Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 63
AFP/No Somos Delito
Mótmælaganga í sýndarheimum varð að raunveruleika þegar heilmyndir — veifandi skilt-
um og syngjandi slagorð — mótmæltu hinum svokölluðu „þöggunarlögum“ fyrir framan
þinghúsið í Madríd í apríl. Lögin, sem miða að því að auka öryggi þegnanna, kveða á um
þungar sektir fyrir að halda mótmælafundi án leyfis og banna myndatöku á lögregluþjón-
um, ásamt öðru sem gagnrýnendur sögðu gegn anda lýðræðisins. Bentu skipuleggj-
endur á að sýndarsjálf þeirra hefðu meiri rétt til mótmæla undir hinum nýju lögum. Þrátt
fyrir víðtæk mótmæli — stafræn sem raunveruleg — tóku lögin gildi í júlí.
MÓTMÆLUM VARPAÐ YFIR NETIÐ
Þó að hann væri á meðal þeirra síðustu sem valdir voru, þá varð val Dallas Mavericks á Sat-
nam Singh Bhamara í júní til þess að skjóta honum á stall þjóðhetju í heimaþorpi sínu í Pun-
jab-héraði Indlands – um leið og hann varð fyrstur indverskra körfuboltamanna til þess að
vera valinn inn í bandarísku NBA-deildina. Hinn 19 ára Satnam Singh, sem er um 2,18 metr-
ar á hæð, er einungis nokkrum cm hærri en faðir hans, sem ákvað af visku sinni að ráð-
leggja syni sínum að leggja fyrir sig íþrótt sem væri ekki jafnvinsæl og krikkett, knattspyrna
eða bandí. Aðeins tveimur mánuðum fyrr náði hinn 22 ára gamli Kanadamaður Sim Bhullar
að verða fyrsti leikmaðurinn af indverskum ættum til þess að spila í NBA-leik.
Shammi Mehra/Agence France-Presse/Getty Images
STÓRT STÖKK FYRIR INDLAND
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 63
Þótt kvenkyns þjóðhöfðingjar hafi farið með embætti
æðsta yfirmanns ensku biskupakirkjunnar allt frá dögum
Elísabetar I., var það ekki fyrr en 2015 að kona komst þar
til æðri metorða þegar sr. Libby Lane varð fyrsti kvenkyns
biskupinn á Stóra-Bretlandi. Hún var vígð biskup af Stock-
port í norðvesturhluta Englands í janúar í kjölfar deilu
frjálslyndra og íhaldssamra fylkinga innan kirkjunnar, sem
á sér 85 milljónir fylgjenda út um allan heim.
FYRSTA KONAN
Lynne Cameron/Agence France-Presse/Getty Images
Fyrsta ítalska konan í geimnum varð jafnframt að fyrsta kaffibarþjóninum í alþjóðlegu geim-
stöðinni í maí, þegar hún hellti upp á ítalskt gæðakaffi í kaffivél sem vegur 25 kíló og var
nærri því tvö ár í framleiðslu. Samantha Cristoforetti, 38 ára flugmaður í ítalska flughernum
og verkfræðingur, tók fyrsta sopann úr sérhönnuðum bolla, sem gerði henni kleift að drekka
kaffið við nær algjört þyngdarleysi nánast eins og hún væri á jörðu niðri. Vélin, sem fengið
hefur heitið ISSpresso, getur einnig búið til aðra heita drykki, eins og te og soðsúpu.
EITT LÍTIÐ SKREF FYRIR KAFFI
NASA/The New York York Times
Þrátt fyrir að úrtölumenn segðu leiðina greiða að „hönn-
unarbörnum“ ákvað Bretland í febrúar að verða fyrsta ríkið
til þess að leyfa læknum að græða nýja hvatbera í fóstur-
vísa. Þannig yrðu til fóstur með DNA þriggja, móður, föður
og kvenkyns gjafa með heilbrigða hvatbera – til þess að
koma í veg fyrir ýmsa arfgenga og ólæknandi sjúkdóma
sem berast úr móðurætt.
Þetta gefur konum með slíka sjúkdóma í ættinni mögu-
leika á að eignast heilbrigð börn á eigin vegum. Heilbrigð-
isstofnanir í Bretlandi gátu farið að sækja um leyfi um
haustið; fyrsta barnið sem búið er til með þessari aðferð
gæti fæðst á næsta ári.
VÍSIR FRÁ ÞREMUR
Monica Almeida/The New York Times
Ariana Miyamoto varð í mars fyrsta konan
af blönduðum ættum, svonefnd „Haafu“, til
þess að verða útnefnd ungfrú Japan. Slíkt
fólk er afar sjaldgæft í hinu einsleita sam-
félagi Japans. Faðir Miyamoto er banda-
rískur blökkumaður og móðir hennar er
japönsk, en hún ólst aðallega upp í Japan.
Gagnrýnendur drógu í efa að hún væri
nógu „japönsk“ til þess að vera fulltrúi
landsins í Ungfrú alheimur, en Miyamoto
hlustaði ekki á slíkar úrtöluraddir og sagði
að hún vildi nota titil sinn til þess að stuðla
að auknu umburðarlyndi gagnvart Jap-
önum af blönduðum ættum.
ÓVÆNT
FEGURÐAR-
DROTTNING
Ko Sasaki/The New York Times