Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 51

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 51 marga flóttamenn í kví utan Ástralíu, á Jóla- eyju, Nauru eða Papúu Nýju Gíneu. Af öllum hindrunum er merkimiðinn, sem festur er á þig oft erfiðastur viðureignar. Hvort sem skilgreiningin er flóttamaður, far- andmaður eða hælisleitandi segir hún meira um það sem vakir fyrir þeim sem talar, en til- raunir þínar til að segja sögu þína. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kallaði fólkið við landamæri Evrópu „mergð“. Sumir evrópskir álitsgjafar hafa haft orð á að flestir þeirra séu múslimar og gefa í skyn að verði þeim leyft að setjast að gætu þeir reynt að grafa undan hefðum og siðum, sem fyrir eru. Hví vekur hjálparlaust fólk ótta? Ég hef verið að reyna að skilja hvers vegna hjálparlaust fólk, sem hefur verið rifið upp frá lífi sínu og óskar einskis heitar en að snúa aftur heim, vekur slíkan ótta. Þegar þar er komið að flóttamanna- fjölskylda flýgur til London eða kemur á rútu- stöð í Amman eða fer frá borði við strönd Mal- asíu er staðan iðulega sú að umgjörð millistéttarlífs hefur glatast – starfsleyfi og gráður eru einskis virði, vinir og ættingjar hafa tvístrast um allar jarðir, aðeins örfáar eigur eru eftir. Kannski er fólk þegar það hrekkur, slegið óhug, undan flóttamanni að bregðast við tilhugsuninni um að einnig væri hægt að snúa lífi þess á hvolf með nokkrum byssukúlum og leggja allt, sem það áður gat treyst á, í rúst. Kannski er það vegna þess að sumir flótta- menn hafa farið langar vegalengdir, flúið til annars heimshluta í stað þess að fara til næsta lands og því er ólíklegra að þjáningar séu þekktar eða mæti samúð. Ef til vill vekja sumir flóttamannanna upp minningar, sem við helst vildum gleyma. Ef Bandaríkjamenn eða Evrópubúar leyfðu írösk- um eða líbískum flóttamönnum að setjast að á meðal sín yrðu þeir minntir á að innrásin í Írak undir forustu Bandaríkjamanna og brott- rekstur Gaddafis frá völdum með stuðningi NATO leiddi ringulreið yfir þessi lönd fremur en frið? Síðan er hugmyndin um að hryðjuverka- menn fari huldu höfði meðal flóttamannanna. Eftir hryðjuverkin í París í nóvember fannst falsað sýrlenskt vegabréf á líki eins af morð- ingjunum. Um alla Evrópu kröfðust hópar á hægri vængnum þess að ríkisstjórnir þeirra lokuðu landamærunum fyrir flóttamönnum og sumir í Evrópu og Bandaríkjunum fóru að leggja að jöfnu innflytjendur og hryðjuverk. Og þó er það þannig að þegar gæfan er með flóttamönnum er það oft vegna þess að þeir upplifa augnablik samúðar og samhygðar á för sinni. Margir eru tilbúnir að opna heimili sín, efna til samskota, flytja flóttamenn yfir landa- mæri. Það er sjaldnast nóg, en veitir kraft til að halda áfram. Undir lok Bíafrastríðsins varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kona sá aumur á mér þar sem ég stóð nærri þvögu þar sem ver- ið var að skammta mat. Hún gaf mér nokkra matarskammta og langþráðan aur, sem ég fór með heim til foreldra minna. Ef þú finnur þér heimili tekur við það erfiða verkefni að setja sjálfsmyndina saman á ný, mynda samfélag, ákveða hvaða minningum eigi að henda. Þú neyðist til að endursmíða sjálfan þig, mólekúl fyrir mólekúl. Sumum mis- tekst aðlögunin. Aðrir munu alltaf glíma við áleitna drauga – ættingja sem týndust eða voru yfirgefnir, eða þeirra, sem létu lífið á leið- inni. Sumar minna sárustu minninga eru frá lok- um Bíafrastríðsins. Við foreldrum mínum blasti það sem hafði glatast, ættingjar, sem höfðu látist eða örkumlast á sál eða líkama, hús okkar í rústum þannig að myndir og aðrir kær- ir munir höfðu glatast að eilífu. En við vorum á lífi. Nokkrir ættingjar hjálpuðu foreldrum mín- um að lappa upp á helminginn af þaklausu heimili okkar og líf okkar hélt áfram. Faðir minn fór aftur í vinnuna sína hjá póstinum og móðir mín fór að kenna að nýju. Ógna ekki lífstíl nokkurs manns Systkini mín og ég tókum til við námið af ákveðinni ástríðu. Það skipti ekki máli að níg- eríski herinn hafði varpað sprengjum á skól- ann okkar þannig að grunnurinn einn stóð eftir og við neyddumst til að fara í tíma undir berum himni, óvarin fyrir sólskini og rigningu. Skóla- gangan var arfleifð frá okkar fyrra lífi og virt- ist veita tækifæri til að endurheimta eitthvað af því. Þegar þú veist hvernig það er að vera svang- ur og heimilislaus og hafa misst allt veistu að hver sem er getur lent í þeirri aðstöðu. Þú von- ar bara að embættismaðurinn, sem þú biður um aðstoð, skilji að hann hefði getað lent hin- um megin við borðið. Þeir mega eiga að þeir gera það margir. Við hin þurfum að læra. Flóttamenn eru ekki fólk, sem ógnar lífsstíl nokkurs manns. Þeir þekkja margir gildi samúðar og þegar þeir verða nágrannar okkar, vinir og samstarfsmenn munu þeir kenna okkur sam- hygð. Hluti af skuld okkar við þá er að veita þeim þá aðstoð, sem þeir myndu veita okkur og jafn vel að finna það í okkur að hjálpa til við að koma að nýju á reglu eða jafnvægi í uppruna- legum heimkynnum flóttamannanna, sem skyndilega voru lögð í rúst og gerð óbyggileg. Flóttamenn létu fátt stöðva sig. Ungverjar lokuðu landamærum Króatíu í október og fóru hundruð farandmanna þá til Slóveníu á leið til Austurríkis. Flestir vildu til Þýskalands eða Skandinavíu. Sergey Ponomarev/The New York Times Ef þú finnur þér heimili tekur við það erfiða verkefni að setja sjálfsmyndina saman á ný, mynda samfélag, ákveða hvaða minningum eigi að henda. ”

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.