Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 31 Aðeins munaði einu atkvæði í formannskjöri á landsfundi Samfylkingarinnar í mars. Sig- ríður Ingibjörg Ingadóttir alþingismaður bauð sig fram gegn Árna Páli Árnasyni og fékk 240 atkvæði í formannskjörinu, einu atkvæði minna en formaðurinn. Anna Pála Sverr- isdóttir fékk eitt atkvæði. Framboð Sigríðar gegn sitjandi formanni var ekki tilkynnt fyrr en daginn fyrir formannskjörið og var því ekki hægt að efna til almennra formannskosninga, eins og gert hefur verið þegar samkeppni hefur verið um formannsstólinn. Morgunblaðið/Eggert ÁFRAM FORMAÐUR Á EINU ATKVÆÐI Álft kúrir í febrúarkuldanum við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og goggurinn er að mestu falinn undir væng. Hitastig var við frostmark og norð- angarrinn blés. Þegar mest er má sjá yfir 20 álft- ir á tjörninni og hugsanlega eru þær allar tengd- ar Svandísi sem lengi hefur ráðið þar ríkjum. Morgunblaðið/Ómar KÚRT MEÐ GOGG UNDIR VÆNG Þess er minnst með fjölda viðburða að 100 ár eru liðin frá því íslenskar konur fengu kosn- ingarétt til Alþingis. Meðal annars var afhjúpaður minnisvarði um fyrstu konuna sem kos- in var á þing, Ingibjörgu H. Bjarnason, við Skála Alþingis. Á myndinni eru Drífa Hjart- ardóttir, fyrrverandi alþingismaður, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti. Morgunblaðið/Golli KOSNINGAAFMÆLIS KVENNA MINNST Perla, sanddæluskip Björgunar, sökk við Ægisgarð í gömlu höfninni í Reykjavík skömmu eftir sjósetn- ingu úr Slippnum í byrjun nóv- ember. Menn frá Slippnum og úr áhöfn skipsins voru um borð og björguðust. Hófust þegar umfangs- miklar aðgerðir á vegum útgerð- arinnar og tryggingafélagsins við að ná skipinu upp. Það tókst að lok- um, um miðjan nóvember. Öflugar dælur voru fengnar til að dæla sjó úr skipinu og tæki notuð til að tryggja stöðugleika þess. Ljóst varð að skipið er ónýtt. Rannsókn- arnefnd samgönguslysa rannsakar atvikið.Morgunblaðið/Júlíus PERLU LYFT AF BOTNI GÖMLU HAFNARINNAR Íslenska karlalandsliðið vann sér rétt til að taka þátt í lokakeppni Evr- ópumótsins í knatt- spyrnu sem fram fer í Frakklandi í sumar. Er það í fyrsta skipti sem ís- lenska landsliðið kemst á lokakeppni stórmóts. Þegar markmiðinu var náð, eftir landsleikinn við Kasakstan í byrjun sept- ember, fögnuðu leik- mennirnir innilega á uppákomu með stuðn- ingsfólki á Ingólftorgi: „Var það ekki? JÚÚÚÚ!!!“Morgunblaðið/Eggert „VAR ÞAÐ EKKI? JÚÚÚÚ!!!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.