Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 2016
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mán. - fös. 11-18:30
Stóllmeðhvítri eða svartri setu
og viðarfótum. 24.900kr.
Copenhagen-stóll
Útsala
Bora-hornsófi.Einstaklega fallegur hornsófi. 100%pólýester. L 313xD248cm.
189.900kr. Nú129.900kr. Sparaðu60.000kr. Sófanner hægt að fá speglaðan.
Lissabon-sófi. Tveggja sæta sófimeð fallegu ljósgráu áklæði. 100%pólýester.
L 182cm. 129.900kr. Nú89.900kr. Sparaðu40.000kr. Til í fleiri stærðum.
SPARAÐU
60.000
Bora-hornsófi
Nú129.900 kr.
SPARAÐU
40.000
Lissabon-sófi
Nú89.900 kr.
*Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum Everyday low price.
SPARAÐU
30%
23. og 24. janúar
Woody-sófaborð.Hnota.
44 x55cm. 44.900kr. Nú29.900kr.
75 x90cm. 69.900kr. Nú48.900kr.
25%
AFÖLLUM
RÚMFÖTUM
Nature-rúmföt.140x200/60x63cm.
6.995kr. Nú4.995kr.
SPARAÐU
4.000
Link-stóll
Nú8.900 kr.
Link-stóll.Hvít setameðkróm fótum.
12.900kr. Nú8.900kr.
Variera-veggklukka.45cm.Koparlituð.
4.995kr. Nú3.495kr.
25-50%
AFÖLLUM
KLUKKUM
25-50%
AFÖLLUM
LJÓSUM*
Saloon flowers-loftljós
með5skermum.
24.995kr. Nú14.995kr.
50-80%
LAGERSALA
RISA
valin sýningareintök, útlitsgölluð
húsgögn og smávara
Yfir þrjátíu þúsund gestir sóttu sýningar í Tjarnarbíói
á síðasta ári sem er 270% aukning frá árinu 2013, þeg-
ar Reykjavíkurborg og sjálfstæðu leikhúsin undirrituðu
samstarfssamning sín á milli um rekstur hússins. „Við
einsettum okkur að innan þriggja ára væru gestir
hússins orðnir 30.000 á ári. Við höfum því náð því
markmiði á tveimur árum,“ segir Guðmundur Ingi Þor-
valdsson leikhússtjóri en samtals voru gestir á liðnu ári
30.710 talsins. Inni í þessari heildartölu gesta eru við-
burðir utan miðasölu eins og Iceland Airwaves, RIFF,
ASSITEJ-barnamenningarhátíð og Listahátíð í
Reykjavík. Seldir miðar á árinu 2015 voru 12.550 tals-
ins sem er 203% aukning frá árinu 2013.
Stóra stökkið í aðsókn og miðasölu var síðastliðið
haust, að sögn Guðmundar. Gestum hússins fjölgaði um
50% frá hausti 2014 og tekjur af miðasölu jukust um
83% milli hausta. Að mati Guðmundar liggja fjórar
ástæður að baki þessum árangri. Í fyrsta lagi öflugt
markaðs- og kynningarstarf. Í öðru lagi að gæði þeirra
verka sem hafa verið sett á svið í húsinu fara ört vax-
andi. Nægir að nefna að Lífið var valin barnasýning
ársins 2015. Í þriðja lagi hafi samstarf Reykjavík-
urborgar og sjálfstæðu leikhúsanna verið afar gott og
sumarið 2015 var tæknibúnaði hússins og áhorf-
endastúku umturnað til hins betra. Nú er rekið leikhús
með 180 góðum sætum, ekki 70 eins og fyrir fram-
kvæmdir. Í fjórða lagi gott samstarf við midi.is frá
hausti 2015.
Undanfarin tvö ár hefur Tjarnarbíó haft á fjölunum
fjörutíu sviðsverk hvort árið, hvert þeirra sýnt einu
sinni til fimmtán sinnum eftir aðstæðum. Heildarfjöldi
viðburða í húsinu var 230 hvort árið.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
leikhússtjóri Tjarnarbíós.
Morgunblaðið/Kristinn
TJARNARBÍÓ Í MIKILLI SÓKN
Yfir þrjátíu þúsund gestir
„Þau tíðindi gerðust á almennum
borgarafundi á Ísafirði í fyrra-
kvöld, þar sem bæjarmálin voru
til umræðu, að efsti maðurinn á
lista Alþýðuflokksins, Hannibal
Valdimarsson, skólastjóri gagn-
fræðaskólans, misti svo gersam-
lega stjórn á sjer, að hann rjeð-
ist að Sigurði Bjarnasyni alþm.
og sló hann í andlitið!“
Af þessu óvenjulega máli var
hermt á baksíðu Morgunblaðsins
fyrir sjötíu árum, föstudaginn 25.
janúar 1946. Ennfremur sagði:
„Þessi atburður vakti að von-
um hneyksli fundarmanna og Ís-
firðingar tala nú ekki um annað
meir en skólastjórann og æsku-
lýðsleiðtogann, sem grípur til
handaflsins, þegar öll rök þrýtur.
Borgarafundurinn var mjög
fjölmennur og allharðar umræð-
ur með köflum. Ræðumenn Sjálf-
stæðismanna voru í sterkri sókn
á fundinum og var það áberandi,
hve málefnaflutningur þeirra
fekk góðan byr hjá fund-
armönnum. Þetta gat skólastjór-
inn ekki þolað, og undir lok fund-
arins misti hann alla stjórn á
sjer, óð um sem óður maður og
rjeðst að Sigurði Bjarnasyni og
sló hann.“
Þótti Morgunblaðinu það ekki
leyna sér að Alþýðuflokkurinn
væri mjög að tapa fylgi á Ísa-
firði.
GAMLA FRÉTTIN
Hannibal
sló Sigurð
Hannibal Valdimarsson Sigurður Bjarnason
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Bjarki Már Gunnarsson
handboltamaður
Nikola Karabatic
handboltamaður
Ásgeir Örn Hallgrímsson
handboltamaður