Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 44
Hulduher á
heimsvísu
237 RÆÐISMENN ERU Í ÞJÓNUSTU ÍSLENSKA RÍKISINS VÍTT OG BREITT UM HEIMINN.
ÚRLAUSNAREFNIN ERU AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM OG Á ÖLLUM TÍMUM
SÓLARHRINGSINS ENDA GERA VANDRÆÐI EKKI ALLTAF BOÐ Á UNDAN SÉR. UM
ÓEIGINGJARNT STARF ER AÐ RÆÐA Í ÞÁGU LANDS OG ÞJÓÐAR EN RÆÐISMENN FÁ
EKKI GREIDD LAUN. SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS SLÓ Á ÞRÁÐINN TIL
FJÖGURRA RÆÐISMANNA Í ÞREMUR HEIMSÁLFUM OG FÉKK INNSÝN Í STARFIÐ.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
RÆÐISMENN ÍSLANDS
ALBANÍA
BAHAMAEYJAR
BRASILÍA
SÍLE KÝPUR
LÚXEMBORG
EKVADOR
MEXÍKÓ
ÞÝSKALAND
MÓSAMBÍK
GVATEMALA
NOREGUR
ÁSTRALÍA
BÚLGARÍA
KOSTARÍKA
DANMÖRK
MALDÍVEYJAR
FINNLAND
GRIKKLAND
NÝJA-SJÁLAND
PANAMA
ARGENTÍNA
BANGLADESS
JERSEY
TÉKKLAND
MALASÍA
EISTLAND
MÓNAKÓ
GÍBRALTAR
UNGVERJALAND
AUSTURRÍKI
BELGÍA
KANADA
KRÓATÍA
DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ
MALTA
FRAKKLAND
GRÆNLAND
NÍKARAGVA
PERÚ
ÍTALÍAPÚERTÓ RÍKÓ
LAOS
SERBÍA
ÍRLAND
PÓLLAND
RÚMENÍA
LIECHTENSTEIN
SLÓVENÍA
FILIPPSEYJAR
JAMAÍKA
SUÐUR-KÓREA
LETTLAND
SINGAPÚR
ÍSRAEL
PORTÚGAL
LITHÁEN
SLÓVAKÍA
SPÁNN
SVÍÞJÓÐ
SUÐUR-AFRÍKA
SRÍ LANKA
SVISS
TAÍLAND
TÓGÓ
SÝRLAND
HOLLAND
BANDARÍKIN
ÚRÚGVÆ
VÍETNAM
BRETLAND
VENESÚELA
JEMEN
1
RÚSSLAND2
10
31
2
2
HVÍTA-RÚSSLAND1
ÚKRAÍNA1
TYRKLAND3
TÚNIS1
MAROKKÓ2
KASAKSTAN1 MONGÓLÍA1
KÍNA1
JAPAN4
ÍRAN1
PAKISTAN2 NEPAL1
INDLAND2
1
1
1
1
3
1
3
1
3
2
1
1
1
14
1
7
10
4
10
3
1
3
1
1
1
1
5
1
1
3
1
1
2
1
1
1
1
2
8
2
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
8
5
8
11
2
1
3
1
1
1
1
1
1
INDÓNESÍA
Í
sland er lítil þjóð og utanríkis-
þjónustan ber þess að sjálf-
sögðu merki. Starfræktar eru
22 sendiskrifstofur á erlendri
grundu sem þykir ekki mikið
í alþjóðlegu samhengi. Net kjörræð-
ismanna er á hinn bóginn þétt og
eru þeir nú 237 talsins – í hinum og
þessum löndum. Langflestir í
Bandaríkjunum, eða 31. Oftast er
um ríkisborgara viðkomandi lands
að ræða en í fáeinum tilfellum eru
ræðismennirnir frá Íslandi eða
þriðja landinu, þá helst öðrum nor-
rænum ríkjum.
Allt á þetta fólk það sameiginlegt
að vera með afbrigðum bóngott en
starfið er ólaunað. Verkefni geta
knúið dyra á öllum tímum sólar-
hringsins og það er ekki fyrir hvern
sem er að rísa úr rekkju um miðja
nótt til að greiða götu vandalausra
sem viðkomandi hefur yfirleitt ekki
hitt áður. Hvað þá meira. Hjá utan-
ríkisráðuneytinu er símavakt allan
sólarhringinn sem sinnir málum Ís-
lendinga í vanda erlendis og frá
henni er beint samband við sendi-
ráðin og ræðismennina, og öfugt.
Jónína Sigmundsdóttir og Jóhann
Jóhannsson, starfsmenn utanríkis-
ráðuneytisins, sem bera hitann og
þungann af samskiptum við ræðis-
mennina, segja framlag þessa fólks
ómetanlegt. Það sé yfirleitt reiðubú-
ið að leggja meira á sig en hægt sé
að ætlast til við hinar ýmsu að-
stæður. „Í 99% tilvika erum við
mjög heppin með fólk,“ segir Jón-
ína.
