Morgunblaðið - 16.02.2016, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016
✝ Salóme Marías-dóttir ljósmóðir
fæddist í Sætúni í
Grunnavíkurhreppi
30. mars 1927. Hún
lést 26. janúar
2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Marías Þorvalds-
son, sjómaður og
bóndi, f. 13. maí
1885 í Kjós í
Grunnavíkurhreppi, d. 7. ágúst
1956 í Hafnarfirði, og Sigríður
Jónsdóttir, húsmóðir og bóndi, f.
26. apríl 1894 á Húsavík, d. 20.
september 1974 í Reykjavík.
Systkini Salóme voru 15, þau
eru öll látin utan Sesselju Marí-
asdóttur Berthelsen, f. 1932,
sem býr í Kaupmannahöfn.
Samfeðra systur Salóme voru
Karólína Guðrún, f. 1914, d.
2005, og Halldóra Friðgerður, f.
band 1960 og voru alla tíð búsett
í miðbæ Reykjavíkur og frá
árinu 1972 til dánardags bjuggu
þau á Ásvallagötu 40.
Salóme ólst upp í foreldra-
húsum, fyrst í Grunnavík, en
fluttist 12 ára með foreldrum
sínum til Ísafjarðar. Hún flutti
til Reykjavíkur og lét draum
sinn um að verða ljósmóðir ræt-
ast þegar hún hóf nám 19 ára
gömul. Hún útskrifaðist með
ljósmóðurpróf 1948 og vann í
kjölfarið sem ljósmóðir á Land-
spítalanum þar til hún fluttist til
Kaupmannahafnar. Í Kaup-
mannahöfn starfaði hún um
tveggja ára skeið á fæðing-
ardeild Ringaards og Möllers á
Amager. Hún flutti aftur til
Reykjavíkur og starfaði sem
hjúkrunarstarfsmaður á hjúkr-
unarstöð Bláa bandsins við
Flókagötu á árunum 1956-1960.
Lengstan starfsferil átti hún á
elliheimilinu Grund en þar starf-
aði hún í rúm 30 ár, frá 1961, og
þar til hún lét af störfum sökum
aldurs.
Útför hennar var gerð, að
eigin ósk, í kyrrþey 5. febrúar
2016.
1919, d. 1970. Sam-
mæðra systur voru
Fanney Sigrún, f.
1914, d. 2008, Elín
Margrét, f. 1919, d.
1985, og Ásthildur
Valdís Engilráð, f.
1920, d. 1944. Al-
systkini voru Hólm-
fríður, f. 1922, d.
1939, Sigurjón, f.
1923, d. 1987,
Ragnheiður, f.
1924, d. 2007, Svanhildur, f.
1925, d. 2007, Guðmundur, f.
1928, d. 1929, Tryggvi Skarp-
héðinn, f. 1930, d. 2003, Unnur
Lovísa, f. 1934, d. 2013, Guð-
mundur, f. 1935, d. 1972, og
Hólmfríður Hulda, f. 1938, d.
1997.
Eiginmaður Salóme var
Markús Jóhann Eiríksson skrif-
stofumaður, f. 14. júlí 1916, d. 3.
apríl 1991. Þau gengu í hjóna-
Elsku Salla, ég sakna þín. Þú
áttir alltaf svo stóran sess í lífi
mínu. Sem barn og unglingur
gat ég leitað til þín þegar lífið
var mér ekki hliðhollt. Þá rædd-
um við málin í eldhúsinu þínu á
Ásvallagötunni. Það var dýr-
mætt að geta leitað til þín því
þú bjóst yfir trygglyndi og
styrk sem fæstum er gefinn. Ég
veit að margir úr fjölskyldunni
treystu á þig og komu oft og
tíðum í eldhúsið til þín og þáðu
frá þér ráð og þagmælsku á erf-
iðum stundum. Ég held að flest-
ir séu mér sammála um að þú
hafir verið sálusorgari og trún-
aðarmaður stórfjölskyldunnar.
Líf þitt og starf einkenndist af
umönnun og umhyggju fyrir
velferð þeirra sem á vegi þínum
urðu. Það er erfitt að geta sér
til um fjölda þeirra, en þeir
voru margir. Þær konur sem þú
aðstoðaðir sem ljósmóðir, þeir
sem vegna áfengissýki leituðu
aðstoðar á Bláa bandinu, þeir
fjölmörgu virðulegu heimilis-
menn Grundar á yfir 30 ára
tímabili og eiginmaður þinn
sem alla tíð bar menjar af 10
ára viðureign sinni við berkla.
Þú varst stoð og stytta margra.
En hvert leitaðir þú? Þeir
sterku gleymast stundum. Ég
veit að það var þér þungbært að
verða ekki barna auðið. Það var
mikil synd, þú hefðir orðið frá-
bær móðir. Það veit ég af eigin
raun því þú varst mér sem móð-
ir og dætrum mínum sem
amma.
