Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 53
hins vegar hefur varann á gagnvart trygg- ingasvikum. Þessi geta gæti þýtt að nýjum umsækjendum um starf verður vísað frá vegna þess að færra fólk þarf til að reka fyr- irtæki. Ný störf koma í stað þeirra gömlu En sagan sýnir að atvinnulífið tekur venju- lega við sér eftir tæknibyltingar – þótt sú þró- un geti orðið í óvænta átt. Mikið er nú deilt um hversu mikið rof muni fylgja gervigreind- arbyltingunni, en ég er bjartsýnn á að ný störf muni koma í stað þeirra gömlu á sviðum sem við getum ekki einu sinni ímyndað okkur enn, rétt eins og vinnumarkaðurinn þróaðist eftir iðnbyltinguna. Nú kennum við hvorki eimreiðinni né saumavélinni um atvinnuleysi. Gervigreind hefur þegar skapað ný tæki- færi. Tökum þjónustu eins og Magic, nýsköp- unarfyrirtæki sem byggir á smáskilaboðum og sendir vörur til viðskiptavina um öll Bandaríkin. Hugmyndin á bak við Magic er að notandinn geti fengið hvað sem er sent þegar hann þarf með því að senda SMS með því að sameina verk manna og gervigreind. Í Kína hafa sambærileg nýsköpunarfyrirtæki ráðið til sín mörg hundruð manns í þjón- ustuver til að sinna hinum ýmsu þörfum þeirra sem hringja – þótt mögulegt sé að staf- rænir þjónustufulltrúar muni dag einn taka við af „handvirkri greind“. Margt fólk gæti ákveðið að snúa aftur í skóla til að ná sér í nýja hæfileika á þessum nýsköpunarsviðum. Einnig gæti áhugi vaxið á störfum sem krefjast margvíslegra hæfileika og mannlegs innsæis, á borð við hjúkrun, leik- skólakennslu og sölumennsku. Umfangsmikil opin námskeið á netinu, eins og þau sem ég býð, hafa þegar hjálpað milljónum manna um allan heim að ná sér í menntun og við megum búast við því að menntað fólk á vinnumarkaði muni reglulega ná sér í frekari menntun til að reyna að ná sér í forskot á keppinautana. Sennilegt er að afdrifaríkustu breyting- arnar verði í þróuðum löndum – í sumum hag- kerfum er þjónustugeirinn rúmlega 70% af landsframleiðslu. Í þróunarlöndum er ósenni- legt að áhrifin á skrifstofufólk komi strax fram vegna þess að þar tekur lengri tíma að innleiða gervigreindartæknina, þótt á þeim svæðum gæti framleiðslustörfum í verktöku fækkað vegna frekari framfara í þjarkatækni. Þetta hljómar eins og áhyggjuefni vegna þess að við getum ekki séð fyrir hvaða ný störf muni fylgja þessari tækni og hvaða nýju fyr- irtæki fólk mun stofna eins og það hefur alltaf gert. Framtíðin er enn björt, þökk sé sköp- unarkraftinum – hinum einstaka eiginleika okkar. Í júlí birtist opið bréf frá meira en þúsund vísindamönnum á sviði gervigreindar og þjarkatækni, þar á meðal Elon Musk, Steph- en Hawking og Steve Wozniak, þar sem varað var við að nota gervigreind í stríði og banns krafist við sjálfstæðum vopnum. Tæknin er þó ekki jafn langt komin og vitundarvélmennin sem menn sáu fyrir sér í tveimur myndum frá 2015, „Ex Machina“ og „Chappie“. Í þessum myndum gera menn sér í hugarlund „öfluga“ gervigreind, eða almenna gervigreind, sem getur gert flest það sem menn geta gert, öf- ugt við „veika“ eða þrönga gervigreind, sem gengur út á tiltekin verkefni. Enginn getur sagt til um hvort „öflug“ gervigreind verði búin til og, ef svo, hvenær. Ég spurði nokkra kínverska gervigreindarvísindamenn og af svörum þeirra að dæma hefði ég eins getað spurt um líkurnar á lífi í geimnum. „Veik“ og „öflug“ gervigreind Það væri heimur þar sem jafnvel störf við umönnun barna væru í hættu, en sem betur fer eru mörg ár þar til „öflug“ gervigreindar- vélmenni líta dagsins ljós. Þegar þar að kem- ur er ekki víst að við munum þurfa að vinna mikið til að framfleyta okkur. Vélmennin munu sjá um mest af vinnunni og við munum hafa tímann og ráðrúmið til að kanna hvað það er að vera maður. Til að ekkert fari á milli mála þýðir „gervigreind“ ekki að slíkar vélar séu skynugar eins og þeim er lýst í vís- indaskáldskap, aðeins að fái þær meiri upplýsingar geti þær leyst verkefni betur. ” Gervigreind fleygir fram. Gervigreindarvél , sem vísindamenn hjá Google bjuggu til, var látin skoða tíu milljóni myndir og ĺærði af sjálfri sér að skipta þeim upp í flokka, þar á meðal fyrir ketti. Jim Wilson/The New York Times Vélmenni með gervigreind eru tilbúin að hefja störf og maðurinn fer áhyggjulaus út í borgina. Eduardo Recife MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.