Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 4
* Þetta skiptir talsverðu máli fyrir þá sem setja sín hjólsaman sjálfir og fyrir viðhald á reiðhjólum. Árni Davíðsson, stjórnarmaður í Landssamtökum hjólreiðamanna.ÞjóðmálINGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR
ingarun@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Ódýrara að fata sig upp
Á meðal þeirra tolla sem voruafnumdir um áramótin erutollar af fatnaði og skóm.
Þessi lækkun nær til 324 toll-
skrárnúmera. Er um að ræða ým-
iss konar fatnað, til dæmis notaðan
fatnað, skófatnað, höfuðfatnað, leð-
urfatnað, loðskinn, fatnað úr plasti
og gúmmíi sem og fylgihluti þeirra;
hnappa, tölur og rennilása.
Afnám tolla af fatnaði og skóm
ætti að skila 13% meðallækkun
verðs til neytenda á þeim vörum
sem áður báru tollinn.
7,8% lækkun á fatalið
Kristjana Birgisdóttir, verk-
efnastjóri verðlagseftirlits ASÍ,
bendir á að þetta sé ekki alveg
svona einfalt. Þegar skoðað sé hlut-
fall þeirra vara sem beri toll kemur
í ljós að það er um 60%. Hún
reiknar því út miðað við það hlut-
fall að afnámið ætti að skila 7,8%
lækkun á liðnum fatnaður og skór í
vísitölu neysluverðs.
Þessar breytingar á tollum eiga
auðvitað að vera til hagsbóta fyrir
neytendur. Í töflunni hér að neðan
má sjá nokkur dæmi um 13% lækk-
un á fatnaði sem var áður fluttur
inn frá ríki sem ekki hefur fríversl-
unarsamning við Ísland eins og
Kína.
Kristjana vonast til þess að af-
nám tollanna á fatnaði og skóm
skili sér sem fyrst til neytenda með
lækkun á vöruverði og ætlar verð-
lagseftirlit Alþýðusambandsins að
fylgjast vel með breytingunum og
hvetur neytendur til þess að gera
hið sama. Vandamálið er að hinn
almenni neytandi veit í flestum til-
fellum ekki frá hvaða löndum fatn-
aðurinn kemur og gerir það því
erfiðara um vik fyrir hann að fylgj-
ast með lækkun á einstaka fötum
eða skóm.
Hinsvegar ætti þetta að sjást
greinilega í undirvísitölunni sem
nær til fatnaðar og skóbúnaðar.
„Ég get ekki mælt þetta eins og
með mat og aðra hluti. Verðlagseft-
irlitið fylgir þessu ekkert eftir fyrr
en í febrúar, mars en við ætlum að
nota vísitöluna til samanburðar,“
segir Kristjana en það er óvinnandi
vegur að kanna þetta nú þegar út-
sölur standa yfir.
Góðar fréttir fyrir
hjólreiðafólk
Hjólreiðafólk sparar líka á þessu
því tollar á reiðhjólafatnaði og
-skóm falla niður rétt eins og á
öðrum fatnaði. Landssamtök hjól-
reiðamanna fagna þessu og sömu-
leiðis því að um áramótin féllu nið-
ur allir tollar á varahlutum fyrir
reiðhjól en þessi tollur var 10%.
Áður var búið að fella niður tolla á
reiðhjólum frá 1. mars 2013, þar
með rafmagnsreiðhjólum. Ljós og
hjálmar fyrir reiðhjól hafa verið
tollfrjáls í nokkurn tíma.
„Þetta skiptir talsverðu máli fyr-
ir þá sem setja sín hjól saman
sjálfir og fyrir viðhald á reið-
hjólum. Sala á varahlutum og íhlut-
um og fatnaði allskonar hefur jú
stóraukist síðustu ár með auknum
hjólreiðum,“ segir Árni Davíðsson,
fulltrúi í stjórn samtakanna.
„Viðhaldið virðist orðið miklu
meira. Fólk sem er að fara þetta
4.000 km á ári þarf að halda hjól-
unum við og er að kaupa hluti eins
og keðjur og kransa,“ segir hann.
„Þetta var líka mismununun, ef
þú keyptir heilt eða settir saman
sjálfur, þá var annað tolllaust og
hitt með tolli,“ segir hann.
Á vef LHM kemur fram að þrátt
fyrir meiri hjólreiðar og aukinn
fjölda sem noti reiðhjólið til sam-
gangna og æfinga hafi reiðhjólum
sem seljast ekki fjölgað undanfarin
ár. Sala á varahlutum, íhlutum og
fatnaði ýmiss konar hafi stóraukist
á sama tíma. Ljóst er að margir
þeirra sem hjóla búa sig betur á
allan hátt og halda hjólum sínum
vel við. Þetta getur því verið um-
talsverður kostaður hjá sumum,
sem ætti að verða minni eftir nið-
urfellingu tollanna.
Afnám tolla af fatnaði og
skóm ætti að skila 13%
meðallækkun verðs til
neytenda á þeim vörum
sem áður báru tollinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TOLLUR AF FATNAÐI OG SKÓM VAR AFNUMINN UM ÁRAMÓTIN OG Á ÞAÐ AÐ SKILA 13% MEÐALLÆKKUN Á ÞEIM VÖRUM SEM ÁÐUR BÁRU TOLLINN,
SEM ER UM 60% ÞESSARA VARA. MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ ÆTTI AFNÁMIÐ AÐ SKILA 7,8% LÆKKUN Á LIÐNUM FATNAÐUR OG SKÓR Í VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS.
Árni
Davíðsson
Kristjana
Birgisdóttir
Nokkur dæmi um verðlækkun
46.995
13.990
69.500
35.700
8.900
40.886
12.171
60.465
31.059
7.743
-6.109
-1.819
-9.035
-4.641
-1.157
Heimild:ASÍ
Verð 2015 Verð 2016