Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Ef í ljós kæmi í þjóðaratkvæðagreiðslu eða framkæmu sannfærandi vísbendingar í skoðana-könnunum, að tiltekið lagafrumvarp stríddi
gegn meirihlutavilja þjóðarinnar, öll almanna-
samtök sem tjáðu sig um frumvarpið væru því and-
víg, fagaðilar og sérfræðingar vöruðu við því, það
kæmi óvéfengjanlega til með að bitna á ríkissjóði og
þar með skattgreiðendum, það myndi koma illa við
neytendur í verðlagi og vöruúrvali – hvað mynduð
þið kalla það, ágætir lesendur, ef um helmingur
þingmanna tæki sig til við slíkar aðstæður og
ákvæði að virða lýðræðislegan vilja að vettugi,
hunsa þá sem hefðu mesta þekkingu á málinu, blása
á allar rannsóknarskýrslur og lögfesta frumvarpið?
Ég gleymdi einu: Blása á samþykkta stefnu í
lýðheilsumálum sem bæði síðasta ríkisstjórn og sú
sem nú situr hafa samþykkt.
Að sjálfsögðu er ég að tala um frumvarp sem
liggur fyrir Alþingi og kveður á um að lögfesta
bann við því að ríkið annist áfengissölu eins og nú
er gert í ÁTVR-verslunum ríkisins. Samkvæmt
frumvarpinu er ætlunin að færa þessa verslun inn í
matvöruverslanir landsins.
Fáir véfengja að dreifingarmátinn í nýju fyr-
irkomulagi yrði kostnaðarsamari og myndi skila
sér í hærra verðlagi. Hátt verðlag á áfengi er til
komið vegna áfengisgjalda, óháð söluaðilum. Héld-
ust þessi gjöld óbreytt eftir að Bónus, Hagkaup og
Krónan væru komin með áfengið í sínar hillur þá
myndi áfengisverðið hækka til að mæta dýrari
dreifingarmáta og að sjálfsögðu verða mismun-
andi eftir því hvar væri á landinu. Enda áfengi
eins og „hver önnur vara“, svo vitnað sé í aðstand-
endur frumvarpsins.
Ríkið hefur eins og sakir standa beinan hagnað
af sölunni sem er þó aðeins brotabrot af tilkostn-
aði ríkisins við að glíma við afleiðingar áfeng-
isneyslu. Það eru þessir peningar sem stóru versl-
unarkeðjurnar eru að slægjast eftir.
Athygli vekur að nær allir umsagnaraðilar um
frumvarpið eru því andvígir nema þeir sem sjá í
því peningalegan ávinning fyrir sig!
Ekki hef ég séð álit Neytendasamtakanna en
þau hljóta að horfa til áhrifanna sem breytt fyrir-
komulag hefði á verðlag og síðan vöruúrval. Á
báðum póstum fellur nýja frumvarpið á prófinu!
Þingmaður sem ég átti orðastað við sagðist ætla
að styðja frumvarpið þrátt fyrir að hann væri
sannfærður um að það myndi leiða til aukinnar
áfengisneyslu að færa söluna inn í almennar mat-
vöruverslanir og virkja þar með markaðslögmálin
sem þar ráða. „Ég vil bara að hver og einn taki
ábyrgð á sjálfum sér,“ sagði þessi ágæti þingmað-
ur.
En nákvæmlega það erum við að gera, taka
ábyrgð sem einstaklingar. Við gerum það með því
að virða lýðheilsusjónarmið, hlusta á forvarnar-
og æskulýðssamtök og þær starfsstéttir sem best
þekkja til og síðan á rödd skynseminnar innra
með okkur, er það ekki nákvæmlega svona sem
farið er að því að axla ábyrgð?
Og þá aftur að spurningunni. Ef meirihluti
landsmanna er þessarar skoðunar og ÖLL samtök
sem láta sig málið varða ráðleggja á sama veg,
hvað köllum við það þá þegar þessi vilji er huns-
aður af örfáum einstaklingum á Alþingi?
Svari hver fyrir sig.
Spurt er
*Athygli vekur að nær all-ir umsagnaraðilar umfrumvarpið eru því andvígir
nema þeir sem sjá í því pen-
ingalegan ávinning fyrir sig!
