Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 67
„Þetta er tilvistarleg ögurstund hnattborgarans og sam-
eiginleg sókn vitunda til nýrrar óvissu.“
„Landslag með húsum (Duchess County, NY) #1“
eftir James Casebere
Myndin mín gefur til kynna hina goðsögulegu „Dögun í Banda-
ríkjunum“ (Morning in America) frá skeiði Ronalds Reagans í
Bandaríkjunum sem einkenndist af bjartsýni brenglaðs hag-
vaxtar, spákaupmennsku með fasteignir og bólgnum fjár-
málamörkuðum.
Hin furðulegu svefnherbergjasamfélög útborganna virðast
ekki alltaf skipulögð – stundum er fremur eins og þau hafi
sprottið sjálfkrafa úr rakri jörðinni eins og sveppir, sumir eitr-
aðir. Fyrir hverju er þessi draumur að víkja?
Samkunda efst á hæðinni bíður áhyggjufull eftir funheitu
sumri. Eru úthverfi, útborgir og borgir ekki öll tilbrigði við
griðastað? Líðanin er eins og bruni og sviði fari um alla plán-
etuna, afleiðing af svikum og prettum mannkyns á sjálfstýr-
ingu.
Þessi bær sefur, en er við það að vakna við suð ógrynna far-
artækja. Iðnir litlir maurar eru í þann mund að demba sér út um
hverja glufu og drífa sig af stað án þess að vera á leiðinni neitt.
Þeir eru strandaglópar á þúfu fyrir heim, sem að öðru leyti er
á kafi. Þetta er tilvistarleg ögurstund hnattborgarans og sam-
eiginleg sókn vitunda til nýrrar óvissu. © 2015 James Casebere
JAMES CASEBERE
er bandarískur listamaður
sem býr í New York og vinnur
með líkön, sem hann smíðar í
vinnustofu. Verk hans eru í
eigu safna um allan heim, þar
á meðal Whitney Museum of
American Art, Solomon R.
Guggenheim Museum og
Metropolitan Museum of Art í
New York, the Walker Art
Center í Minneapolis og Vic-
toria and Albert Museum og
Tate Museum í London. Yf-
irlitssýning yfir feril hans,
„James Casebere: flóttamað-
ur“, undir sýningarstjórn
Okwui Enwezor, verður opn-
uð 12. febrúar 2016 og stend-
ur til 12. júní í Haus der Kunst
í München.
THE NEW YORK TIMES
BANDARÍKIN
Randy Mora
KÓLUMBÍA
RANDY MORA
er teiknari og listamaður
frá Bogotá í Kólumbíu.
Verk hans hafa verið sýnd
í Suður-Ameríku, Banda-
ríkjunum, Evrópu og Kína.
„Á meðan græjurnar okkar verða klárari verðum við
heimskari, latari og einangraðri.“
„Ást 2.0“
eftir Randy Mora
Einn af þáttum daglegs lífs, sem ég sé breytast hratt fyrir aug-
unum á mér, er hvernig við umgöngumst hvert annað. Daglega sé
ég hvernig nándin á milli fólks minnkar. Við lifum lífi okkar í
gegnum skjái: snjallsíma, spjaldtölvur og tölvur. Fólk er niður-
sokkið í græjurnar sínar á götum úti og sér hvorki umhverfi sitt
né aðra vegfarendur.
Samskipti eru að breytast og fyrir vikið breytumst við líka.
Grundvallarathafnir eins og að verða ástfanginn, fá nýtt starf,
skipuleggja fund eða fara í bíó verður allt á einhvern hátt háð
sýndarmilligöngulið. Á meðan græjurnar okkar verða klárari
verðum við heimskari, latari og einangraðri.
Vinnsla stafrænu samsetningarinnar minnar er frábrugðin
annarra vegna tækninnar, sem ég nota. Ég bý samsetningar mín-
ar til úr úrklippum, ljósmyndum og áferð, sem ég finn í gömlum
tímaritum og hlutum, sem hefur verið hent. Svo skanna ég allt
saman og set saman í Photoshop.
Sköpunarferlið byggist á tilfinningu og oft tekur tilviljunin
völdin. Stundum hef ég skýra hugmynd þar sem samsetningin
verður til með hverju nýju lagi og stundum verður útkoman
óvænt. Einföld hugmynd eða samsetning tveggja mynda getur
verið kveikja sem skilgreinir verkið. © 2015 Randy Mora
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 67
Johanna Basford
„Teikningin mín er nokkurs konar viðvörun, skyndimynd
af framtíð, sem ég held að skynsamlegast væri fyrir okkur
að forðast.“
„Frjóvgari“
Eftir Johönnu Basford
Ég er nýorðin móðir og eftir að ég fæddi glænýja, litla persónu
inn í heiminn, get ég ekki að því gert að ég horfi til framtíðar með
vaxandi ugg. Hverð ber framtíðin í skauti sér fyrir dóttur mína? Í
hvers konar heimi mun hún vaxa úr grasi? Hvaða áhrif munu
gerðir minnar kynslóðar hafa á líf hennar?
Eitt af mörgu, sem heldur vöku fyrir mér yfir blánóttina þegar
ég er ekki að hugsa um litabækur eða lífrænan barnamat eru
þankar um hvernig litla plánetan okkar eigi að fara að því að fæða
vaxandi mannkyn. Ég hugsa um erfðabreytt matvæli, skort á
landi og vitaskuld áþján frjóvgaranna.
Teikningin mín er nokkurs konar viðvörun, skyndimynd af
framtíð, sem ég held að skynsamlegast væri fyrir okkur að forð-
ast. Þegar er farið að fækka í vinnuafli náttúrunnar og ég óttast
að þegar dóttir mín verður táningur muni hin auðmjúka býfluga
hafa breyst í eitthvað allt annað.
Í stað hennar verður komið ger af vélrænum skordýrum suð-
andi í kringum erfðabreytt blóm, í óða önn að tryggja uppskerur
framtíðarinnar og að blóm blómstri áfram. Litlir, vængjaðir drón-
ar gætu skotist frá einni plöntu til annarrar í forritaðri leit að
fræflum. Frankenstein-blóm og róbóflugur kunna að virðast eiga
heima í vísindaskáldsögum en gætu reynst vera fingraför ugg-
vekjandi nýrrar veraldar.
Þegar ég teikna hefur það alltaf hverfst um ást á öllu hinu hlið-
ræna. Ég teikna með hendinni og reyni að fanga fegurð náttúr-
unnar með titrandi línu, dreginni með hendinni, og eilítið ófull-
komnum hring. Við nánari skoðun á þessari vængjuðu skepnu
kemur í ljós manngert sköpunarverk, ekki hin fínlega skordýra-
stúdía, sem þú gætir hafa átt von á. © 2015 Johanna Basford
SKOTLAND
JOHANNA
BASFORD
er skoskur trúboði bleks
og teiknari og höfundur
litabóka fyrir fullorðna.
Fyrsta bók hennar, „Leyni-
garðurinn“, hefur selst í
meira en átta milljónum
eintaka á rúmlega 40
tungumálum. Þriðja bók
hennar, „Týnt úthaf“, kom
út 2015. Hún vinnur og býr
í Aberdeenskíri í Skot-
landi.