Morgunblaðið - 12.12.2015, Page 50

Morgunblaðið - 12.12.2015, Page 50
50 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Íbúar Hamborgar hafa valdið bæði Angelu Merkel kanslara og Thomas Bach, forseta Alþjóðaólympíunefnd- arinnar (IOC), miklum vonbrigðum með því að dæma borgina úr leik í keppninni um framkvæmd Ólympíu- leikanna árið 2024. Ráðamenn í Ham- borg játuðu að fyrir þá væru úrslitin áfall en engin tilraun yrði gerð til að reyna gæða umsóknartilraunina nýju lífi. Samþykktu 48,4% íbúanna að sótt skyldi um leikana 2024 en á móti í kosningunum 29. nóvember voru 51,6%. Fjarað hafði jafnt og þétt und- an stuðningi við málið, 64% sögðust styðja umsóknina í vor en 56% í haust og trúðu samt flestir – líka andstæð- ingar málsins – að meirihlutinn yrði með umsókninni. Embættismenn óttast að höfnun Hamborgara geti átt eftir að reynast þýsku afreksíþróttastarfi áfall en mótshaldi hefur yfirleitt alltaf fylgt mikill uppgangur í íþróttalífi viðkom- andi landa. Sérfræðingar segja að tíð- indin séu einnig slæm fyrir Alþjóða- ólympíunefndina. Hamborg sé hvorki fyrsta né væntanlega heldur síðasta borgin sem snýr baki við hugmynd- inni um að verja milljörðum til 16 daga skrauthátíðar sem IOC skrifi dagskrána fyrir – og hugsanlegur ávinningur skili sér ekki fyrr en síðar meir. Er niðurstaðan lá fyrir sagði Chris- tiane Wirtz, talsmaður kanslarans, að Merkel væri hrygg yfir úrslitunum. „En auðvitað virðir hún vilja íbúanna. Til þess eru atkvæðagreiðslur haldn- ar, að fá fram hvað fólkið vill. Og aug- ljóslega vilja Hamborgarar ekki Ól- ympíuleikana,“ sagði Wirtz. Hamborg var ein fimm borga sem eftir voru í keppninni um leikana 2024, hinar sem áfram þrauka eru Róm, París, Búda- pest og Los Angeles. Önnur höfnunin á tveimur árum „Við bjuggumst við annarri niður- stöðu,“ segir Nikolas Hill, fram- kvæmdastjóri umsóknarnefndarinnar þýsku. „En úrslitin eru tær og við verðum að taka þeim. Málið verður ekkert hugsað upp á nýtt. Fólkið sagði nei. Niðurstaðan er beiskur bik- ar að bergja á en lýðræðislegum úr- slitum verða menn að taka. Við höfum alltaf sagt að umsókn yrði því aðeins árangursrík að íbúarnir styddu hana og þráðu leikina.“ Þetta er í annað sinn á tveimur ár- um sem þýskir kjósendur skjóta niður ólympísk áform ráðamanna. Áður höfðu íbúar München fellt í atkvæða- greiðslu umsókn um vetrarleikana 2022. „Árásirnar í París, HM í fót- bolta 2006, flóttamannavandinn og lyfjahneyksli hafa ekkert með þetta að gera, en hafa truflað fólk og skap- raunað því,“ segir Hill en fæstir eru honum sammála. Til að mynda IOC- forsetinn Bach sem skrifar niðurstöð- una á þessa þætti fyrst og fremst. „Viðbjóður og vantraust“ Þótt ástæður höfnunarinnar séu af mörgum toga þá er straumur flótta- manna til landsins og kostnaður sem því fylgir og ótti um öryggi borgar- anna eftir hryðjuverkin í París talið til þess sem einna mest áhrif hefði haft á afstöðu kjósenda. Ennfremur var látið í veðri vaka að borgarbúum hefði sýnst borgarstjórinn Olaf Scholz einungis hafa viljað fá leikana til borgarinnar til að réttlæta metn- aðarfulla