Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
Þegar þar að kemur hefur íslenska landsliðið
væntanlega spilað sjö vináttulandsleiki frá
áramótum, líkast til alla erlendis. Í fyrstu
þremur leikjunum í janúarmánuði, gegn Finn-
landi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum
í Abu Dhabi og gegn Bandaríkjunum í Los
Angeles, munu 12-14 af þeim sem einna mest
hafa spilað ekki vera með. Þeir verða þá upp-
teknir með sínum félagsliðum og fyrir vikið fá
hátt í fjörutíu leikmenn frá liðum á Norð-
urlöndum að spreyta sig og reyna að sýna
fram á að þeir komi til greina í hinn endanlega
EM-hóp.
En þó að Lars og Heimir staðhæfi að allir
eigi möguleika og allt sé galopið varðandi tæki-
færi til að vinna sér sæti í liðinu er alveg á
hreinu að þeir eru búnir að skrifa flest nöfnin í
sína bók. Þeir hafa verið frekar íhaldssamir í
liðsvali sínu til þessa og eru búnir að mynda
smám saman sterkt byrjunarlið og öflugan
kjarna í kringum það. Þeir munu ekki fara í
neinar róttækar breytingar. Nánast er óhætt
að fullyrða að sautján leikmenn séu þegar
komnir á „örugga“ listann þeirra, með þeim
fyrirvara að viðkomandi verði allir heilir heilsu
þegar að stóru stundinni kemur, eða hafi ekki
hrapað þeim mun meira í getu og formi á því
hálfa ári sem er til stefnu.
Tveir um hverja stöðu
Hópurinn verður þannig samsettur að tveir
leikmenn eru um hverja stöðu útispilara, 20
talsins, og svo verða þrír markverðir. Lars og
Heimir spila ávallt 4-4-2 þannig að uppsetn-
ingin er tiltölulega einföld. Þó er mögulegt að
hreyfa þetta eitthvað til. Sumir leikmenn eru
fjölhæfir og geta leyst af hendi fleiri en eina
stöðu, og þá opnast möguleikar á að kippa inn
viðbótarmanni í aðra stöðu. Theódór Elmar
Bjarnason getur sem dæmi spilað sem kant-
maður, miðjumaður eða hægri bakvörður og
Emil Hallfreðsson er jafnvígur sem miðjumað-
ur og kantmaður. Þá er skilgreining á kant-
mönnum hægra og vinstra megin nokkuð opin
og þeir geta í raun allir spilað hvorum megin
sem er.
Lítum á stöðuna á hópnum nú um áramót.
Hvaða leikmenn fara örugglega, miðað við
fyrrgreindar forsendur um ástand og gengi,
hverjir eru í mestu baráttunni og hverjir eiga
kannski möguleika ef þeir standa sig sér-
staklega vel? Þó ég hafi ekki fengið að glugga í
minnisbók Lars og Heimis þá er ekki fjarri
lagi að hún líti svona út, í hverri stöðu fyrir sig:
Markverðir (3):
Öruggir: Hannes Þór Halldórsson og Ög-
mundur Kristinsson.
Í baráttunni: Gunnleifur Gunnleifsson og
Ingvar Jónsson.
Mögulegir: Frederik Schram, Haraldur
Björnsson, Róbert Örn Óskarsson og Rúnar
Alex Rúnarsson.
Hægri bakverðir (2):
Öruggir: Birkir Már Sævarsson og Haukur
Heiðar Hauksson.
Mögulegir: Diego Jóhannesson og Adam Örn
Arnarson.
Miðverðir (4):
Öruggir: Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson.
Í baráttunni: Sölvi Geir Ottesen, Hallgrímur
Jónasson, Hólmar Örn Eyjólfsson og Sverrir
Ingi Ingason.
Mögulegir: Jón Guðni Fjóluson, Hjörtur Her-
mannsson, Hjálmar Jónsson.
Vinstri bakverðir (2):
Öruggur: Ari Freyr Skúlason.
Í baráttunni: Kristinn Jónsson og Hörður
Björgvin Magnússon.
Mögulegur: Hjörtur Logi Valgarðsson.
Miðjumenn (4):
Öruggir: Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór
Sigurðsson og Emil Hallfreðsson.
Í baráttunni: Rúnar Már Sigurjónsson og
Ólafur Ingi Skúlason.
Mögulegir: Oliver Sigurjónsson, Guðmundur
Þórarinsson, Eggert Gunnþór Jónsson og
Guðmundur Kristjánsson. Guðlaugur Victor
Pálsson er úr leik vegna meiðsla.
