Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 46

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 Er lýðræðið nothæft sem stjórnkerfi? Hvaða áskoranir hafa komið fram á þessu ári, sem lýðræðisríki eiga fullt í fangi með? Aþenu- hringborðið um lýðræði kemur saman árlega undir merkjum International New York Times með stuðningi Sameinuðu þjóðanna og Aþenu- borgar til að fjalla um stöðu opins lýðræðis í heiminum. Þessi umræða er sérlega brýn í ár vegna straums flóttamanna til Evrópu, árása hryðju- verkamanna og tilfinningaþrunginnar deil- unnar um skuldir Grikklands. Hér fylgja brot frá þremur málstofum. Er opið lýðræði algilt? Serge Schmemann Opið lýðræði á undir högg að sækja. Víða í heiminum er ekki lengur litið á lýðræði í Bandaríkjunum og Evrópu sem hina „glæstu borg á hæðinni“. Rússar og Kínverjar færa rök að ráðstjórnarútgáfu, sem þeir telja falla betur að þeirra menningu; ísl- amskir öfgamenn heyja blóðuga baráttu fyrir nýju kalífati. Getum við enn haldið því fram að opið lýðræði eins og við þekkjum það í vestrinu sé algilt? Eric X. Li Ég er áhættufjárfestir. Sem áhættufjárfestir horfi ég alltaf þegar ég greini stöðu á ferilskrána. Eftirfarandi blasir við mér: Við erum í Aþenu og meira að segja hér er ferill lýðræðisins stuttur. Það hélt kannski velli í 200 ár. Síðan var ekkert lýðræði í um tvö þúsund ár og á þeim tíma urðu engu að síður til stórfengleg menningarsamfélög, frábær tónlist, frábær list, frábær menning. Hugmyndir um lýðræði sneru aftur með upplýsingunni. En sú útgáfa sem vestræn lýð- ræðisríki eru að selja restinni af heiminum á sér ótrúlega skamman feril. Eftir kalda stríðið breytti ótrúlegur fjöldi landa stjórnkerfi sínu í kosningalýðræði. Meirihluta þessara landa hefur vegnað illa, sérstaklega þróunarlöndum. Þar ríkir enn glundroði, stríð, fátækt. Í Kína höfum við annað kerfi. Því fylgdi fjöldi vandmála, fjöldi stórslysa, í upphafi. Undanfarin 30 til 40 ár hefur hins vegar ekki gengið svo illa. Í Kína hefur 650 milljónum manna verið lyft upp úr fátækt undir stjórn eins flokks. Benny Tai Okkur hefur ekki verið „selt“ lýð- ræði í Hong Kong. Það er þörf. Fólk þarf mat, það þarf að fullnægja efnislegum þörfum sín- um og það þarf að finna að það sé öruggt. Og þegar þessar þarfir hafa verið uppfylltar vill það frelsi og þá vill það vera visst um að frelsi þess njóti verndar, það vill réttindi. Og þá för- um við að láta okkur réttindi annars fólks varða og viljum setja bönd á stjórnvaldið. Ein leið til að gera það er að velja okkur leiðtoga. Lýðræði er ferli í þróun. Ekki bara kerfið sjálft, heldur í vitund fólksins. Ég held því ekki fram að við þurfum að fá sams konar kosn- ingakerfi og í vestrinu á einni nóttu. Paula Dobriansky Lýðræði er ekki á und- anhaldi. Eric nefndi að mörg lönd eru í efna- hagsvandræðum. Það kunna að vera efnahags- legar áskoranir, en pólitískum réttindum hefur verið við haldið. Og lönd halda áfram að þokast í átt til lýðræðis. Í Búrma hefur verið ákveðið að halda kosn- ingar. Ég var í Búrma ekki alls fyrir löngu og sá talsverðar breytingar í efnahagsmálum frá því sem áður var. Í Úkraínu mótmælti fólk vegna þess að það vildi eiga þess kost að ganga í Evrópu og hafnaði einnig spillingu. Lýðræði er ekki línulaga ferli, það eru stöð- ugar breytingar og skiptast á skin og skúrir. Li Við skulum veðja. Ætlum við að veðja á að íbúar Úkraínu og íbúar Búrma muni búa við efnahagslega velmegun og vera lausir við spill- ingu eftir tíu ár? Ég ætla að veðja á móti því. Dobriansky Ég myndi veðja á að íbúar Úkra- ínu og íbúar Búrma myndu ef þeir fengju tæki- færið og væri hvorki ógnað né hindraðir, taka efnahagslegum framförum og öðlast ný póli- tísk réttindi. Schmemann Eric, ég ætla að snúa mér aftur til þín. Þú nefndir að sem áhættufjárfestir leit- aðir þú að kerfum sem virka. Margir áhættu- fjárfestar í Bandaríkjunum hafa notið vel- gengni og kerfið hefur ekki verið þeim til trafala eftir því