Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
Í nýlegum þætti sjónvarpsseríunnar „South
Park“ minna persónan Cartman og aðrir bæj-
arbúar, sem eru heillaðir af Yelp, smáforritinu
sem gerir viðskiptavinum kleift að gefa veit-
ingastöðum einkunnir og umsagnir, yfirþjóna
og þjónustulið á að þeir muni birta umsagnir
eftir málsverðinn. Þessir „yelparar“ hóta að
gefa matsölustöðunum eina stjörnu af fimm
þóknist þeir þeim ekki og geri nákvæmlega það
sem þeir segi. Veitingastöðunum finnst þeir
ekki eiga annars kost en að þóknast „yelp-
urunum“, sem nota vald sitt til að biðja um
ókeypis rétti og setja fram tillögur um úrbætur
á lýsingu. Starfsmenn veitingastaðanna láta
þetta yfir sig ganga með vaxandi pirringi og
reiði – á einum stað eru gagnrýnendur Yelp
meira að segja bornir saman við samtökin Ríki
íslams – þar til loks kemst á vopnahlé. Yelp-
ararnir vita hins vegar ekki að veitingastað-
irnir ákveða að hefna sín með því að menga
rétti „yelparanna“ með öllum hugsanlegum lík-
amsvessum.
Hagkerfi orðsporsins
Mergurinn málsins í þættinum er að nú er svo
komið að allir halda að þeir séu atvinnu-
gagnrýnendur („Allir reiða sig á Yelp-
umsagnirnar mínar!“), jafnvel þótt þeir hafi
ekki hugmynd um um hvað þeir eru tala. Hann
er líka dapurleg umsögn um það, sem farið er
að kalla „hagkerfi orðsporsins“. Með því að láta
veitingastaðina ná fram hefndum gegn „yelp-
urunum“ er einnig komið inn á þá staðreynd í
þættinum að þjónustugeirinn gefur okkur líka
einkunn. Það vekur spurninguna hvernig við
tökum á því hvernig við setjum okkur fram á
netinu og í félagsmiðlum og hvernig ein-
staklingar geri sig að vörumerki í samfélagi
þar sem fyrirtækjamenning fer vaxandi.
Sú hugmynd að allir haldi að þeir séu sér-
fræðingar og rödd þeirra eigi skilið að heyrast
hefur í raun gert að verkum að rödd hvers og
eins hefur minna vægi. Allt og sumt sem við
höfum gert er að stilla okkur upp svo hægt sé
að selja okkur hluti – hægt sé að marka okkur,
miða okkur út og safna um okkur upplýsingum.
En þetta er hið rökrétta endatafl lýðræðisvæð-
ingar okkar menningar og hinnar ógnvekjandi
dýrkunar þess að tilheyra, sem heimtar að til-
vera okkar allra sé undir sömu regnhlíf fyr-
irtækjalögmála – forskriftar sem segir til um
hvernig við eigum að tjá okkur og hegða.
Flestir þeir sem náð hafa ákveðnum aldri
tóku sennilega eftir þessu þegar þeir gengu í
fyrsta fyrirtækið sitt, Facebook, sem hefur sín-
ar eigin reglur um tjáningu skoðana og kyn-
hneigðar. Facebook hvatti notendur til að
„læka“ hluti og vegna þess að um var að ræða
vettvang þar sem margir skilgreindu sig á
félagsvef í fyrsta skipti var tilhneigingin að
fylgja fyrirmælum Facebook og setja fram
upphafna mynd af lífi sínu – betra, vingjarn-
legra, leiðinlegra sjálf. Og það var þessi mikli
vöxtur á dýrkun viðkunnanleikans og hinnar
uggvænlegu hugmyndar um að „geta tengt við
allt“ sem þegar upp var staðið gerði alla að ein-
hvers konar vélrænu, líflausu gangverki í lík-
ama af holdi og blóði* í fjötrum fyrirtækja-
ræðis sem vill óbreytt ástand. Til þess að njóta
viðurkenningar þurfum við að fylgja siðaboði
um að vera í góðu skapi þar sem okkur verður
að líka allt og við verðum að virða rödd hvers
og eins og hver sá sem hefur neikvæða skoðun
– lækar ekki – verður útilokaður frá samtalinu.
Hverjum þeim sem veitir slíkri hjarðhugsun
viðnám er miskunnarlaust sagt að skammast
sín. Fáránlegum skömmtum af skömmum er
hrúgað yfir hina meintu bullu þar til hið upp-
runalega „brot“ virðist smámunir í sam-
anburði.
Að búa við gagnrýni
Ég hef búið við einkunnir og gagnrýni frá því
fyrsta bókin eftir mig kom út þegar ég var 21
árs þannig að fyrir mér virðist þetta umhverfi
náttúrulegt. Til varð orðspor byggt á því
hversu mörgum gagnrýnendum líkaði bókin
Í deilihagkerfinu gengur endurgjöfin í báðar áttir þegar um er að ræða þjónustu á borð við Uber og Airbnb. Farþegar og ökumenn akstursþjónustunnar geta gefið hver öðrum einkunn frá 1 í 5.
Sam Hodgson/The New York Times
LÍF Í UMHVERFI
VIÐKUNNANLEIKANS
Í hagkerfi orðsporsins falla
dómar á báða vegu.
BRET EASTON
ELLIS
er höfundur sex skáld-
sagna, þar á meðal „Less
Than Zero“, „The Rules of
Attraction“, „American
Psycho“, „Glamorama“,
„Lunar Park“ og „Imperial
Bedrooms“ og smásagna-
safnsins „The Informers“.
Hann er einnig kynnir hlað-
varpsins The Bret Easton
Ellis Podcast.
Sú hugmynd að
allir haldi að þeir
séu sérfræðingar
og rödd þeirra eigi skilið að
heyrast hefur í raun gert að
verkum að rödd hvers og eins
hefur minna vægi.
”
TÍMAMÓT: UBER VERÐUR EITT AF VERÐMÆTUSTU NÝSKÖPUNARFYRIRTÆKJUM HEIMS
ıTU
RN
IN TS ı 2014ı TU
P
O
INTSı20RNIN
G
PO
IN
14
TU
RNIN
G POINTS|TÍM
AM
Ó
T|2016|TURNINGPOI
TS
|T
ÍM
AM
Ó
T|
20
16
|