Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 76

Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 76
76 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 Mið- Austurlönd Í FRÉTTUM ASÍA EVRÓPA AFRÍKA MIÐ-AUSTURLÖND Sýrland Rúmlega 250 þúsund manns hafa látið lífið í borgarastríðinu, sem staðið hefur milli Bashars al-Assads forseta og ýmissa uppreisnarhópa síðan 2011. Um fjórar milljónir Sýrlendinga hafa flúið til nágrannalanda og Evrópu og sjö milljónir til viðbótar eru á vergangi í landinu eftir að hafamisst heimili sín. Eyðilegging eftir stórskotalið í Damaskus í febrúar 2015 Sprengiflaugum ekið fram hjá mynd af æðsta leiðtoga Írans, Ali Khamenei erkiklerki, á hersýningu í Teheran 2014. Íran Í júlí 2015 gerðu Bandaríkin og fimm önnur ríki samning við Íran um að stöðva kjarnorkuvopnaáætlun, sem Íranar voru grunaðir um að fylgja. Í skiptum fyrir afléttingu lamandi viðskiptaþvingana samþykktu Íranar að minnka verulega birgðir sínar af úrani og fækka skilvindum, sem notaðar eru til að gera úranið nothæft til að smíða vopn. Gagnrýnendur óttast að samningurinn muni ekki koma í veg fyrir að Íranar verði sér úti um sprengju. Þeirra á meðal eru Ísraelar, Sádar og fjöldi bandarískra þingmanna. EGYPT 20 °A S T R IN G E R /R E U T E R S (S Ý R L A N D ); A T T A K E N A R E /A F P /G E T T Y IM A G E S (Í R A N ); M IL IT A N T W E B S IT E /A P IM A G E S (R ÍK I ÍS L A M S ); K O R T A G E R Ð /J IM M C M A H O N (K O R T ) Ríki íslams Róttæka íslamistahreyfingin Ríki íslams í Írak og Sýrlandi leggur jafnt og þétt undir sig meira landsvæði í þeim löndum. Ríki íslams vill koma á ríki þar sem gilda ströng íslömsk lög. Samtökin hafa verið í fréttum fyrir að hálshöggva bandaríska blaðamenn og kristna menn og hafa farið með ógn gegn almennum borgurum á svæðum, sem þau hafa lagt undir sig. Þau hafa einnig eyðilagt fornar minjar á borð við 2000 ára gamalt hof í Palmýra í Sýrlandi sem þau sprengdu upp í ágúst 2015. 4.000 Fjöldi vesturlandabúa, þar á meðal rúmlega 550 konur og stúlkur, sem talið er að hafi gengið til liðs við Ríki íslams. HEIMILD: THE NEW YORK TIMES Vígamenn Ríkis íslams í Sýrlandi. MISSKIPTUR HEIMUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.