Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
ERLENDAR SKOPMYNDIR
Hinn 2. júní samþykkti öldungadeild Bandaríkjaþings lög sem Obama Bandaríkjaforseti
undirritaði samdægurs, en þar var brugðist við uppljóstrunum Edwards Snowden, fyrrver-
andi verktaka hjá bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni NSA, um stórfellda gagnasöfnun
og greiningu á samskiptum innan Bandaríkjanna og utan. Samkvæmt lögunum var ábyrgð
á geymslu gagna innan Bandaríkjanna færð á hendur símafyrirtækja, sem myndu afhenda
NSA gögnin aðeins þegar dómstóll heimilaði það eða neyðarástand ríkti. NSA hafði sam-
kvæmt lögunum frest til 29. nóvember til þess að breyta háttum sínum, en þau hafa engin
áhrif á gagnasöfnun NSA utan Bandaríkjanna eða njósnastarfsemi erlendis.
JÚNÍ
Sámur frændi fylgist enn með þér
SCHRANK/The Economist - London, England; CartoonArts International/The New York Times Syndicate
Hinn 5. júlí ákváðu grískir kjósendur að segja „nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslu við skil-
málum björgunarpakka lánardrottna landsins. Þá höfðu Alexis Tsipras, forsætisráðherra
Grikklands, sem var kjörinn til valda í janúar gegn því að beita sér gegn niðurskurði og
lánardrottnarnir, sem vildu koma í veg fyrir að Grikkir myndu neita að borga skuldir sínar
og fara úr Evrópusambandinu, eytt mörgum mánuðum á bjargbrúninni. Átta dögum síðar
samþykkti Tsipras hins vegar 86 milljarða evra björgunarpakka, sem fól í sér enn harðari
niðurskurð á lífeyri og meiri skattahækkanir en upphaflegi samningurinn. Hann sagði af
sér í ágúst og boðaði til kosninga sem myndu jafnframt vera dómur þjóðarinnar yfir Tsip-
ras og samkomulaginu. Tsipras hafði betur.
JÚLÍ
Grikkland segir „Nei“
DE ANGELIS - Róm, Ítalíu; CartoonArts International/The New York Times Syndicate
Volkswagen, sem náði að velta Toyota úr sessi á árinu sem vinsælasti bílsmiður heims,
féll af stalli sínum í september eftir að upp komst að hinir svokölluðu hreinu dísel-bílar
fyrirtækisins spúðu um 40 sinnum meira af mengandi efnum út í andrúmsloftið en lands-
lög í Bandaríkjunum leyfðu. Framleiðandinn viðurkenndi fljótlega að tölvubúnaður í 11
milljón bílum hefði hjálpað þeim að svindla á útblástursprófunum, og framkvæmdastjór-
inn Martin Winterkorn sagði af sér. Volkswagen þarf hugsanlega að borga um 18 milljarða
Bandaríkjadala í sektir, og neyddist til að kalla inn um 8,5 milljón bíla í Evrópu eftir að
þýski löggjafinn hafði farið í málið. Matthias Müller, nýr framkvæmdastjóri Volkswagen,
sagði að refsingar yfirvalda auk annarra lögsókna mundu skaða getu fyrirtækisins til
þess að halda í við keppinauta sína.
SEPTEMBER
Dísel-blekkingar
SCHRANK/The Independent on Sunday - London, England; CartoonArts International/The New York Times Syndicate
Þremur vikum eftir að Rússar hófu loftárásir
sínar yfirgaf Bashar Assad Sýrlandsforseti
land sitt í fyrsta sinn síðan borgarastríðið
hófst árið 2011 til þess að hitta Vladimír Pútín
Rússlandsforseta í Moskvu. Heimsóknin, sem
bar upp á 20. október, varpaði skýru ljósi á
aukna spennu á milli Rússa, sem eru banda-
menn Assads og gera engan greinarmun á
andspyrnuhópunum, og Bandaríkjamanna,
sem eru á móti Assad og styðja hófsama upp-
reisnarmenn. Sumir skýrendur gátu þess til að
Pútín hefði skorist í leikinn í Sýrlandi til þess
að draga athygli frá skærunum í Úkraínu og
binda enda á refsiaðgerðir vesturveldanna.
OKTÓBER
Refskák í Sýrlandi
HAJJAJ/Ad-Dustour - Amman, Jordan; CartoonArts International/The New York Times Syndicate
Shanghai-vísitalan féll hratt í ágúst, og hófst þar skrið sem hafði áhrif inn á alþjóðlega
markaði og skaðaði lönd og fyrirtæki sem höfðu veðjað miklu á Kína eftir nærri því fjörutíu
ára stöðugan hagvöxt. Ríkisstjórnin hafði fellt gengi renminbisins snemma í júní í von um
að útflutningur myndi styrkjast og þannig ná að stemma stigu við niðursveiflunni, en
ástæður hennar voru umdeildar. Embættismenn biðluðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
að flokka gjaldmiðilinn sem varasjóðsgjaldmiðil og opnuðu hann fyrir markaðsöflunum.
Hrunið hófst fljótlega í kjölfarið og neyddi fjárfesta til þess að finna nýtt skjól í snatri.
ÁGÚST
Kínverski markaðurinn hrynur
AMMER/Wiener Zeitung - Vín, Austurríki; CartoonArts International/The New York Times Syndicate