Morgunblaðið - 16.02.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 16.02.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er gríðarlega mikilvægt að við horfum ekki bara til nokkurra ára í senn heldur viljum við sjá 30-40 ár fram í tímann,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, en á síðasta stjórnarfundi fyrirtækisins var lagt fram minnisblað þar sem farið var yfir þróunaráform og næstu áfanga uppbyggingar við Sundahöfn. Gísli segir Sundahöfn vera nokkuð vel rammaða inn en hins vegar sé landrými af skornum skammti og nýta þurfi hvern hekt- ara eins vel og kostur er. Fyrstu áfangar hafnargerðar við Sundahöfn hófust fyrir um 50 árum. Í minnisblaðinu, sem Jón Þorvaldsson aðstoðar- hafnarstjóri tók saman, segir að þótt uppbyggingin sé nokkuð langt komin séu enn stór verkefni fram undan. Þróun hafnarinnar hafi tek- ið mið af breytingum í vöruflutn- ingum og sérstöðu landsins, sem byggist einkum á sjóflutningum á öllum vörum. Nú sé Sundahöfn orð- in miðstöð flutninga til og frá land- inu og til vörusöfnunar og -dreif- ingar um landið. Tvöföldun á næstu 30 árum Sundahöfn er nú um 160 hektar- ar, segir í minnisblaðinu, þar af eru farmstöðvar skipafélaga og annarra aðila um 55 hektarar. Hægt er að auka og þróa svæði fyrir farm- stöðvar skipafélaganna á svæðinu utan Klepps en landi á baksvæðum hefur að mestu verið ráðstafað. „Almennir vöruflutningar um Sundahöfn hafa tvöfaldast á síðustu tveimur áratugum úr 700 þúsund tonnum í 1.500 þúsund tonn og spáð er að flutningur geti tvöfald- ast á næstu 30 árum,“ segir í minnisblaðinu. Kynnt er áfangaskipt þróunar- áætlun um helstu verkefni í Sunda- höfn á gildistíma aðalskipulags Reykjavíkur árin 2010-2030, og vitnað til hennar hér til hliðar á síð- unni. Komið er að öðrum verk- áfanga þessarar áætlunar, þ.e. byggingu á nýjum 400 metra hafnarbakka utan Klepps og leng- ingu Kleppsbakka um 70 metra. Verkefnið er á langtímaáætlun og er kostnaður Faxaflóahafna áætl- aður um 2,5 til 3 milljarðar króna. Útboðshönnun bakkagerðar lýkur á vormánuðum en útboð á stálþili, stagefni og stálstaurum undir kranaspor fór fram í desember síð- astliðnum. Útboðsgögn fyrir byggingu bakk- ans eru í lokavinnslu og er miðað við að útboð verði auglýst í lok þessa mánaðar. Sundahöfn ekki eilífðarsvarið Gísli Gíslason segir starfsemina í Sundahöfn vera mjög mikilvæga. Miklu skipti að sem mest af vöru- flutningunum fari fram sem næst markaðssvæðinu. „Menn voru framsýnir á sínum tíma þegar ákveðið var að byggja upp Sundahöfn. Núna þurfum við að vanda okkur fyrir næstu ára- tugina. Það er ekki hægt að stækka athafnasvæðið endalaust og þess vegna er mikilvægt að nýta vel það svæði sem fyrir er,“ segir Gísli. Hann segir að innan tíu ára verði hægt að búa til land við Vatna- garða, en það verði þá loka- framkvæmd í landstækkun við Sundahöfn. „Til skemmri tíma höf- um við hafnarsvæðið á Grundar- tanga upp á að hlaupa, með vöru- flutninga sem þola meiri fjarlægð frá meginmarkaðnum, en sá tími mun koma þegar rætt verður um nýja aðstöðu við Faxaflóa,“ segir Gísli, sem telur það vera verkefni sveitarfélaganna að horfa til þess sameiginlega. „Sundahöfn er ekki svarið til allrar eilífðar en mun duga okkur vel nokkra áratugi til viðbótar. Lík- lega mun sá tími renna upp að skynsamlegt verði að vera með meginflutningastarfsemina norðan eða sunnan við Reykjavík. Þetta verður aldrei verkefni eins sveitar- félags heldur þarf að horfa á heild- armyndina. Við þurfum að sjá Faxaflóann sem eitt sameiginlegt svæði,“ segir Gísli. Vilja sjá 30-40 ár fram í tímann  Faxaflóahafnir með áætlanir til langs tíma við Sundahöfn  Minnisblað kynnt í stjórn  Fram- kvæmdir við nýjan hafnarbakka utan Klepps  Sjá þarf Faxaflóann sem eitt sameiginlegt svæði Morgunblaðið/Rósa Braga Sundahöfn Skipafélögin Eimskip og Samskip eru með aðstöðu við Sundahöfn, auk fleiri flutningafyrirtækja. Gísli Gíslason 2012-2014 Skarfabakki 2. áfangi, 200 metra hafnarkantur. Verkefni lokið. 2015-2019 Nýr 500 metra hafnarbakki utan Klepps, tekur við hlutverki núver- andi Kleppsbakka sem helsti vöruflutningabakki farmstöðvar Eimskips fyrir stærri og djúpr- istari skip. 2018-2020 Dýpkun Viðeyjarsunds og Klepps- víkur fyrir stærri gáma- og flutn- ingaskip með aukna djúpristu. Dýpkunarverk eru áfangaskipt. Umfang og tímasetningar ráðast af þróun í skipastærð og ristu skipa. Eftir 2020 Lenging Skarfabakka að Klepps- bakka og lokun á núverandi hafn- araðstöðu í Vatnagörðum. Þessari bakkagerð fylgir 8-10 hektara landfylling. Eftir 2025 Áfangaskipt tenging á nýjum hafnarbakka utan Klepps við nú- verandi Vogabakka. Bakkagerð unnin í nokkrum áföngum. VERKTÍMI VIÐ SUNDAHÖFN » Suðurhrauni 4, Garðabæ | Furuvellir 3, Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu ◆ KASSAR ◆ ÖSKJUR ◆ ARKIR ◆ POKAR ◆ FILMUR ◆ VETLINGAR ◆ HANSKAR ◆ SKÓR ◆ STÍGVÉL ◆ HNÍFAR ◆ BRÝNI ◆ BAKKAR ◆ EINNOTA VÖRUR ◆ HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 Engin ástæða er til annars en að vera bjartsýnn á meirihlutaviðræð- urnar sem standa yfir á milli Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar í Borgarbyggð. Góður taktur er í viðræðunum og ekki steytir á nein- um atriðum. Þetta segir Björn Bjarki Þorsteinsson, oddviti sjálf- stæðismanna, í samtali við mbl.is. Segir hann að verið sé að fara í gegnum öll málefni á eðlilegum hraða og að mögulega megi gera ráð fyrir einhverjum fréttum á morgun. „Það er verið að ræða saman á góðum nótum,“ segir hann. Fulltrúar flokkanna munu hittast aftur seinni partinn í dag. Upp úr meirihlutasamstarfi fram- sóknar- og sjálfstæðismanna slitn- aði í síðustu viku. Bjartsýni í viðræðum í Borgarbyggð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.