Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI
Brak úr farþegavél flugfélagsins Germanwings, sem var á leið frá Barselóna á Spáni til
Düsseldorf í Þýskalandi, fannst í fjallshlíð í frönsku Ölpunum. Flugmaður vélarinnar,
Andreas Lubitz, lét vélina hrapa viljandi 24. mars. 150 manns voru um borð og létust allir.
Yfirvöld komust að því að Lubitz hefði verið þunglyndur og kynnt sér sjálfsmorðsaðferðir
fyrir hrapið. Flugfélög endurskoðuðu aðferðir við að meta geðheilsu flugmanna og settu
reglur til að tryggja að ávallt væru tveir úr áhöfn vélar staddir í flugstjórnarklefa hennar.
Fabrice Balsamo/Gendarmerie Nationale/The New York Times
LÉT VÉLINA HRAPA VILJANDI
Hreyfingin Svört líf skipta máli leitaðist allt árið 2015 við að draga athyglina að ofbeldi lögreglu og ójöfnuði kynþátta.
Hreyfingin varð til árið áður eftir andlát Michaels Browns, óvopnaðs tánings, sem hvítur lögreglumaður skaut til bana í
bænum Ferguson í Missouri. Ýmis atvik urðu til að kveikja mótmæli. Eftir að Freddie Gray, 25 ára gamall íbúi Baltimore,
lét lífið í höndum lögreglu í apríl sauð upp úr í mótmælum í borginni og víða um Bandaríkin. Lengi hefur verið grunnt á
því góða í samskiptum kynþátta í Baltimore. Aðgerðarsinnar og samtök kröfðust þess að gripið yrði til aðgerða á borð
við að skylda lögreglumenn til að vera með myndavélar á sér, umbætur í fangelsismálum og átak í atvinnumálum.
Robert Stolarik/The New York Times
KYNÞÁTTAÓEIRÐIR Í BANDARÍKJUNUM
Frjálslyndi flokkurinn undir forustu Justins Trudeaus vann
sigur eftir harða baráttu í kosningunum 19. október og hann
varð forsætisráðherra. Fylgdi hann þar í fótspor föður síns,
Pierres Trudeaus, og hefur það ekki gerst áður í sögu Kan-
ada. Trudeau sigraði Íhaldsflokk Stephens Harpers og lofaði
miklum breytingum. Harper fygldi harðri stefnu öryggis- og
utanríkismálum. Trudeau talaði hins vegar um að snúa aftur
að grunngildum, að ýta undir fjölmenningu heima fyrir og
vera rödd uppbyggingar utan landsteinanna. Trudeau sést
hér ásamt konu sinni, Sophie Grégoire, á kosningakvöldið.
Nicholas Kamm/Agence France Press/Getty Images
ÆTTARVELDI RÍS
Kristnir koptar í Egyptalandi sóttu minningarathöfn um miðjan febrúar vegna kopta, sem
vígamenn úr Ríki íslams tóku af lífi. Vígamennirnir settu myndskeið á netið þar sem sýnt var
þegar margir voru teknir af lífi af 21 manni, sem var rænt þegar þeir voru við vinnu í Líbíu.
Egyptar svöruðu með því að gera loftárásir yfir landamærin á Ríki íslams og skoruðu á
bandalagið, sem berst við Ríki íslams í Írak og Sýrlandi, að hefja líka aðgerðir í Líbíu.
Mohamed El-Shahed/Agence France-Presse/Getty Images
SORG Í EGYPTALANDI
Alræmdasti eiturlyfjabarón Mexikó, Joaquín Archivaldo Guzm-
án Loera, sem gengur undir viðurnefninu El Chapo eða sá
stutti, slapp úr fangelsi í gegnum neðanjarðargöng 11. júlí.
Hvergi í fangelsum Mexikó á öryggisgæsla að vera meiri og var
flóttinn hinn vandræðalegasti fyrir Enrique Peña Nieto forseta,
sem hafði lýst því yfir að handtaka glæpaforingjans árið 2014
bæri vitni frammistöðu stjórnar sinnar í baráttunni við eiturlyf.
Guzman hafði áður sloppið úr fangelsi. 2001 flúði hann úr fang-
elsi þar sem aðstæður voru svipaðar með hjálp fangelsisvarða.
Brett Gundlock/The New York Times
SÁ STUTTI ER LAUS
Alberto Nisman saksóknari fannst látinn í íbúð
sinni í Buenos Aires í Argentínu 18. janúar og
virtist hafa svipt sig lífi. Ráð hafði verið gert fyrir
því að hann bæri vitni næsta dag fyrir argent-
ínska þinginu um sprengjutilræði í félagsmiðstöð
gyðinga í borginni árið 1994. 85 manns létust í
árásinni. Nisman kvaðst hafa fundið vísbend-
ingar um að argentínsk stjórnvöld hefðu sam-
þykkt að hylma yfir stuðning Írana við tilræðið,
sem samtökin Hezbollah frömdu, í skiptum fyrir
olíu. Yfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að
óvíst væri um dánarorskökina. Niðurstaða rann-
sóknar, sem fyrrverandi eiginkona Nismans lét
gera, var hins vegar að hann hefði verið myrtur. Juan Mabromata/Agence France-Presse/Getty Images
DULARFULLUR
DAUÐDAGI Í
ARGENTÍNU