Morgunblaðið - 16.02.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 16.02.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er í raun skelfilegt að hafa ekki höfnina í meiri notkun. Þetta er upp á líf og dauða fyrir okkur,“ segir Magn- ús Bragason, hótelstjóri Hótels Vest- mannaeyja, en ferðaþjónustufyrir- tæki í Vestmannaeyjum fá ekki þann straum ferðamanna til sín sem farið hefur um Suðurlandið í vetur. Á með- an Herjólfur siglir ekki frá Landeyja- höfn fara nánast engir ferðamenn til Eyja. Þannig segir Kristín Jóhanns- dóttir, safnvörður Eldheima, nokkra daga líða án þess að hún sjái sálu koma í safnið, eins og hún orðar það í samtali við Morgunblaðið. Undir þetta taka fleiri ferðaþjón- ustufrömuðir í Vestmannaeyjum. Ferðamenn eru sjaldséðir um þessar mundir og veitingahús hafa brugðist við þessu með því að hafa eingöngu opið yfir sumarmánuðina eða hafa lokað í janúar og febrúar. Opnunar- tími í söfnum hefur verið styttur og hjá sumum aðeins opið eftir þörfum. „Ef við fengjum bara lítið brot af þessum 2.000 ferðamönnum sem koma daglega í Reynisfjöru hérna hinum megin, þá værum við nokkuð ánægð með það,“ segir Magnús. Lítið hefur verið um bókanir í gist- ingu í Eyjum í vetur og Magnús segir veturinn núna frábrugðinn frá þeim síðasta, þegar mikið bar á afbókunum í febrúar, mars og apríl. Nú hafi ferðamenn einfaldlega varla bókað í vetur, þó að vel horfi með næsta vor og sumar. Kristín Jóhannsdóttir segir það dapurlegt að geta ekki komið fleiri ferðamönnum til Eyja yfir vetrar- mánuðina. Á sama tíma rekist ferða- menn hver á annan í miðborg Reykja- víkur og fjölmenni síðan í rútuferðir austur fyrir fjall. Nauðsynlegt sé að bæta samgöngurnar um Landeyja- höfn. „Við gætum verið hér með fjölda heilsársstarfa ef samgöngu- málin væru í lagi. Hingað er vissulega flogið daglega en ferðamenn eru ekki að borga það sama fyrir flug til Eyja og á milli London og Keflavíkur,“ segir Kristín og telur að skoða ætti möguleika á að niðurgreiða flug til Eyja yfir veturinn á meðan ekki sé hægt að nota Landeyjahöfn. Ferða- menn taki ekki langa siglingu frá Þor- lákshöfn, það sé orðið margsannað. Fjárfestingar illa nýttar Páll Marvin Jónsson, formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, segir stöðu ferðaþjónustunnar í Eyjum vera slæma. Fyrirtækin hafi bundið miklar vonir við að fá nýja ferju og ráðist hafi verið í fjárfesting- ar sem séu illa nýttar yfir vetrar- mánuðina. „Síðasta ár var mjög slæmt. Herj- ólfur sigldi í Landeyjahöfn í um 50% tilvika og það er erfitt að markaðs- setja Eyjar á meðan siglt er til Þor- lákshafnar. Þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á að laga samgöngurn- ar og tryggja siglingar hingað lengur en í fimm til sex mánuði á ári. Helst vildum við hafa það 12 mánuði en kannski er raunhæfara að stefna á 10 mánuði. Síðan er annað mál varðandi flutningsgetuna; þó að siglt sé í Land- eyjahöfn nær Herjólfur ekki alltaf að anna eftirspurninni. Annaðhvort verður að koma stærra skip eða að skipum verði fjölgað sem sigla hér á milli,“ segir Páll. „Upp á líf og dauða fyrir okkur“ Morgunblaðið/RAX Samgöngur Herjólfur siglir núna sjaldan á milli Eyja og Landeyjahafnar.  