Morgunblaðið - 16.02.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.02.2016, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 ✝ ErlendurHilmisson fæddist í Reykja- vík 9. febrúar 1952. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. febrúar 2016. Foreldrar hans voru Hulda Sveins- dóttir, fædd 1932, látin 1992, og Hilmir Hinriksson, fæddur 1932, látinn 2005. Systkini Erlendar eru: Hólm- fríður, Björg, Brynjólfur, Júl- íana og Harpa. Erlendur á tvö börn, þau eru: 1) Bjarnþór, f. 24. janúar 1977. Synir hans eru Anton Breki, f. 1999, og Elvar Orri, f. 2007. 2) Berglind, f. 18. desem- ber 1979. Berglind á tvö börn: Jennýju Björk, f. 1999, og Arnar Kára, f. 2009. Jenný Björk á son- inn Guðbjörn Nóna, f. 2015. Móðir Bjarnþórs og Berglindar er Guðlaug Björk Bjarnþórsdóttir. Erlendur var al- inn upp í Hvera- gerði. Hann gekk í grunnskólann þar og síðan lá leið hans í Iðnskólann á Sel- fossi í nám í rafvirkjun og síð- an meistaranám í faginu og starfaði hann við það síðan. Síðustu árin starfaði hann á dvalarheimilinu Ási í Hvera- gerði. Útför Erlendar fór fram í kyrrþey. Elsku pabbi. Hvað getur mað- ur sagt? Þú varst einn af þessum góðu sem fóru allt of fljótt. Flestir ef ekki allir sem þú hafðir samskipti við geta borið vitni um það. Þú varst hlédrægur með ein- dæmum, hvers manns hugljúfi, greiðvikinn, glettinn og sam- kvæmt barnabörnunum drauma- afi. Hver getur séð í gegnum fingur sér með skemmdarverk sem eru unnin á heimilinu sínu á margan máta, sem manni fannst stundum jaðra við að húsið yrði fokhelt og garðurinn mátulega tættur fyrir kartöflurækt? Nei, þú sást bara það góða í barna- börnunum og börnum yfirleitt. Öll litlu afrekin sem barnabörnin þín unnu voru gerð miklu stærri í þinni sögu. Sem dæmi fór Anton Breki fjögurra ára í félagi við Jonna afa sinn á selveiðar, feng- urinn var einn selur og í þinni sögu skaut Anton Breki selinn, þá fjögurra ára gamall. Öll systk- ini þín litu upp til þín og leituðu til þín og við systkinin erum væng- brotin yfir því að geta ekki leitað til þín, þú varst bestur og verður áfram. Þær stundir sem ég átti með þér síðustu mánuðina í lífi þínu, og voru þær margar, stað- festa það enn frekar, þú gast ekki einu sinni látið heilbrigðisstarfs- fólk hafa áhyggjur af þér. Það var alltaf í lagi með þig, það átti aldr- ei neitt að snúast um þig. Þitt æðruleysi gagnvart öllu ætti að vera mörgum til eftirbreytni. Ég sakna þín óendanlega og geri allt sem í mínu valdi er til að tileinka mér öll þau góðu gildi sem þú kenndir mér, bara með því að vera til. Þinn sonur, Bjarnþór Erlendsson. „Sa var sa.“ Þetta er einn af þessum mörgu frösum sem Elli tautaði svona upp úr eins manns hljóði. Þýðir trúlega; það er nú það. Hann var mjög gjarn á að búa til allskonar setningar, oft upp úr hálfgerðu barnamáli sem hann lagði svo í munn barnanna í fjölskyldunni og bjó svo til ýmis nöfn á þau sem honum fannst passa, án þess að nokkur skildi hvernig hann fann þau. Öll börn löðuðust að Ella án nokkurrar fyrirhafnar. Hann talaði við þau, hann skildi þau og sýndi þeim áhuga enda var hann viðmótsljúf- ur við alla. Hann var ekki mikið fyrir margmenni, dulur og óframfærinn, en lék á als oddi í góðra vina hópi og innan um þá sem hann þekkti vel, var gaman- samur og stríðinn og lét menn heyra það ef honum sýndist svo, þannig að maður gat ekki annað en hlegið, enda oft mjög orðhepp- inn. Elli var einstaklega bóngóður. Ef eitthvað þurfti að laga, hvort sem var rafmagn eða annað, þá var ansi oft hringt í Ella og hann var kominn á augabragði og mál- ið leyst viðstöðulaust. Mamma hans heitin kallaði hann alltaf engilinn sinn. Hann var vanafastur. Eitt af því sem hann gerði ansi oft var að keyra niður Ölfusið, snúa