sem ég best veit heldur styðja þeir það. Hvað viðkemur veðmálum myndi ég veðja á að eftir tíu ár muni mjög margt fólk í Kína verða sama sinnis og fólkið á bak við hreyf- inguna Leggjum undir okkur miðbæinn í Hong Kong. Li Það getur verið, en ég held að það velti á því hvernig lýðræðisríkin standa sig á næstu tíu árum. Ég ber virðingu fyrir lýðræði. Vandinn við lýðræði stafar af hugmyndinni um að það sé algilt og varanlegt og það besta sem við höf- um. Kínverjar eru og ættu að vera opnir fyrir öðrum kostum; ég held ekki að þeir ættu að loka dyrunum á lýðræði. En ég held ekki að þeir ættu að gera eins og margir Vest- urlandabúar og hafna öllum öðrum kostum. Tai Sammála, sammála. Dobriansky Enginn þröngvar lýðræði upp á neinn og enginn ætti að gera það. Það er ekki hægt að taka, segjum, líkan af lýðræði í Bandaríkjunum og yfirfæra það á annað land. Líkönin eru ólík. En það er ljóst hvað er hægt að kalla lýðræði og lýðræðislegt ferli og hvað ekki. Lýðræði snýst ekki bara um einar eða tvennar kosningar; það snýst um stofnanir, um frelsi fjölmiðla, um trúfrelsi, um aðhald og eft- irlit. Það snýst um réttarríkið, altæka vernd mannréttinda. Hægt er að leggja þessar hug- myndir fram með ýmsum hætti í ólíkum þjóð- félögum. Er ójöfnuður „áskorun“ okkar tíma? Liz Alderman Fylgir meiri peningum meira málfrelsi? Hvað þýðir það fyrir lýðræði ef hinir ríku hafa meiri áhrif en þorri fólks? Hvað er hægt að gera til að taka á því? Paul Krugman Þegar fjármálakreppan skall á áttu margir von á því að Nýi sáttmáli, New Deal, myndi endurtaka sig, að brugðist yrði við því að óheftur kapítalismi hefði brugðist, aftur yrði snúið til stofnana, sem ýta undir myndun millistéttar; snúið yrði frá dýrkun markaðarins og af stað færi hreyfing í átt að auknum jöfnuði. Yfirleitt hefur það ekki verið raunin. Milli- stéttin hefur verið svipt valdi í Evrópu, ekki valdefld. Óttinn við aðra efnahagskreppu, kvíði vegna skulda, hafa verið notuð eins og sleggjur til að rústa þær stofnanir sem áður fyrr reynd- ust brjóstvörn gegn öfgakenndum ójöfnuði. Þetta ferli hefur verið gríðarlega ólýðræð- islegt. Tæknikratar hafa ákveðið stefnuna í Evrópu og þeir hafa enga hugmynd um hvað þeir eigi að gera fyrir utan að rústa vald vinn- andi fólks. Alan Rousso Rannsóknir sýna okkur að það MUN LÝÐRÆÐIÐ HALDA VELLI? Á tímum vaxandi ójafnréttis, skuldakreppa og uppgangs íslamskra öfgasinna á lýð- ræði undir högg að sækja. TÍMAMÓT: SAMRÆÐAN ıTU RN IN TS ı 2014ı TU P O INTSı20RNIN G PO IN 14 TU RNIN G POINTS|TÍM AM Ó T|2016|TURNINGPOI TS |T ÍM AM Ó T| 20 16 | Kona greiðir atkvæði í kosningum í Tyrklandi. Kosningar eru haldnar víða, en meira þarf til að koma á raunverulegu lýðræði, virkar stofnanir, réttarríki, frjálsa fjölmiðla og að mannréttindi séu virt. AFP STJÓRNENDURNIR Serge Schmemann, situr í ritstjórn The New York Times. Liz Aldermann, yfirmaður við- skiptafrétta í Evrópu fyrir The New York Times. Steven Erlanger, fréttastjóri á rit- stjórn The New York Times í Lond- on. ÞÁTTTAKENDURNIR Paula Dobriansky, fyrrverandi að- stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj- anna um lýðræði og alþjóðamál. Eric X. Li, áhættufjárfestir og stjórn- málafræðingur í Sjanghæ. Benny Tai, aðjunkt í lögum við Hong Kong-háskóla og einn stofn- enda hreyfingarinnar Leggjum undir okkur miðbæinn með ást og friði (Occupy Central with Love and Peace movement). Paul Krugman, nóbelsverðlauna- hafi í hagfræði og dálkahöfundur hjá The New York Times. Alan Rousso, framkvæmdastjóri ytra samstarfs hjá EBRD, End- urreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Sir Richard Dearlove, fyrrverandi yfirmaður bresku leyniþjónustunnar, MI6, og stjórnarformaður Háskólans í London. Ed Husain, yfirráðgjafi og stjórnandi áætlanagerðar við The Tony Blair Faith Foundation. Kishore Mahbubani, rektor Lee Ku- an Yew-stjórnsýsluskólans við Þjóð- arháskóla Singapúr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.