Ferðamenn sjást varla í Vestmannaeyjum  Koma ekki nema siglt sé frá Landeyjahöfn  Lítið um bókanir í hótelgistingu  Kallað eftir nýrri ferju  Flugfarið of dýrt  Veitingahús með vetrarlokun „Nú síðast kom afbókun frá kín- verskum ferðamanni í gær [sunnudag] sem hafði bókað þau hjónin síðasta sumar í gist- ingu hjá okkur í vikunni. Þau voru komin í Landeyjahöfn og biðu þar eftir ferjunni,“ segir Magnús Bragason hótelstjóri en Herjólfur hefur nær eingöngu siglt á milli Eyja og Þorláks- hafnar síðustu vikur og mánuði. Höfðu kínversku hjónin þá aflað sér upplýsinga, við kom- una til landsins, um samgöngu- máta til Vestmannaeyja, og tal- ið að siglt væri frá Landeyja- höfn og stillt GPS-kerfið í bílaleigubílnum þannig. Magnús segir mörg svona til- vik koma upp, því miður. Voru komin í Landeyjar FERÐAMENN AFBÓKA Guðni Einarsson gudni@mbl.is Einar Rúnar Sigurðsson, stofnandi og aðalleiðsögumaður Local Guide í Hofsnesi í Öræfum, gekk á skíðum á Hvannadalshnjúk á sunnudaginn var. Þetta var 281. ferð hans á hæsta tind Íslands. Hann gekk rúm- lega 34 km á 9 klukkustundum og 24 mínútum og hæðarmunurinn var um 2.000 metrar. „Ég lagði af stað af tröppunum heima klukkan 6.30 um morguninn og var sjö tíma upp á hnjúkinn. Það er 17 kílómetra leið. Ég var enga stund niður miðað við hvað maður var lengi upp. Ég var um tvo og hálfan tíma ofan af toppnum og rann heim á hlað fyrir klukkan 16.00. Ég hef aldrei fyrr gengið al- veg að heiman upp á Hnjúk og rennt mér aftur heim,“ sagði Einar. Fyrsti kílómetrinn að heiman er aflíðandi en þó það mikill halli að hann rann það viðstöðulaust á heim- leiðinni. Eftir 1,5 km er komið í meira fjalllendi og er bratt alveg upp í 1.800 m hæð. Leiðin yfir gíg Öræfajökuls er um fjórir km og næsta slétt. Síðan tekur við sjálfur Hvannadalshnjúkur, sem er brattur. Einar kvaðst hafa valið aðra leið til baka á kafla en þá sem hann fór upp. Hann lenti í lausasnjó á um kílómetra kafla á uppleiðinni og sökk djúpt í þótt hann væri á skíð- unum. Undir lausamjöllinni var grjót og því ekki hægt að skíða þar yfir. Einar sagði að hann myndi ekki eftir jafn miklum snjó og nú í Öræfum síðan hann var drengur. Snjórinn er svo mikill að Einar gat rennt sér yfir Gljúfur, sem er fullt af snjó. Hann sagðist hafa þurft að hafa varann á á köflum vegna snjóflóða- hættu, sérstaklega í um 700 metra hæð, en ekki á jöklinum eða á sjálf- um Hnjúknum. Á Facebook-síðu Einars (Local Guide – of Vatnajok- ull) er hægt að sjá leiðina. Hann sagðist hafa farið á Hvannadalshnjúk í öllum mánuðum en aldrei öllum mánuðum á sama árinu. Einar stefnir að því að fara á Hnjúkinn í hverjum mánuði ársins 2016. Fyrstu ferðina fór hann 30. janúar og aðra ferðina 14. febrúar. „Veðrið og skyggnið var snilld. Það var um 12 stiga frost á toppn- um. Það munaði um sólina. Það var miklu kaldara í janúar og það var kaldasta ferð sem ég hef farið. Nú var ég með lambhúshettu, skíða- grímu og skíðagleraugu allan tím- ann til að kala ekki í framan. Svo var ég með þykkar dúnlúffur, hlýir hanskar dugðu ekki. Maður þarf að vera klæddur eins og geimfari á þessum árstíma,“ sagði Einar. Einar telur að ástæða sé til að mæla hæð Hvannadalshnjúks nú í maí. „Ég gæti trúað að nú nái hann sinni gömlu hæð, 2.119 metrum. Síð- ast var hann mældur eftir mikið hlý- indaskeið og í lok sumars. Það á að mæla