Umhyggja fyrir
náunganum
Þau líkja ræðismönnunum við
björgunarsveit eða hulduher sem
erfitt væri að vera án. Yfirleitt sé
Bjargvættir í útlöndum
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Elizabeth Sy, aðalræðismaðurÍslands í Manila, höfuðborgFilippseyja, hafði engin tengsl
við Ísland og hafði aldrei komið til
landsins þegar henni var boðið að
taka að sér starf aðalræðismanns.
Mörgum árum áður hafði hún að vísu
rekist á grein um Ísland í bæklingi
um ferðalög, þar sem fegurð og und-
ur landsins voru vegsömuð. „Ég var
svo heilluð að ég geymdi bæklinginn
og hét mér því að ég myndi einhvern
tíma heimsækja og upplifa Ísland,“
segir hún.
Sy var skipuð aðalræðismaður í
maí 2013. „Síðla árs 2012 kom ís-
lenskur kaupsýslumaður í Asíu,
Haukur Harðarson, að máli við mig
og spurði hvort ég hefði áhuga á að
taka starfið að mér þar sem þáver-
andi ræðismaður væri að hætta.
Fljótlega eftir það hitti ég Stefán
Stefánsson, sendiherra Íslands í Jap-
an, Indónesíu og á Filippseyjum, og
hann mælti með mér við utanrík-
isráðuneytið í Reykjavík,“ segir hún.
Hjónavígslur algengar
Sy segir starfið alls ekki íþyngjandi.
Tvö til þrjú mál komi upp á mánuði.
Vegabréfamál eru algeng en einnig
þarf reglulega að aðstoða Íslendinga
að sækja um leyfi til að ganga í
hjónaband en býsna algengt er að Ís-
lendingar gangi að eiga Filippsey-
inga. „Einnig kemur endrum og sinn-
um fyrir að ég þurfi að hjálpa
íslenskum ríkisborgurum sem lent
hafa í ögrandi aðstæðum,“ segir hún
án þess að skilgreina það nánar.
Það hefur vakið athygli Sy hversu
víðsýnir og lausnamiðaðir Íslend-
ingar eru upp til hópa sem geri starf
hennar mun auðveldara og skemmti-
legra. „Ég sé líka hversu mikla um-
hyggju Íslendingar bera fyrir land-
inu sínu. Þeir eru yfirleitt mjög
stoltir af að vera Íslendingar. Þetta
kemur gjarnan í ljós á ræðismanns-
skrifstofunni minni en íslenski fáninn
og kortið af landinu fyrir aftan skrif-
borðið mitt gleðja þá nánast án und-
antekningar. Þegar þeir eru fjarri
heimahögum skiptir máli að hafa „lít-
inn part“ af landinu í Manila,“ segir
hún.
Fastur á flugvelli í Kína
Sy segir eftirminnilegasta málið snúa
að Íslendingi sem lenti í hremm-
ingum á leið sinni frá Íslandi á ráð-
stefnu í Manila. Hann þurfti að milli-
lenda í Peking og þar sem innan við
sex mánuðir voru eftir af gildistíma
vegabréfsins hans neitaði Philippine
Airlines að hleypa honum um borð í
flug sitt til Manila.
Maðurinn sendi Sy strax tölvupóst
en þar sem þetta var á sunnudegi og
hún í helgarfríi í sumarbústað með
stopulu netsambandi sá hún bréfið
ekki fyrr en morguninn eftir.
Sy hringdi strax út um allar trissur
til að freista þess að greiða götu
mannsins sem átti að halda erindi á
ráðstefnunni og tíminn var að verða
naumur. „Á sama tíma var maðurinn
orðinn mjög áhyggjufullur, þar sem
hann ráfaði um flugvöllinn í Peking,
enda var hann ekki með dvalarleyfi í
Kína. Átti bara að millilenda þar,“
segir hún.
Ekki er hlaupið að því að fá til-
skilin leyfi fyrir neyðarvegabréfi og
það var ekki fyrr en á hádegi á
þriðjudegi að Sy var komin með
pappíra sem dugðu manninum til að
komast um borð í vélina í Peking.
„Ég tók sjálf á móti manninum á
flugvellinum í Manila og afhenti hon-
um neyðarvegabréfið sem kom hon-
um inn í landið. Áður en leiðir skildi
greindi hann mér frá þessari hræði-
legu lífsreynslu á flugvellinum í Pek-
ing. Þar sem hann hafði ekki áritun
til Kína mátti hann, lögum sam-
kvæmt, ekki vera þar lengur en sem
nam millilendingunni. Fyrir vikið
hafði honum varla komið dúr á auga,
þessar 48 klukkustundir sem hann
var á flugvellinum; þorði ekki að halla
ELIZABETH SY, AÐALRÆÐISMAÐUR Í MANILA
Dularfullur arfur sem
aldrei skilaði sér
Elizabeth Sy segir Íslendinga upp til
hópa víðsýna og lausnamiðaða.