og rándýra áætlun um þró- unar- og uppbyggingarverkefni hennar. Þá segja sérfræðingar að kreppa heimssambanda fótboltans (FIFA) og frjálsíþróttanna (IAAF), sem sæta glæparannsókn vegna spillingar og lyfjahneykslismála, eigi líka sinn þátt í höfnuninni. „Viðbjóður og vantraust í garð íþróttanna beinist nú að sam- tökum hringanna, milljarðafyrirtæk- inu IOC,“ sagði blaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung í leiðara. Og bætti við að úrslitin í Hamborg væru eins og blaut tuska í andlitið á Bach, hinum þýska forseta Alþjóðaólympíu- nefndarinnar. Heimablaðið Ham- burger Abendblatt var ekki með hýrri há eftir kjörið. Sakaði það í leið- ara sínum alla þá sem sagt höfðu nei um bera ábyrgð á því að hafa komið Hamborg í kröggur sem borgin yrði í áratugi að vinna sig út úr. Stjórnmálafræðingurinn Kai-Uwe Schnapp í Hamborg segir að útilokað hafi verið að sjá fyrir áhrif hryðju- verkanna í París á umsóknina. Hann segir að umfjöllun um málið í hefð- bundnum fjölmiðlum hafi ef til vill ekki gefið rétta mynd, raunveruleik- inn hafi verið annar en þar kom fram. Aftur á móti hafi allt önnur sjónarmið – og nær því sanna – komið í ljós á samfélagsmiðlunum Facebook og Twitter. Víti til að varast Alfons Hörmann, formaður Ól- ympíunefndar Þýskalands (DOSB), segir að fengin sé lýðræðisleg niður- staða sem beri að virða. „Auðvitað eru úrslitin okkur öllum áfall. Meirihlutinn hefur tjáð sig og hann vill ekki leikana. Það var alltaf okkar afstaða að ekkert yrði úr um- sókninni ef íbúarnir legðust gegn henni. Okkur þykir samt leitt að geta ekki fært Hamborg leikana. Þýska- land og ólympíuhugsjónin eiga ekki samleið sem stendur,“ sagði hann og bætti við að finna yrði upp á öðrum aðferðum til að örva þýskt íþróttalíf. Framkvæmdanefndin í Hamborg hafði áætlað að kostnaður við leika- hald 2024 yrði um 11,2 milljarðar evra. Þar af legðust 1,2 milljarðar evra á borgarsjóð, útsvarsgreiðendur borgarinnar með öðrum orðum. And- stæðingar leikahaldsins héldu því til streitu að það gæti ekki heyrt til for- gangsverka að verja slíkum fjár- munum í stærstu íþróttahátíð heims. Þá lágu engin fyrirheit fyrir frá rík- isstjórninni um þátttöku hennar í kostnaðinum og langþreyttir á slakri fjármálastjórn í Hamborg og halla- rekstri treystu borgarbúar einfald- lega ekki loforðum um að leikarnir yrðu sjálfbærir. Því þykja blasa við að áform um mikla uppbyggingu í Hamborg muni um ókomin ár ekki komast út úr tölvum borgarkerfisins. Talið er að nýlegar uppljóstranir um meintar mútugreiðslur Knatt- spyrnusambands Þýskalands (DFB) í tengslum við HM í fótbolta 2006 hafi bitnað á ólympíudraumum Hamborg- ar. Sambandið hefur verið sakað um að hafa komið sér upp 10 milljóna dollara leynisjóði með greiðslum frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) og notað féð til að kaupa HM til Þýskalands með því að borga fyrir stuðning er atkvæði voru greidd um mótshaldið. Sætir DFB sérstakri rannsókn vegna þessa. Þverrandi áhugi á leikahaldi Brotthvarf Hamborgar úr keppn- inni um leikahaldið þykir áfall fyrir IOC sem á undanförnum