þetta fjall eftir góðan snjóa- vetur og áður en sumarið er komið fyrir alvöru,“ sagði Einar. Hann fékk vin sinn til að mæla hæð Hnjúksins með vönduðu landmæl- ingatæki fyrir þremur árum og þá mældist tindurinn yfir 2.113 metrum. Einar sagði að heilmikið hefði bæst við hnjúkinn síðan þá, sérstaklega í fyrra og í vetur. Ljósmynd/Einar Rúnar Sigurðsson Kominn heim Einar fór sína 281. ferð á Hvannadalshnjúk á sunnudaginn var. Hann fór að heiman og heim á skíðum. Gekk á Hvannadalshnjúk á skíðum og renndi sér heim  Mikill snjór er á Öræfajökli og Hnjúkurinn hefur hækkað Ágúst Ingi Jónsson Viðar Guðjónsson Norsku loðnuskipin hafa haldið uppi vinnslu í frystihúsum á Fáskrúðs- firði og í Neskaupstað undanfarið. Nokkur skip voru í höfn á þessum stöðum í gær og nú hefur Vopna- fjörður bæst við, en þar voru þrjú norsk loðnuskip í gær. Fiskilykt var komin í frystihúsið á staðnum, en lítið hefur verið unnið þar síðan í haust að síldarvertíð lauk. Íslensku fyrirtækin gera tilboð í aflann hjá útgerðum norsku skip- anna og hefur talsvert verið landað hér að undanförnu. Um miðjan dag í gær voru 20 norsk loðnuskip á miðunum fyrir austan, tólf til viðbótar að landa hér og sjö á heimleið. Mest mega 25 norsk skip vera að veiðum í einu og ekki lengur en til og með 22. febrúar. Norðmenn voru í gær búnir að veiða 41.800 tonn, en þeir fengu upp- haflega um 45 þúsund tonna kvóta og fengu síðan einnig rúmlega 13 þúsund tonn frá Grænlendingum. Í gær var orðið hvasst á miðum og um hálfátta í gærkvöldi voru einungis 2-3 skip ekki komin til hafnar. Íslenskum loðnuskipum fjölgar í vikunni Af íslensku skipunum voru Vil- helm Þorsteinsson EA, Hákon ÞH og Beitir NK úti af Stokksnesi í gær og Hornafjarðarskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds héldu út í gærmorgun. Búast má við að ís- lenskum skipum fjölgi á miðunum er líður á vikuna. Færeysku skipin Fagraberg og Finnur fríði eru byrjuð á loðnuveið- um og grænlenska skipið Polar Am- aroq var að ljúka loðnuleit með skip- um Hafrannsóknastofnunar. Óhætt er að segja að víða sé beðið fregna af niðurstöðum loðnumælinga. Um 600 tonn fryst á sólarhring Jón Gunnar Sigurjónsson, frysti- hússtjóri hjá Síldarvinnslunni, segir að afli Norðmannanna hafi verið keyptur svo einhverja vinnu hafi ver- ið að hafa fyrir starfsfólk. „Við erum að vinna á fullu við að frysta loðnu,“ segir Jón Gunnar. Hann segir að engin fordæmi séu fyrir því að svo mikill afli hafi verið keyptur af Norð- mönnum. „Við erum að frysta um 600 tonn á sólarhring,“ segir Jón Gunnar. Hann segir að aflinn verði svo seldur á Asíumarkaði og til Úkraínu. „Við hefðum viljað selja þetta til Rússlands en eins og allir vita sáu einhverjir til þess að við getum ekki gert það,“ segir Jón Gunnar. Fá um helmingi lægra verð Hann segir að Síldarvinnslan fái um helmingi minna fyrir aflann á þessum mörkuðum en í Rússlandi. Hann segir að vinnan muni standa út vikuna. „Nú vonumst við bara til þess að bætt verði við kvótann eftir mælingar,“ segir Jón Gunnar. Fjöldi norskra skipa landar hér  Beðið fregna af loðnumælingum Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Í höfn Norsku loðnuveiðiskipin á Norðfirði. 600 tonn eru fryst á sólarhring.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.