndina. Hægt að leita til dómstóla Á vef Fjármálaeftirlitsins, sem vist- ar nefndina, er að finna yfirlit um starfsemi nefndarinnar, þar sem allir úrskurðir eru birtir og ýmsar aðrar upplýsingar. Nefndin tók til starfa á haustmánuðum 1994, samkvæmt sam- komulagi fjármálaráðuneytisins, Neytendasamtakanna og Samtaka fjármálafyrirtækja. Meginmarkmiðið er að fjalla um ágreining neytenda og tryggingafélaga. Hlíti neytendur ekki úrskurði nefndarinnar er hægt að fara með málin fyrir dómstóla. Reglulega koma slík mál upp en tölfræði um það liggur ekki fyrir. Almenna reglan er að úrskurðirnir eru bindandi fyrir tryggingafélögin en þau geta andmælt niðurstöðu og hafa til þess tveggja vikna frest frá uppkvaðningu úrskurð- ar. Þegar yfirlitið á vef FME er skoðað vekur athygli að sjaldnar er úrskurðað neytendum í hag en áður. Á fyrstu mánuðum 1994, frá september til ára- móta, voru tekin fyrir aðeins 36 mál og í 52,7% tilvika hafði málskotsaðili sig- ur. Á næstu árum, 1995-1996, vannst sigur í 43% málanna en síðan þá hefur hlutfallið lækkað jafnt og þétt. Var það komið niður í rúm 20% árið 2013 en fór síðan í 26% árið 2014. Frá 2007 hefur hlutfallið verið undir 30%, eins og sést nánar á meðfylgjandi grafi. Tjónanefnd lögð niður Spurð um skýringar á þessu segir Sigrún Ögmundsdóttir, starfsmaður nefndarinnar, enga stefnubreytingu hafa orðið í umfjöllun nefndarinnar. Hún bendir á að málum hafi um tíma fjölgað verulega og þegar málafjöld- inn var mestur þá fjölgaði einnig þeim málum sem vísað var frá. Getur nefndin vísað málum frá ef þau eru óljós, illa upplýst eða krafa svo óskýr að hún sé ótæk til úrskurðar. „Einnig sáum við breytingu á kær- um þegar vátryggingafélögin haustið 2008 hættu með sameiginlega tjóna- nefnd félaganna, nema í þeim málum sem vörðuðu árekstra. Þá varð mikil aukning á öðrum málum fyrir nefnd- inni, eins og ábyrgðartryggingu at- vinnurekstrar, fjölskyldutryggingu og fleira. Komu þá inn fleiri mál sem kannski ekki var eins sterkur grunur eða ástæða fyrir að kæra til nefnd- arinnar,“ segir Sigrún, og bendir jafnframt á að áður en til úrskurðar komi sé samið í mun fleiri málum í dag en áður. Á þessu hafi orðið aukn- ing síðustu 2-3 ár. Sigrún er eini starfsmaður nefnd- arinnar en nýtur einnig aðstoðar rit- ara FME við að taka við málum þeg- ar málafjöldinn er hvað mestur. Þrátt fyrir fjölgun mála segir Sig- rún að tekist hafi að halda afgreiðslu- tíma mála að mestu óbreyttum. Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs hefur meðaltíminn verið fimm og hálf vika, eða frá því að málskot er skráð þar til úrskurður liggur fyrir. Að jafnaði fara tvær vikur í gagnaöflun en Sig- rún segir tölvutæknina hafa hjálpað til við að halda afgreiðslutíma niðri. Sjaldnar sigur í úrskurðarnefnd  Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum hefur fellt um 6.500 úrskurði  Tryggingafélög njóta nafn- leyndar í úrskurðum  Hlutfallslega færri mál en áður enda neytendum í vil  Samið í fleiri málum Morgunblaðið/Ernir Ökutækjatjón Flest málanna hjá úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum tengjast tjóni á ökutækjum, eða um þriðj- ungur allra mála. Næst þar á eftir koma mál sem tengjast ábyrgðartryggingum í atvinnurekstri, eða um 20% mála. Fjármálaeftirlitið (FME) vistar úrskurðarnefnd í vátrygging- armálum. FME tekur við mál- skotum neytenda, sér nefndinni