Morgunblaðið - 12.12.2015, Side 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Hillary Clinton var spáð sigri fram-
an af í forkosningum Demókrata-
flokksins fyrir forsetakosningarnar
2008. Upp úr áramótunum 2007-’08
fór að draga saman með henni og
Barack Obama og að lokum fór svo
að hún dró framboð sitt til baka í
júní 2008. Kosn-
ingabarátta
hennar þá var
talsvert gagnýnd,
m.a. fyrir að
henni hafi ekki
tekist að gefa
nógu jákvæða
mynd af sjálfri
sér. Mörgum
stjórnmálaskýr-
endum þykir
kveða við annan
tón nú, þeirra á meðal er Silja Bára
Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræð-
ingur.
„Ég sé heilmikinn mun á kosn-
ingabaráttu Hillary Clinton nú og
árið 2008,“ segir Silja Bára sem fylg-
ist grannt með gangi mála í barátt-
unni fyrir forkosningarnar vestan-
hafs. „Þá fannst mér og mörgum það
skína í gegn að hún teldi sig eiga til-
kall til forsetastólsins og því fylgdi
ákveðinn hroki. Hún virðist hafa
lært af því og sýnir núna ákveðna
auðmýkt, sem ég held að komi henni
til góða. Ég held að hún hafi áttað
sig á því að hún þarf að vinna fyrir
hverju einasta ríki, hverju einasta
atkvæði. Hún er ekki að fara að
slaka á og bíða eftir að atkvæðin
komi til hennar, þó hún sé með
mesta fylgið núna.“
Önnur breyting sem Silja Bára
segist merkja í málflutningi Clinton
er að nú leggur hún miklu meiri
áherslu á jafnrétti kynjanna. Hugs-
anlega eigi slíkur málflutningur og
framganga meira upp á pallborðið
hjá Bandaríkjamönnum nú en fyrir
átta árum. „Þá lagði hún ekki jafn
mikla áherslu á að hún væri kona en
núna virðist hún þora að stíga fram í
krafti kyns síns.“
Lítið hefur borið á eiginmann-
inum, fyrrverandi forsetanum, það
sem af er kosningabaráttunni og
segir Silja Bára að hugsanlega gæti
orðið breyting þar á um áramótin,
þá muni kosningabaráttan komast á
annað stig og „stóru kanónurnar“ og
stóru málefnin dregin fram.
Útnefningin er ekki tryggð
Fyrstu forkosningarnar verða í
Iowa-ríki 1. febrúar og þær síðustu í
júní. Formlegt val á forseta-
frambjóðanda fer síðan fram á
landsfundi Demókrataflokksins sem
haldinn verður Pennsylvaníu-ríki í
lok júlí. Forsetakosningar verða síð-
an haldnar 8. nóvember. Núna
mælist Hillary með langmest fylgi
þeirra þriggja demókrata sem gefa
kost á sér í forkosningunum, en Silja
Bára segir alls ekki tryggt að hún
hljóti útnefninguna. „Það má ekki
gleyma því að á svipuðum árstíma
árið 2007 var hún mjög öruggur leið-
togi, en það breyttist hratt þegar
Obama fór að sækja í sig veðrið.“
Hillary hefur óneitanlega mikla
reynslu – hún er fyrrverandi for-
setafrú og þekkir því vel til embætt-
isins, hún var öldungadeildar-
þingmaður og utanríkisráðherra.
Getur þessi pólitíska fortíð staðið í
vegi fyrir henni? „Já og nei. Hún
hefur svarað opinberlega fyrir ýms-
ar umdeildar ákvarðanir sem hún
tók í ráðherratíð sinni og tekist það
mjög vel,“ segir Silja Bára.
Skiptir miklu máli að næsti forseti
Bandaríkjanna sé kona? „Já, gífur-
lega miklu máli. Það eru ekki marg-
ar konur sem eru kjörnir þjóðhöfð-
ingjar í heiminum og hver einasta
hreyfing í þessa átt skiptir máli, sér-
staklega þegar um valdamikið ríki
eins og Bandaríkin er að ræða.
Bandaríkin eru að mörgu leyti mjög
aftarlega á merinni hvað varðar
jafnréttismál og ég held að það
myndi bæta ásýnd landsins mikið út
á við.“
Heldurðu að hún yrði góður for-
seti? „Hún er að mörgu leyti ekkert
sérlega góður frambjóðandi, en ég
held að hún gæti orðið góður forseti.
Hún er svolítill stjórnsýslunörd, hún
sökkvir sér niður í mál og kynnir sér
þau vel. Hún er fljót að átta sig á að-
stæðum og taka ákvarðanir af yf-
irvegun og ígrundun. Ég held að
þessir eiginleikar séu góðir fyrir for-
seta.“
Hún þarf að vinna fyrir
hverju einasta atkvæði
Stóru kanónurnar verða dregnar fram upp úr áramótum
Silja Bára
Ómarsdóttir
Hún var farsæll lögfræðingur með
eigin rekstur, þénaði fimm sinnum
meira en eiginmaðurinn og hafði lát-
ið til sín taka á ýmsum sviðum. Vet-
urinn 1991-’92, þegar Bill Clinton,
ríkisstjóri í Arkansas, sóttist eftir
tilnefningu demókrataflokksins til
forsetaframboðs, var eiginkona
hans, hin 44 ára Hillary Rodham
Clinton, á hvers manns vörum. Hún
þótti öðruvísi en fyrrverandi forseta-
frúr og margir Bandaríkjamenn
vissu einfaldlega ekki hvað þeim átti
að finnast um þessa konu, sem sagð-
ist hafa ýmislegt þarfara við tíma
sinn að gera en að vera heima og
baka smákökur.
Bill Clinton var forseti Bandaríkj-
anna 1992-2000 og seinni hluti for-
setatíðar hans einkenndist af
hneykslismálum, upp komst um ást-
arsamband hans við ungan lærling í
Hvíta húsinu, Monicu Lewinsky, og
hjónin voru orðuð við bankahneyksli
sem kennt var við Whitewater-
fasteignafélagið. Síðan hann lét af
embætti árið 2000 hefur Bill Clinton
m.a. starfað að mannúðarmálum,
haldið fyrirlestra og unnið fyrir
Demókrataflokkinn.
AFP
Breyttir tímar Áður var Hillary oft í bakgrunninum þegar myndir voru
teknar af þeim Bill. En nú er það hún sem er í framboði og í sviðsljósinu.
Í Hvíta húsið á ný?
Ljósmynd/Facebooksíða Hillary Clinton
Fjölskyldan Með einkadótturina
Chelsea sem fæddist árið 1980.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
Laxinn okkar er einungis unninúr ferskum laxi og þurrsaltaður
með sjávarsalti.
Saltinnihald er einungis 2%.
G
kryddaður með einstakri
kryddblöndu.
F
ingu eru gamlar verkhefðir
virtar, sem skilar sér í mildu bragði
sem gælir við bragðlaukana.
Ómissandi á jólaborðið
Reyktur og