Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 Ef þú gætir breytt í þér erfðaefninu hvaða breytingar myndir þú gera? Myndir þú vilja sterklegri höku eða stærri vöðva til að geta hlaupið hraðar? Hefur þú einhvern tímann óskað þess að þú værir með vængi eða tálkn? Hópur kínverskra vísindamanna kynni að hafa spurt sig sömu spurninga þegar þeir tilkynntu árið 2015 að þeir hefðu reynt að breyta erfðaefninu í ólífvænlegum mannafóstrum. Til- raunin mistókst. Í mörgum fóstranna komu fram óvæntar stökkbreytingar. Vísindamenn um allan heim fóru fram á bann við öllum slík- um rannsóknum, en kannski munu einhverjir reyna að breyta í sér erfðamenginu án tillits til áhættunnar. Hvernig myndi fólk endurhanna líkama sinn ef það gæti? Við getum ekki giskað á tæknina, sem þyrfti til slíkra breyt- inga, og ímyndum okkur því að hægt verði að fara inn í klefa, slá ósk á skjá og koma breyttur út. Brasilíski teiknarinn Roger Mello leiddi síðan getum að því hvernig útkoman gæti litið út. 1Starf: Óperusöngvari.Ósk: Að geta sungið í kór þannig að enginn annar standi á sviðinu til að taka athyglina frá áheyrendum. 2Starf: Ljósmyndari.Ósk: Að hafa svo styrka hönd og sjón að smella megi af án skjálfta eða hristings. 3Starf: HeimspekingurÓsk: Að fljúga í þeirri von að hugsanir mínar verði heldur ekki jarðbundnar. 4Starf: GeimfariÓsk: Að geta tappað orku af stjörnunum til að geta séð hvernig vorið er á Júpiter og Mars. 5Starf: NjósnariÓsk: Að umbreytast þannig að hægt sé að gægjast gegnum allar sprungur og rifur og jafnvel skríða í gegnum þær líka. 6Starf: AtvinnuhjólreiðamaðurÓsk: Að verða svo sinaber og stæltur að fákur minn og ég verðum eitt. 7Starf: VerðbréfasaliÓsk: Að þenja út höndina innan um sölumennina á gólfinu í kauphöllinni. 8Starf: EmbættismaðurÓsk: Að ná þeirri leikni að geta stimplað, vísað áfram eða hafnað erindum án þess að vera sekúndu fram yfir hefðbundinn vinnutíma. 9Starf: SjómaðurÓsk: Að fá ugga til að geta elt uppi fiskana hvert sem þeir synda. 10Starf: LeikariÓsk: Að verða að hverri þeirri persónu, sem hlutverkið krefst. 11Starf: StjórnandiÓsk: Að klóna sjálfan mig svo ég geti verið alls staðar í einu og náð þannig fullkomnu jafnvægi á milli starfs og einka- lífs. 12Starf: RithöfundurÓsk: Að útvíkka hugmyndaflugið þannig að minni sviti fylgi skrifunum Roger Mello/The New York Times Erfðavísindamenn halda áfram að þenja út landamæri vísindaþekkingar og óhjá- kvæmilegt virðist að dag einn muni ákveðnir ein- staklingar geta breytt í sér erfðaefninu til að öðlast for- skot. Hvaða breytingar myndu þeir gera? ROGER MELLO er brasilískur rithöfundur, leikskáld og teiknari, sem er þekktur fyrir rúmlega 100 barnabækur, sem hann hef- ur myndskreytt, þar á með- al „Zubair e os Labirintos“ og „Selvagem“. TÍMAMÓT: KRISTALSKÚLAN ıTU RN IN TS ı 2014ı TU P O INTSı20RNIN G PO IN 14 TU RNIN G POINTS|TÍM AM Ó T|2016|TURNINGPOI TS |T ÍM AM Ó T| 20 16 | HVAÐ EF VIÐ GÆTUM END- URHANNAÐ ERFÐAEFNIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.