Á yfirborðinu varstu óaðfinn-
anleg, sterk og lést ekki auman
blett á þér finna. Þeir sem
þekktu þig vel vissu hins vegar
að undir niðri varstu líka við-
kvæm, blíðlynd og til í alls kon-
ar fíflalæti. Mest held ég að þú
hafir hlegið þegar þú varst að
passa Kristlín, hún var svo opin
og uppátækjasöm og ólík öðrum
sem þú þekktir. Þú varst stolt
af Kristlín, hve sjálfstæð hún
var, trygg þér og dugleg að
mennta sig og ferðast. Þú elsk-
aðir að ferðast eins og hún og
gerðir það óspart. Bæði innan-
lands og víða um Evrópu þar
sem þú naust fegurðar og tón-
listar á fínustu stöðum. Við
ferðuðumst líka saman í seinni
tíð til staða sem þú hafðir ekki
haft tækifæri til að heimsækja,
um hálendi Íslands og til Am-
eríku. Fjölskyldan mín á góðar
og dýrmætar minningar af tím-
anum með þér.
Það er mér mikils virði að
hafa getað létt þér lífið og glatt
þig þegar þörfin var mest, síð-
ustu árin þín þegar heilsu þinni
tók að hraka og vinir og systk-
ini hurfu úr þessum heimi hvert
af öðru.
Á þessari stundu finn ég til
söknuðar. Söknuðar yfir því að
geta ekki framar fundið styrk
þinn þegar á þarf að halda og
gleði þegar vel gengur. Þú varst
svo innilega einlæg bæði í gleði
og sorg. Á sama tíma er ég
þakklát fyrir að hafa haft þig í
lífi mínu og dætra minna svona
lengi.
Þú varst vantrúuð á líf eftir
dauðann en ég vona að síðustu
orð mín til þín á dánarbeði hafi
ræst. Að amma og afi, mamma,
Markús, Jóhanna, Anna, María
og öll systkini þín hafi tekið vel
á móti þér.
Mér finnst líka eins og þessi
kveðja frá mömmu eigi að
fylgja.
Sof þú, systir,
eina eykt,
meðan und þín grær;
unz engill upprisunnar
leiðir þig
til örófs þíns,
þar sem vitund þín vex
í grasagarði Alvaldsins
og tilvera þín
angar,
eins og upphafið.
(Fríða Guðmundsson.)
Þín,
Ingilín Kristmannsdóttir.
Salóme
Maríasdóttir
HINSTA KVEÐJA
Sallamma, það var leið-
inlegt að þú gast ekki kom-
ið í níu ára afmælið mitt og
svo varstu dáin. Ég var
mjög sorgmædd þegar
mamma sagði mér það. Ég
samdi strax fyrir þig bæn
sem ég syng á kvöldin. Ég
vona að þú heyrir hana og
gleðjist yfir því sem ég gaf
þér.
Bjart á himni hér
ég leita ömmu er.
Salóme var góð og yndisleg.
Nú lífi hennar lokið
og hún dáin eins og er.
Ást og kveðja, þín
Marlín Ívarsdóttir.
Smáauglýsingar
Bækur
Hjólabækurnar vinsælu
- allar 4 í pakka
Hjólabækurnar allar 4 í pakka.
Vestfirðir, Vesturland, Suðvesturland,
Árnessýsla. Tilboð 5,900 kr. Sending
með Íslandspósti innifalin.
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
Sími 456-8181 eða 895 8260.
Hornstrandabækurnar
- allar 5 í pakka
Hornstrandabækurnar vinsælum allar
5 í pakka. Tilboð 7.900 kr. Sending
með Íslandspósti innifalin.
Vestfirska forlagið
jons@snerpa.is
Sími 456-8181 eða 895 8260.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
VANAÐIR DÖMUSKÓR ÚR LEÐRI
Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
Teg. 171 Tilboðsverð aðeins
5.900.-
Teg. 5528 Tilboðsverð aðeins
6.900.-
Teg. 619413 Litir: svart og rautt.
Tilboðsverð aðeins 6.900.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Frænka mín,
Ingibjörg Þórðar-
dóttir, lést 15. jan-
úar síðastliðinn. Mig
langar að minnast hennar með
nokkrum línum. Hún var yndisleg
kona og einstök á margan hátt.
Henni á ég margt að þakka.