Kantmenn (4):
Öruggir: Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir
Bjarnason, Rúrik Gíslason og Theódór Elmar
Bjarnason.
Mögulegir: Arnór Ingvi Traustason, Arnór
Smárason og Kristinn Steindórsson.
Framherjar (4):
Öruggir: Kolbeinn Sigþórsson, Jón Daði
Böðvarsson og Alfreð Finnbogason.
Í baráttunni: Eiður Smári Guðjohnsen og
Viðar Örn Kjartansson.
Mögulegir: Matthías Vilhjálmsson, Elías Már
Ómarsson og Kjartan Henry Finnbogason.
Þegar lesið er betur úr þessu má sjá að
mesta baráttan stendur um hvaða tveir mið-
verðir verða til taks fyrir Ragnar og Kára,
hver fjórði miðjumaðurinn verður, hvaða
framherji verður til viðbótar við þá Kolbein,
Jón Daða og Alfreð, og hver á að vera til taks
fyrir Ara sem vinstri bakvörður.
Síðan getur áðurnefnd fjölhæfni leikmanna
breytt forsendunum. Ef Theódór Elmar verð-
ur valinn sem bakvörður gætu dyrnar galopn-
ast fyrir Arnór Ingva, eða þá fimmta fram-
herjann.
Það er líka í hæsta máta ólíklegt að allir
sem taldir eru öruggir með sæti verði heilir
heilsu og leikfærir þegar stóra stundin rennur
upp. Meiðsli eru hluti af tilveru knattspyrnu-
manna og ekkert lið mun sleppa undan því að
einhverjir heltist úr lestinni eftir langt og
strangt tímabil með sínu félagsliði. Þá verða
vináttulandsleikirnir í janúarmánuði mikil-
vægur gagnabanki fyrir Lars og Heimi. Til-
gangurinn með þeim er því fyrst og fremst að
finna hvaða leikmenn eigi að vera til taks ef
einhverjir fastamannanna missi af EM í
Frakklandi.
Stundum er sagt að í vináttulandsleikjum
vanti nokkuð uppá að knattspyrnumenn leggi
sig alla fram. Sú verður ekki raunin að þessu
sinni.
Lykilmenn Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson hafa væntanlega verið tvö fyrstu
nöfnin sem Lars og Heimir skrifuðu á blað þegar þeir byrjuðu að stilla upp hópnum fyrir EM.
Morgunblaðið/Golli
Amsterdam Ari Freyr Skúlason, Birkir Már Sævarsson, Ragnar Sigurðsson, Aron Einar
Gunnarsson, Jón Daði Böðvarsson og Kári Árnason fagna sigri í Hollandi. Þeir fara allir á EM.
AFP
Þjálfararnir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck gerðu ekki margar breytingar á meðan
undankeppnin stóð yfir og verða örugglega með mjög svipaðan hóp og byrjunarlið á EM.
Morgunblaðið/Golli
SAUTJÁN SÆTI FRÁTEKIN
Hvaða 23 leikmenn munu
skipa fyrsta hóp íslenska
karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu sem tekur þátt í loka-
keppni Evrópumótsins? Þeir
Lars Lagerbäck og Heimir
Hallgrímsson munu ekki
velja endanlegan hóp fyrir
Frakklandsferðina fyrr en í
sumarbyrjun. Ísland leikur
þar gegn Portúgal, Ungverja-
landi og Austurríki 14., 18. og
22. júní.
VÍÐIR
SIGURÐSSON
er umsjónarmaður íþrótta-
deildar Morgunblaðsins og
mbl.is og hefur starfað sem
íþróttafréttamaður frá árinu
1981.
Nánast óhætt er að
fullyrða að sautján
leikmenn séu þeg-
ar komnir á listann þeirra, með
þeim fyrirvara að viðkomandi
verði allir heilir heilsu þegar að
stóru stundinni kemur, eða
hafi ekki hrapað þeim mun
meira í getu og formi.
”
KARLALANDSLIÐIÐ Í KNATTSPYRNU LEIKUR Á EM Í FRAKKLANDI Í SUMAR
ıTU
RN
IN TS ı 2014ı TU
P
O
INTSı20RNIN
G
PO
IN
14
TU
RNIN
G POINTS|TÍM
AM
Ó
T|2016|TURNINGPOI
TS
|T
ÍM
AM
Ó
T|
20
16
|