Morgunblaðið - 16.02.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Orkustofnun hefur undanfarin ár
verið að safna upplýsingum um stað-
setningarhnit allra borhola í landinu.
Slíkar upplýsingar er yfirleitt að
finna fyrir nýrri holur og borholur
sem til dæmis
orkufyrirtæki og
hita- og vatns-
veitur láta bora
en enn vantar
upplýsingar um
hátt í fimm þús-
und holur, aðal-
lega þær eldri.
Í borholuskrá
Orkustofnunar
eru varðveittar
upplýsingar um
13.500 borholur. Þorvaldur Braga-
son, verkefnisstjóri gagnamála hjá
Orkustofnun, segir að Þorgils Jón-
asson hafi safnað þessum upplýsing-
um í áratugi, allt þar til hann hætti
vegna aldurs árið 2014. „Orkustofn-
un hefur síðustu ár verið að reyna að
finna staðsetningarhnit á eldri hol-
um. Áður en GPS-tæknin kom
skráðu menn ekki nákvæma stað-
setningu sem hægt er að færa í
kortagrunn og veita aðgang að í kor-
tasjá. Nokkrir sérfræðingar sem
starfa í þessum geira vinna með okk-
ur að þessu auk þess sem við erum í
góðu sambandi við borfyrirtæki,
veitufyrirtæki og aðra sem þekkja
vel til. Reynt er að finna allar holur
sem hafa verið boraðar í viðkomandi
sveitarfélagi, tekin ný mynd af
staðnum og GPS-mæling,“ segir
Þorvaldur.
Erfitt að finna holur
Haukur Jóhannesson jarðfræð-
ingur hefur unnið kerfisbundið að
þessu verkefni á Vestfjörðum, í Döl-
um og á Snæfellsnesi, samhliða öðr-
um störfum þar. Hann segir að
stundum sé erfitt að finna holur. Þær
séu oftast kenndar við lögbýlin og
ekki víst að landeigendur eða ábú-
endur þekki staðsetningu þeirra.
Hann segist stundum hafa náð þess-
um upplýsingum með því að hringja í
eldri ábúendur á hjúkrunarheimilum
eða annars staðar.
Haukur segir að aðrar upplýsing-
ar í borholuskrá Orkustofnunar nýt-
ist ekki ef staðsetning holunnar er
ekki kunn.
Í borholuskránni eru ekki aðeins
jarðhitaholur heldur einnig kalda-
vatnsholur og holur sem boraðar
hafa verið vegna framkvæmda af
ýmsu tagi.
Undir lok síðasta árs voru skráðar
13.518 borholur á Íslandi í borholu-
skrá Orkustofnunar. Einhverjar
hafa bæst við síðan. Sú elsta er frá
vetrinum 1904 til 1905 þegar leitað
var eftir köldu vatni í Vatnsmýri í
Reykjavík. Þorvaldur segir að 8.700
borholur séu staðsettar með nútíma
tækni. Því vantar enn upplýsingar
um nærri 5.000 borholur en stór
hluti þeirra er mannvirkjaholur.
Þorvaldur bendir á að borholu-
skráin geti reynst vel fyrir landeig-
endur til að meta væntanlegan ár-
angur borunar, með því að kanna
hvort til séu gögn um borholur í
grennd við fyrirhugaðan borstað og
árangur af þeim.
Birt á vefnum
Þorvaldur segir að það sé stefna
Orkustofnunar að hafa gögn sem
greitt hafi verið fyrir með opinberu
fé opin og helst sem aðgengilegust á
vef stofnunarinnar. Starfsmenn séu
komnir áleiðis með það en þetta sé
mikið verkefni sem taki sinn tíma. Í
borholuskránni sem nú er á vef
Orkustofnunar eru til dæmis upplýs-
ingar um það hverjir hafa látið bora
viðkomandi holu, auðkennisnúmer,
dýpi, bortíma og staðsetningarhnitin
ef þau eru kunn.
Orkustofnun leitar að 5000 borholum
13.500 holur hafa verið boraðar á Íslandi Orkustofnun heldur úti borholuskrá Safnar upplýs-
ingum um staðsetningarhnit Enn vantar upplýsingar um margar holur, aðallega þær eldri.
Morgunblaðið/Golli
Virkjun Borholur eru til af öllum stærðum og gerðum og boraðar í margvíslegum tilgangi. Ekki er vitað um ná-
kvæma staðsetningu allra og þá sérstaklega hvar elstu borholurnar eru að finna víða um landið.
Þorvaldur
Bragason
Hringbraut-miðlun ehf. | Sundagarðar 2 | 104 Reykjavík | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti
um starfsemi Almenna Lífeyrissjóðsins og viðtali
við framkvæmdastjórann Gunnar Baldvinsson.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ
Starfsemi
lífeyrissjóða
á Íslandi
í þættinum Atvinnulífið
sem er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.30 í kvöld
Heimsókn til Almenna Lífeyrissjóðsins
• Fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins
með um 40 þúsund sjóðsfélaga
• Fjölbreytt og vönduð eignastýring
• Húsnæðislán á bestu fáanlegu kjörum
• Öflug þjónusta við sjóðsfélaga
Á dagskrá
Hringbrautar
í kvöld kl. 20.30