Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 36
CLEMENT/National Post - Toronto, Kanada;
CartoonArts International / The New York Times Syndicate
Árásin 7. janúar á skrif-
stofur háðtímaritsins
Charlie Hebdo í París,
vegna teikninga tímarits-
ins af Múhameð spá-
manni sem móðguðu
suma múslima, vakti
harða umræðu um mál-
frelsi víðs vegar um heim-
inn. Að minnsta kosti 3,7
milljónir manns tóku þátt í
samstöðufundum með
fórnarlömbunum, og
héldu margir á skiltum
sem á stóð „Je suis Char-
lie“. Hryðjuverkamenn-
irnir, bræðurnir Said og
Cherif Kouachi, myrtu 12
manns, þar á meðal rit-
stjóra tímaritsins. Par-
ísarbúar voru á varðbergi
þar til lögregla skaut
bræðurna til bana tveimur
dögum síðar, líkt og vit-
orðsmann þeirra, sem
myrti fjóra manns og eina
lögreglukonu í annarri
árás.
JANÚAR
Hryðjuverk í París
36 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
ERLENDAR SKOPMYNDIR
Viðræður sjö ríkja, Írans, Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Rússlands, Kína og Banda-
ríkjanna leiddu í ljós að ríkin væru nálægt samkomulagi um að takmarka getu Írana til
þess að framleiða úran sem hæft væri í kjarnorkusprengjur í skiptum fyrir ívilnanir í við-
skiptaþvingunum. Þvingununum var komið á smátt og smátt eftir að stjórnarand-
stöðuhópur ljóstraði upp um kjarnorkuáætlun Írans árið 2002. Þegar samkomulag náðist
í júlí náðu Obama Bandaríkjaforseti og Rouhani forseti Írans, þrátt fyrir mikla andstöðu
heima fyrir, að tryggja samþykki ríkja sinna fyrir samkomulaginu, sem tók formlega gildi
18. október. Íranar hófu fljótlega að taka niður hluta af kjarnorkuverum sínum í skrefum
sem tengd voru við afnám refsiaðgerða.
MARS
Fyllið í rammann
OLIVER/Der Standard - Vín, Austurríki; CartoonArts International / The New York Times Syndicate
APRÍL
Armenska þjóðarmorðsins minnst
Hinn 24. apríl síðastliðinn voru hundrað ár liðin frá upphafi armenska þjóðarmorðsins, en
talið er að allt að 1,5 milljónir manna hafi fallið í aðgerðum Ottómanaveldisins árið 1915, í
miðri fyrri heimsstyrjöld. Í minningarathöfn, þar sem Serzh Sargsyan, forseti Armeníu var
viðstaddur, lýsti Frans páfi fjöldamorðunum sem þjóðarmorði, sem leiddi til milliríkjadeilu
við ríkisstjórn Tyrklands, sem hafnar hugtakinu, og segir að margir Tyrkir hafi einnig látist
á þessum tíma. Kallaði Tyrkland sendiherra sinn heim frá Páfagarði. Athafnir til minningar
um voðaverkin voru haldnar víðsvegar um heiminn og í Tyrklandi, og settu pressu á tyrk-
nesk stjórnvöld.
BLEIBEL/Daily Star - Beirut, Líbanon; CartoonArts International / The New York Times Syndicate
FEBRÚAR
Barátta Evrópu við stórfyrirtæki
AMMER/Wiener Zeitung - Vín, Austurríki; CartoonArts International/The New York Times Syndicate
Atlaga Evrópusambandsins að skattafrávikum fyrirtækja lenti í sviðsljósinu á
árinu þegar farið var að rannsaka samninga milli tölvurisans Apple og Írlands,
kaffihúsakeðjunnar Starbucks og Hollands og Amazon og Fiat við Lúxemborg
sem hugsanlega ólöglega ríkisstyrki. Belgía bættist á listann í febrúar.
Margrethe Vestager, samkeppnismálastjóri Evrópusambandsins, tilkynnti í
október að Holland og Lúxemborg yrðu hvort um sig að krefja Starbucks og Fiat
um vangoldna skatta sem næmu allt að 30 milljónum evra. Ákvörðunin gæti haft
miklar afleiðingar í för með sér, þar sem hún felur í sér að sum ESB-ríki hafi verið
að bjóða ólöglega styrki í viðleitni sinni til þess að laða að fjölþjóðafyrirtæki.
Yfirvöld í Sviss handtóku nokkra af æðstu embætt-
ismönnum knattspyrnunnar á ársfundi þeirra í Zürich
hinn 27. maí, eftir að Bandaríkin hófu rannsókn á spill-
ingarmálum innan FIFA, alþjóðaknattspyrnusambands-
ins. 14 manns voru ákærðir vestanhafs fyrir spillingu,
umboðssvik og peningaþvætti. Dómsmálaráðherra
Sviss tilkynnti rannsókn á 53 grunsamlegum fjármála-
tengslum við FIFA í júní og hóf í september saka-
málarannsókn á hendur Sepp Blatter, sem hafði verið
kjörinn sem forseti FIFA í fimmta sinn. FIFA vék Blatter
og tveimur öðrum til hliðar og tilkynnti að sambandið
væri að rannsaka nokkra af núverandi og fyrrverandi
stjórnarmönnum sínum.
MAÍ
Knattspyrnukrísa
BLEIBEL/Daily Star - Beirút, Líbanon; CartoonArts International / The New York Times Syndicate