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Þorsteinn Guðmundsson, grín-
isti og leikari með meiru, vekur
athygli á sjónvarps- og útvarps-
auglýsingum sem
margir hafa eflaust
heyrt; þar sem
Víkingalottó er
auglýst undir þeim
formerkjum að
ríkir Norðmenn og Danir munu
verða enn ríkari þegar þeir vinna
stóra pottinn. Þorsteinn skrifar á
Twitter. „Skil ég þessa Víkingalottó
herferð rétt að við eigum að taka
þátt svo að þessir helvítis útlend-
ingar vinni ekki alltaf?“
Söngkonan og dansarinn Unnur
Eggertsdóttir sem býr um þess-
ar mundir vest-
anhafs, í New
York, þar sem hún
er í leiklistarnámi,
vitnar á Twitter í
meðleigjanda sinn
þar í borg sem staðhæfði að íbúð
þeirra lyktaði hræðilega. „Our
whole apartment smells like a
fucking fish died here.“ Meðleigj-
andinn ekki alveg að meta harð-
fiskinn minn. #íslenskikúrinn.“
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Símanum, birtir
mynd af byggingu nokkurri í Síðu-
múla á Twitter og skrifaði: „Allir
hlynntir ÁTVR fyrirkomulagi á
áfengissölu mega hugleiða að
þetta hús var áður Grænmet-
isverzlun ríkisins.“ Magnús bætti
svo við að á sínum tíma hefðu að-
alrökin fyrir því að mjólkurvörur
færu ekki í almennar verslanir ver-
ið hversu viðkvæmar þær væru í
geymslu.
Katrín Júlíusdóttir þingmaður
er skemmtilegur tístari um til
dæmis hin hvers-
dagslegu atvik lífs-
ins og skrifaði á
Twitter í vikunni:
„Hversu mikill
sykurfíkill er kona
sem ræðst á bökunarmarsipan
þegar ekkert annað finnst?“ skrif-
aði Katrín og henti einnig fram
spurningunni hvort það væri ör-
væntingarfullt eða svalt.
AF NETINU
Danaprinsessa skoðaði
íslenska hönnun
Marie Danaprinsessa sýnir því sem er að gerast
í hönnunarheiminum jafnan mikla athygli.
AFP
Jóakim Danaprins og eiginkona hans, Marie
prinsessa, eru í tveggja daga opinberri heim-
sókn hérlendis og hafa tekið þátt í hátíð-
arhöldum í tilefni af 100 ára afmæli Dansk-
Islandsk Samfund, samtaka sem hafa það hlut-
verk að styrkja tengsl ríkjanna.
Meðal dagskrárliða var að fara í bíltúr og
skoða áhrif dansks arkitektúrs á umhverfi
Reykjavíkurborgar og í gærdag fór Marie
prinsessa meðal annars í verslunina Epal til að
kynna sér það besta sem er að gerast í ís-
lenskri hönnun.
Marie er annáluð smekkkona og vekur það
ætíð athygli hvað það er sem prinsessan sýnir
áhuga. Kemst það því gjarnan í danskar fréttir
þegar hún hrósar sérstökum hönnuðum eða
hönnun enda dýrmætt að fá slíka athygli úr
konungshöllinni. Á þetta jafnt við um fata-
hönnun, listmuni og húsgögn og á dögunum
var ein fyrirsögnin í dönskum miðlum á þá leið
að prinsessan hefði verið bergnuminn af
George Jensen og fatahönnuðurinn Malene
Berger hefur líka mátt baða sig í ljóma þess að
Marie hefur hrósað henni í hástert á opinber-
um vettvangi.
Í Epal gaf Marie sér góðan tíma til að skoða
íslenska hönnun meðan tveir öryggisverðir
biðu fyrir utan verslunina í Skeifunni og fékk
hún góða leiðsögn um verslunina hjá eiganda
verslunarinnar, Eyjólfi Pálssyni. Meðal þess
sem aðrir viðskiptavinir verslunarinnar tóku
eftir að hún veitti góða athygli var svokallaður
birkibakki myndlistarkonunnar Sveinbjargar
Hallgrímsdóttur.
Hönnunarlína Sveinbjargar kallast einfald-
lega Sveinbjörg en hún vinnur grafíklistaverk
sín í efnivið eins og tréristur og kopar svo úr
verða nytjavörur; kertastjakar, púðar, dúkar,
ullarteppi og fleira. Þá hafa postulínsvörur
hennar vakið mikla athygli sem skarta fugla-
og plöntumunstri og birkibakkinn umtalaði er
með vísanir í íslenska náttúru.
Opinberri heimsókn þeirra Jóakims og Mar-
ie lauk í gærkvöldi með hátíðarkvöldverði
Dansk-Islandsk Samfund á Hótel Holti.
Munir Sveinbjargar Hallgrímsdóttur myndlist-
arkonu eru meðal þess sem prinsessan skoðaði.
Vettvangur