fyrir fundaraðstöðu og annast almennt skrifstofuhald fyrir nefndina. Aðalmenn eru Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur, sem er formaður, Jón Magn- ússon hrl. og Valgeir Pálsson hrl. Varamenn eru Sóley Ragn- arsdóttir lögfr., varaformaður, Ólafur Lúther Einarsson hrl., Sigurður Óli Kolbeinsson hdl. og Sævar Þór Jónsson hdl. Hægt er að nálgast málskots- eyðublöð á vef FME en ekki er tekið við málskoti nema sér- stakt gjald upp á 6.000 kr. sé greitt. Fæst það endurgreitt ef mál fellur niður eða það vinnst. Vistuð hjá FME ÚRSKURÐARNEFNDIN Úrskurðir í vátryggingamálum 1995-2014* Úrskurðir (v. ás) Sigur málskotsaðila í % (h. ás) 600 500 400 300 200 100 0 50% 40% 30% 20% 10% 0% 199 6 199 8 20 00 20 02 20 04 20 10 20 12 20 06 20 08 20 14 * Haustið 1994 hóf úrskurðarnefnd vátryggingamála störf. Frá september til áramóta voru 36 málskot og í 52,7% tilvika var úrskurðað málskotsaðila í vil. Heimild: FME Úrskurðarnefndin fær til sín hin fjölbreyttustu mál, og eins og kem- ur fram hér að ofan skilar það ekki alltaf árangri fyrir viðskiptavini tryggingafélaganna. Í einu þeirra vildi eigandi báts í smábátahöfninni í Neskaupstað fá bætur úr ábyrgðartryggingu sveit- arfélagsins þegar möl fauk á bátinn í miklu hvassviðri í mars 2014. Möl- in kom úr malarhaug við flugstöð- ina og var á vegum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar vegna jarðvegs- vinnu fyrir hafnarsjóð. Taldi eigandi bátsins að Fjarða- byggð hefði borið ábyrgð á tjóninu á bátnum, þar sem ekki hefðu verið gerðar ráðstafanir til að hefta fok úr malarhaugnum, t.d. með því að breiða net yfir hauginn og fergja hann. Krafðist eigandi bátsins bóta úr ábyrgðartryggingu Fjarða- byggðar en tryggingafélagið hafn- aði bótaskyldu. Nefndin segir í sínum úrskurði að þótt mölin hafi komið úr haugn- um verði ekki séð í ljósi þess veðurs sem geisaði að það verði virt sveit- arfélaginu til sakar þótt ekki hafi verið gerðar ráðstafanir til að hefta fok úr haugnum áður en veðrið skall á. Bótakröfu sé því hafnað. Hafnað Möl fauk frá flugstöð á smábát Stundum borgar sig að fara með málin lengra ef tryggingafélögin neita að greiða bætur. Úrskurðar- nefndin fékk á borð til sín þessa tjónstilkynningu, um óhapp á vinnustað einum þar sem verið var að kveðja einn fráfarandi sam- starfsfélaga: „Slasaði var að hlaupa með vatnsfötu í fanginu og datt. Innlegg í skóm virðist hafa runnið til inn í skónum þannig að hann misstígur sig og dettur á bílastæðinu.“ Gerðist þetta í lok vinnudags en tryggingafélag vinnuveitandans féllst ekki á að hinn slasaðist hefði slasast í starfi innan vinnutíma síns. Það að skvetta úr vatnsfötu á sam- starfsfélaga sé ekki „í nokkrum tengslum við framkvæmd starfs- ins“. Úrskurðarnefndin taldi hinn slas- aða hins vegar eiga rétt á bótum úr slysatryggingu vinnuveitandans, þar sem óhappið hefði átt sér stað á vinnutíma. Ekki hefði verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að vinnudegi mannsins hefði verið lok- ið. Ósannað hefði verið að trygg- ingafélagið gæti takmarkað ábyrgð sína vegna háttsemi mannsins, t.d. vegna stórkostlegs gáleysis. Samþykkt Datt með vatnsfötu á vinnutíma ÖMMUR VITA BEST. Þess vegna notum við bara Pillsbury Best í baksturinn. Próteinríka, ameríska, vítamínbætta hveitið sem amma notaði – og amma hennar líka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.