Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 02.01.2016, Blaðsíða 70
Knapi berst á fáki fráum í Dölunum. Hvað ætli maður yrði lengi að fara hringinn kringum landið á hesti? 70 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 Hver ríður svo geyst á gullinbrúvu hávan of hifin hesti snjálitum, hnálega hristanda hrímgan makka, eldi hreyfanda undan stálsköflum? Glóir á gunnsnörpum grásteind brynja, hangir ísskjöldur hal á öxlum. Vindur stendur svalur af veifan skálmar, norðljósa brúskur bylgjar á hjálmi. Með þessum orðum hefst ljóðið Veturinn eftir Bjarna Thorarensen (1786-1841). Nokkuð augljóst er hvaða hetja ríður með slíkri reisn um héruð, sjálfur Vetur konungur. Með grá- steinda brynju og ísskjöld á öxlum. Er hægt að hugsa sér tilkomumeiri sjón? Skáldið slær ekki síður um sig, bregður fyrir sig fornyrðislagi en Bjarni var sem kunnugt er einn helsti boðberi rómantísku stefnunnar á Íslandi. Fæddur á Kjalarnesi, þar sem hermt er að ekki liggi alltaf vel á blessuðu veðrinu. Ekki síst um vetur. Síðar í ljóðinu kveður Bjarni: Elli hann ei kennir þó eldri sé heimi og jafngamall guði. Lifa mun hann öllum lengur veröldum og yfir lík þeirra líða. Margt til í þessu. Ekki er ótrúlegt að þeir séu á sama árinu, Skaparinn og Veturinn, og heimurinn við hlið þeirra eins og spriklandi hvítvoðungur á skinni. Eigi að síður eru engin ellimörk á þeim kumpánum. Nema síður sé. Þrátt fyrir virðulegan aldur er hreystin síst á undanhaldi. Veturinn herjar alltaf af sama krafti og snerpu á ból, menn og skepnur. Og eirir engu – þegar sá gállinn er á honum. Það gerði hann löngu áður en við sem núna gistum þessa jörð komum og mun halda því áfram löngu eftir að við verðum farin. Hitt sætir meiri tíðindum að Veturinn kann sitthvað fyrir sér undir voðum, ef marka má Bjarna: Kemur svo allur og kreistir í sterka jörðu járnarma og jörðu kyssir. Verður hún þunguð af þeim viðskiptum, velur svo ljósmóður sem Vor nefnist. Já, sjóðheitar kynlífslýsingar eru aug- ljóslega ekki nýmæli í íslenskum skáldskap. Nú eða helkaldar. Betra fyrir dauðlega menn að halda sér fast meðan á þeim ósköpum geng- ur. Og spenna beltin. Ég meina, Vetur hinn rammi kreistir í jörðu járnarma. Eitthvað þarf undan að láta. Síðan kemur vorið með tilheyrandi lóusöng og kæti. Það er þó skammgóður vermir enda ríður Veturinn alltaf aftur í hlað. Með þjósti. Líkt og segir í niðurlagi ljóðsins: Aldrei inn frægi þó fjarlægist svo að hann heims hjóláss sleppi endum tveim eða yfirgefi jarðar neitt það næst er himni. Sést því á sumri miðju fjalls á skrauthnúfum skartið vetrar. Því vill ei heldur þiðna á vori himinhrím á höfði öldunga. Hundurinn á Hólum í Nesjahreppi við Hornafjörð kann vel að meta fönn. Féð á Þorvaldsstöðum í Bakkafirði lét sér fátt um finnast. VETURINN HERJAR ALLTAF AF SAMA KRAFTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.