árum hefur mátt horfa upp á þverrandi áhuga þróaðra ríkja á að halda Ólympíu- leika. Í keppninni um vetrarleikana 2022 drógu fjórar borgir af sex sig úr keppninni á miðri leið, München, Stokkhólmur, Ósló og Krakow, svo eftir stóðu aðeins Almaty í Kasakstan og Peking í Kína. Höfnunin grefur einnig undan víð- tækum breytingum – svonefndri Verkskrá 2020 – sem samþykkt var í fyrra og ætlað er, í framhaldi af tíðu brotthvarfi umsóknarborga, að gera umsókn um leikahaldið eftirsóknar- verðara í augum hugsanlegra gest- gjafaborga. Alþjóðaólympíunefndin er ekki eina hreyfingin sem hefur á brattann að sækja í tilraunum til að fá borgir til að sækja um stórmót. Fyrr á árinu útnefndi Samveldisleikja- sambandið Durban í Suður-Afríku sem gestgjafa Samveldisleikanna 2022 en hún var ein um að sækja um leikana. „Ólympíuhugsjónin jörðuð“ Blaðið Süddeutsche Zeitung (SZ) sagði í leiðara daginn eftir kosn- inguna að „ólympíuhugsjónin hefur verið jörðuð til langrar framtíðar. Það hlýtur að vera skelfilegt fyrir þær íþróttir sem njóta sín á hinum stóra heimsvettvangi á fjögurra ára fresti. Úrslitin geta ekki geðjast IOC- forsetanum Thomas Bach. Þau sýna að áætlun hans um umbætur á Al- þjóðaólympíunefndinni eru ekki sann- færandi.“ Þessu er gamalreyndur sérfræð- ingur um ólympíumál, bandaríski blaðamaðurinn Alan Abrahamson, sammála. Á vefsíðunni 3wiresports segir hann að fyrir IOC sé höfnun Hamborgar „djúpstæður vörumerk- isvandi“ fyrir leikana. Áform hennar um að gera leikana ódýrari og sjálf- bærari hafi beðið skipbrot. „Þegar fólk vill ekki leikana er eitthvað veru- lega mikið að. Og á undanförnum mánuðum í Evrópu, hinu hefðbundna vígi IOC, hafa kjósendur og opinberir fulltrúar með vaxandi hætti gert ljóst, að þeir annaðhvort vilja ekki sjá eða beinlínis hræðast ólympíumerkið,“ segir hann. Ekki á dagskrá í heila kynslóð Clemens Proko, formaður þýska frjálsíþróttasambandsins, segir að úr þessu verði Ólympíuleikahald „ekki á dagskrá í Þýskalandi í heila kynslóð“ og Julius Beucher hjá íþróttasam- tökum fatlaðra (DBS) segir að þýsk- um íþróttum hafi verið synjað um stórt tækifæri til að eflast og láta ljós sitt skína. Vetraríþróttasambönd hörmuðu einnig höfnun Hamborgar og töluðu um „meiriháttar ógæfu“, eins og Andreas Trautwetter, leiðtogi bobsleðasambandsins, sagði. „Við samþykkjum tveggja stafa milljarða- tölur til að bjarga bönkum og hýsa flóttamenn og viljum láta líta út fyrir að við séum umburðarlynd þjóð. En svo viljum við samt ekki bjóða æsku heimsins til mestu og mikilvægustu afreksíþróttahátíðar veraldar,“ bætti Trautwetter við. Í Bandaríkjunum varð að leita að nýjum valkosti vegna leikanna 2024 eftir að Boston dró sig til baka og Toronto í Kanada hætti við. Niður- staðan var að Los Angeles mun keppa um hnossið við París, Búdapest og Róm. Síðastnefnda borgin hætti við umsókn vegna leikanna 2020 af fjár- hagslegum ástæðum en er nú aftur komin í slaginn. Þessi hópur er IOC þóknanlegur því mannréttindamál munu ekki skyggja á ferlið og keppn- ina eins og slagur Peking í Kína og Al- maty í Kasakstan um vetrarleikana 2022. Engin þessara borga hefur leit- að álits íbúanna eins og Hamborg gerði og því er á huldu hvort þeir kæri sig um leikahald eða ekki. Borgarstjóri Parísar var á móti Ákvörðun Hamborgar að hætta við að sækja um leikana er talin geta styrkt umsókn Frakka sem ákveðið hafa að freista þess að fá leikana til Parísar hundrað árum eftir fyrri sum- arleika þar í landi. Þá ákvörðun knúði forsetinn, Francois Hollande, fram heima fyrir og knúði borgarstjóra Parísar, Anne Hidalgo, til fylgis við hana. Hafði hún opinberlega lagst gegn umsókninni á þeirri forsendu að borgin gæti ekki staðið undir kostn- aði. Ekkert lægi á og betra væri að bíða og sækja heldur um leikana 2028. Um síðir lét hún þó tilleiðast – og hef- ur væntanlega fengið loforð í staðinn um meiri kostnaðarlega aðkomu rík- isins að leikunum en ella. For- ystumenn í París eru enn brenndir af því að hafa verið hafnað í loka- atkvæðagreiðslu um leikahaldið 2012, en einnig varð borgin undir í keppni um sumarleikana 1992 og 2008. Parísarbúar fá ekki að segja álit sitt á umsókninni með atkvæða- greiðslu. Þá hafa yfirvöld í Búdapest samþykkt sérstaklega í framhaldi af kosningunum í Hamborg að þar á bæ komi íbúakosning heldur ekki til greina. Loks áforma yfirvöld í Róm að halda sínu striki og ekki leggja málið undir í atkvæðagreiðslu. Íþróttirnar í sárum? Þær raddir hafa heyrst í um- ræðunni síðustu daga að í ljósi ítrek- aðs brotthlaups úr umsóknarferli um leikahaldið undanfarin ár sé þörf fyrir algjöra uppstokkun á Ólympíu- leikunum. Eftir dauða umsókn- arinnar frá Hamborg sé ekki bara borgin í sárum heldur IOC einnig. Sýnu verst sé þó, að sjálf ólympíu- hugsjónin geti verið í lífshættu. Getur það átt eftir að gerast? Líklega getur enginn séð það fyrir. Og voru leikarnir einfaldlega ekki of stór biti fyrir Þýskaland vegna gríðarlegs kostnaðar ríkis, bæja og borga af völdum hins mikla straums innflytjenda? Og fyrir borgina sem rekin hefur verið með skelfilega lélegum árangri lengi (til að mynda hefur áætlaður byggingakostnaður nýrrar tónlistarhallar hækkað ell- efufalt frá upphaflegri kostnaðar- áætlun). Og vegna þokukenndrar fjármögnunar leikahaldsins og loks hneykslismála stærstu íþrótta- sambanda heims sem hafa grafið undan tiltrú á íþróttunum, a.m.k. í bili. Ólympíuhugsjónin í hættu  Íbúar Hamborgar vilja ekki fá Ólympíuleikana 2024 til sín  Hrundu af stað atburðarás sem sér ekki fyrir endann á  Áfall fyrir þýska afreksmenn  Áður verið hafnað af íbúum í München AFP Hamborg Þyrla flýgur yfir Fílharmoníuhöllina í Hamborg, sem vígja á í janúar 2017. Hún hefur kostað sitt. Ólympíuleikar Sífellt færri borgir hafa áhuga á að halda leikana. holar@holabok.is — www.holabok.is Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra Friðþór Eydal Hér er greint frá liðsveitum, dvalarstöðum, varnarviðbúnaði og öðrum umsvifum breska og síðar bandaríska herliðsins ásamt samskiptum þeirra við heimamenn, loftárásum og öðrum athyglisverðum atburðum. Fjöldi mynda, sem hvergi hafa áður birst, prýða bókina.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.