Heimili þeirra Ólafs stóð mér
ávallt opið og sérstaklega skipti
máli fyrir mig þegar hún beitti
sér fyrir því að ég fengi skólavist í
Langholtsskóla á síðasta árinu
mínu í grunnskóla. Þann vetur
bjó ég hjá þeim hjónum þar sem
ég naut umhyggju og aðhalds en
þau aðstoðuðu mig við námið eftir
þörfum, smá hjálp í eðlisfræði,
stærðfræði, dönsku. Ég man vel
þegar danskir vinir þeirra hjóna
heimsóttu þau í Efstasundið og
Inga bað mig að ræða við þá á
dönsku meðan hún útbyggi mat-
inn og lagði síðan mikið upp úr því
að ég tæki þátt í samræðum með-
an við borðuðum. Það var ansi
margt sem ég lærði veturinn hjá
Ingu og Ólafi, hversu miklu það
skipti að árangri væri sýndur
áhugi, frelsið sem góðri menntun
fylgdi, að gæfan er undir okkur
sjálfum komin, ekki öðrum og svo
margt fleira. Hún ræddi oft við
mig um framtíðina, val á mennta-
skóla og til að ná árangri þyrfti
bæði eljusemi og dugnað. Sjaldan
Ingibjörg
Þórðardóttir
✝ IngibjörgÞórðardóttir
fæddist 16. mars
1922. Hún lést 15.
janúar 2016.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram 1. febr-
úar 2016.
hef ég skilað eins
góðum námsárangri
og þennan vetur.
Á menntaskóla-
árunum heimsótti
ég þau Ingu og Ólaf
oft og alltaf spurði
hún hvernig gengi
með námið og hafði
sýnilegan áhuga á
að vita hvernig
þessum unga bróð-
ursyni sínum gengi
enda held ég hún hafi að hluta tal-
ið sig bera ábyrgð á málinu þar
sem bróðir hennar bjó langt í
burtu. Já, margt á ég þessari
góðu konu og hennar fólki að
þakka. Blessuð sé minning henn-
ar.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Innilegar samúðarkveður til
fjölskyldunnar, hvíl í friði
frænka.
Ágúst Heimir Ólafsson.
Skarð er komið í
starfsmannahóp
Fastus ehf. Við
stöndum eftir og
eigum erfitt með að skilja að
Hilmar samstarfsmaður okkar
er skyndilega fallinn frá á
besta aldri.
Hilmar var einn af frumherj-
um hjá Fastus ehf. og starfs-
maður félagsins allan þann
tíma sem það hefur starfað eða
frá 2006. Samstarf hans við
marga af vinnufélögum og vin-
um var þó mun lengra og náði
meira en 20 ár aftur í tímann.
Hilmar hafði víðtæka reynslu
og þekkingu á tækjabúnaði fyr-
ir stóreldhús og matvælafram-
leiðendur. Hann var sérlega
rómaður fyrir skipulögð vinnu-
brögð og vandaðan frágang á
öllum tilboðum og fylgiskjölum.
Starfsmenn fyrirtækjasviðs
Fastus munu sakna þess að
geta leitað í þekkingarbanka
hans varðandi hin ýmsu úr-
lausnarefni sem að þessum
málum lúta.
Sérstaklega er vert að minn-
ast þess að Hilmar var, ef svo
má segja, maðurinn á bak við
tjöldin í ísvæðingu Íslendinga.
Hann sérhæfði sig í virkni ís-
véla og á heiðurinn af vali á
tækjum í stærstum hluta þeirra
Hilmar Örn
Bragason
✝ Hilmar ÖrnBragason
fæddist 5. desem-
ber 1968. Hann lést
4. febrúar 2016.
Útför Hilmars
fór fram 15. febr-
úar 2016.
fjölmörgu og ný-
stárlegu ísgerða og
ísbúða sem komið
hafa fram hin
seinni ár.
Milli Hilmars og
margra af traust-
ustu starfsmönnum
Fastus voru vin-
áttu- og tryggða-
bönd bundin í
löngu samstarfi.
Ýmsar minningar
um ferðir utan vinnu á hálend-
inu við veiðar og fleira skemmti-
legt hafa verið rifjaðar upp síð-
ustu dagana og hafa menn
fundið huggun í því að minnast
góðra stunda genginna daga.
Hilmar hafði mikla hæfileika
og víðtæka reynslu sem nýttist
honum í starfi. Hann fór hins
vegar ekki alltaf vel með sig og
tókst á við ýmis vandamál í líf-
inu eins og raunar margir þegar
upp er staðið.
Þrátt fyrir þetta skilaði Hilm-
ar ávallt góðu starfi og veitti
samstarfsmönnum sínum aðstoð
og miðlaði þekkingu til þeirra
þegar það átti við.
Starfsmannahópur Fastus
ehf. syrgir góðan samstarfs-
mann og félaga en um leið er
hugur okkar hjá fjölskyldunni
og þó einkum börnunum hans
tveimur, Birgi og Hildi. Megi
góður Guð styðja þau og aðra
fjölskyldumeðlimi í sorginni og
hið eilífa ljós lýsa honum um
alla eilífð.
Með vinsemd og virðingu,
fyrir hönd starfsfólks Fastus
ehf.,
Bergþóra Þorkelsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar