Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 84
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Skrifstofustjóri Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og skipulags. Skrifstofa umhverfis og skipulags fer m.a. með mengunar- og úrgangsmál, efnamál, skipulags-, mannvirkja- og brunamál, hollustuhætti og heilbrigðiseftir- lit, mat á umhverfisáhrifum, varnir gegn ofan- flóðum og EES umsjón. Jafnframt fer skrifstof- an með umsjón með samskiptum við Alþingi, umboðsmann Alþingis og ríkislögmann. Um starf skrifstofustjóra Hlutverk skrifstofustjóra er að leiða starf skrif- stofunnar undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Skrifstofustjóri ber ábyrgð á stefnumótun á sviði skrifstofunnar og vinnur að framgangi laga og stefnumörkunar og framfylgir mark- miðum, áherslum og gildum ráðuneytisins. Meðal verkefna eru rekstur og dagleg stjórnun skrifstofunnar, seta í nefndum og stjórnum fyrir hönd ráðuneytisins, starfsmannamál og alþjóð- legt samstarf. Menntunar- og hæfniskröfur:  Embættis- eða meistarapróf í lögfræði  Stjórnunarreynsla  Þekking og/eða reynsla innan stjórnsýslunnar  Þekking á málaflokkum skrifstofunnar er kostur  Mjög gott vald á íslensku  Góð kunnátta í ensku og í einu Norður- landamáli Færni og aðrir eiginleikar:  Leiðtogahæfileikar  Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum  Frumkvæði og metnaður í starfi  Geta til að vinna undir álagi  Færni í mótun stefnu, lausna og hugmynda  Hæfni til að leiða verkefni Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti (sigridur.arnardottir@uar.is). Umsóknarfrestur er til og með 29. desember nk. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, og skila ítarlegri ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem um- sækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Hæfnisnefnd skipuð þremur einstaklingum mun meta hæfni umsækjenda um störf skrif- stofustjóra skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgef- andi nefndir og skila greinargerð til ráðherra, sem ræður í starfið. Launakjör skrifstofustjóra eru ákvörðuð sam- kvæmt ákvörðun Kjararáðs. Samkvæmt jafnréttisstefnu Stjórnarráðsins eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um. Aðstoðarmaður sviðsstjóra - Byggingarfulltrúi seltjarnarnes.is Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum bæjarins • Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum • Samskipti við hagsmunaaðila • Viðhald og umsjón með teiknigrunni bæjarins • Umsjón með m.a. umhverfismálum, veitum og byggingarmálum, í samráði við sviðsstjóra • Kemur að verklegum útboðum og gerð samninga í samráði við sviðsstjóra • Kemur að verkefnastjórn í samráði við sviðsstjóra • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af sviðsstjóra umhverfissviðs Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf í byggingartæknifræði, byggingar- fræði eða byggingarverkfræði • Þarf að uppfylla skilyrði til löggildingar sem hönn- uður skv. 25. gr. og 26. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Löggilding skv. lögum nr. 8/1996. • Æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu og reynslu á sviði byggingarmála • Góð tölvukunnátta, m.a. í teikniforritum, excel og word • Æskileg þekking og reynsla af stjórnun og fram- kvæmdum • Æskileg þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu • Reynsla af verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlu num • Þekking og áhugi á umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum æskilegur • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Umhverfissvið annast umsýslu veitna, gatnakerfis, fasteigna- og byggingarmála Seltjarnarnessbæjar. Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða öflugan, drífandi og metnaðarfullan einstakling á umhverfissvið bæja- rins. Starfið heyrir undir sviðsstjóra umhverfissviðs. Um er að ræða fullt starf. Leitað er af kröftugum og metnaðarfullum starfsmanni sem vill takast á við krefjandi verkefni af fagmenn- sku og jákvæðni með samhentum hópi lífsglaðra einstaklinga. Æskilegt er að viðkomandi sé vanur fram- kvæmdum og hafi þekkingu, reynslu og áhuga á veitu-, umhverfis-, og byggingarmálum sem og fram- kvæmd opinberrar stjórnsýslu. Starfsmaður er hluti af teymi umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar. Starfsmenn sviðsins eru tólf. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Gísli Hermannsson, sviðsstjóri, í símum 822-9113 og 5959-100. Umsóknarfrestur er til og með 30. desember 2015. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sækja þarf um starfið á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar á www.seltjarnarnes.is. Eyfar ehf. Skipstjóri Skipstjóra vantar á Hríseyjarferjuna Sævar. Æskilegt væri að umsækjandi væri einnig með 750 kw vélstjóraréttindi. Umsóknir og fyrirspurnir skulu sendar á eyfangehf@simnet.is Skútustaðahreppur Leikskólakennari – sérkennari Skútustaðahreppur auglýsir eftir fagmenntuðum starfskrafti á leikskólannYl. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. janúar næstkomandi. Ylur er um 20 barna leikskóli í Mývatnssveit í mjög skemmtilegu umhverfi, með mikla möguleika á fjölbreyttu starfi. Hæfniskröfur: - Leikskólakennaramenntun, sérkennara- menntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi - Reynsla af sérkennslu æskileg - Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum - Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð - Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi - Góð íslenskukunnátta Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 28. desember. Upplýsingar gefur Ingibjörg Helga Jónsdóttir leikskólastjóri í síma 464 4149 eða 821 9404. Skútustaðahreppur Tónlistarkennarar Tónlistarkennara vantar í afleysingar viðTónlistarskóla Mývatnssveitar á vorönn 2016, með möguleika á fastráðningu. Tónlistarskólinn er í sama húsnæði og Reykjahlíðarskóli með sameiginlegan skólastjóra. Reykjahlíðarskóli er heildstæður skóli með rúmlega 30 nemendur. Skólinn er staðsettur við þéttbýliskjarnann í Reykjahlíð. Frekari upplýsingar gefur Sólveig Jónsdóttir skólastjóri. Sími 464-4375. Tölvupóstur: soljon@ismennt.is www.myv.is/reykjahlidarskoli Óskum eftir bílstjóra í vinnu, meirapróf ekki skilyrði. Íslenska er skilyrði og hreint sakavottorð. Tökum einnig á móti umsóknum um sumarafleysingar. Sendið umsóknir ásamt ferilskrá á sendibilarrvk@simnet.is Bílstjórar óskast SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is www.hagvangur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.