við á Hraunsafleggjaranum og keyra rólega til baka, hann vildi fylgjast með úr fjarlægð hvað bændurnir hefðust að. Eftir að Bogga þurfti að hætta að vinna kom hann flesta föstudaga til hennar og þá fóru þau oft á rúntinn saman þeg- ar hann var búinn að fletta Mogg- anum. Eins kom hann stöku sinn- um í mat og það var ekki leiðinlegur félagsskapur. Eins eftir að hann þurfti að hætta að vinna vegna veikinda, símaði hún til hans daglega, ef hún fór þá ekki til hans – alltaf á sama tíma – það þótti honum vænt um. Þau voru náin. Húsbóndinn, eins og hann kallaði undirritaðan, fór til hans þegar konur hittust í kotinu og var í góðu yfirlæti á meðan og þeir drukku kannski sinn ölbauk- inn hvor, eitthvað var skrafað og stundum þagað. Elli hafði góða nærveru, hann var ekki bara mágur, hann var líka vinur og tók mér alltaf vel frá fyrstu stund. Sölvi, vinur hans og nágranni, bankaði hjá honum á hverju kvöldi, bara til að sjá og heyra, það var gott að vita af því, þeir voru góðir saman. Margir gráta nú góðan mann og sakna sárt. Elli er kominn í sælli veröld eftir erfið veikindi, Hilmir pabbi hans og Hulda mamma hans eru búin að taka á móti englinum sín- um. Hjörtur Benediktsson. Elsku Elli minn, nú ertu farinn frá okkur eftir erfiða baráttu við vondan sjúkdóm. Það er okkur huggun að vita að nú finnur þú ekki lengur til en mikið eigum við í Krubbhúsum eftir að sakna Ella frænda. Elli var einn af þessum mönn- um sem gátu allt. Það er alveg sama hvað bilaði eða hvað þurfti að græja, maður gat alltaf hringt í Ella og hann gat þá annaðhvort sagt manni hvað væri að eða komið og lagað það sjálfur. Hann hafði einstakt lag á því að sjá hvernig á að setja hluti saman, ólíkt okkur Birni. Nokkrum sinn- um höfum við hringt í Ella þegar við vorum strand að setja saman einhvern hlutinn úr IKEA og al- veg handviss um að eitthvað vantaði í kassann. Þá kom Elli yf- ir, rétt leit á teikninguna og það sem við vorum búin að gera, muldraði svo: „Þetta er svona, þetta er svona, já já.“ Svo: „Já, nei, þið þurfið að gera þetta, og þetta, og þá er þetta komið.“ Ótrúlegur. Ég á eftir að sakna þess að sjá ekki bláu Toyotuna á rúntinum, sakna þess að hitta ekki Ella frænda í kaffi hjá mömmu, heyra aldrei aftur „í Krubbhúsum“ eða „ógigagugugekka“ – óþekka stelpan. Elsku Elli minn, takk fyrir allt, Aroni mínum þótti svo vænt um þig, spurði alltaf hvernig þér liði og hafði áhyggjur af þegar verið var að flytja þig milli spítala. Eft- ir að þú kvaddir sagði hann: „Nú getur Elli alltaf fylgst með okk- ur.“ Ég er alveg viss um að þú gerir það, átt eftir að fylgjast með Krubbinu og Björgvini Steini stækka og átt eftir að hlæja að okkur Birni næst þegar við lendum í veseni með að setja eitthvað saman. Guð geymi þig, Elli minn. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson) Guðrún Björg Úlfarsdóttir og fjölskylda. Erlendur Hilmisson ✝ Jóhann Sæ-mundsson fæddist að Selparti í Flóa 20. maí 1930. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 8. febr- úar 2016. Foreldrar hans voru Ólína Ásgeirs- dóttir, f. 19. febrúar 1898, d. 18. ágúst 1936, og Sæmundur Jóhannsson, f. 2. maí 1893, d. 17. ágúst 1944. Systkini Jóhanns eru: Gunnur Gunnarsdóttir, f. 16.9. 1917, d. 19.9. 2007, Margrét Sæmundsdóttir, f. 28.1. 1926, d. 20.5. 2015, Ásgeir Sæmundsson, f. 22.5. 1927, d. 5.12. 2009, Sig- ríður Sæmundsdóttir, f. 19.8. f. 7.7. 1923, d. 8.11. 2004, Gunn- ar, f. 13.11. 1925, d. 20.4. 1934, Ólafur, f. 5.7. 1933, d. 3.3. 1998. Jóhann og Hulda eignuðust tvö börn: 1) Gunnhildi Ástu Jó- hannsdóttur, f. 6.12. 1968. Maki: Halldór Guðmundsson, f. 13.6. 1963, þau skildu. Börn þeirra: Diljá Ýr Halldórsdóttir, f. 14.3. 2001, og Hrafnhildur Halldórs- dóttir, f. 27.8. 2008. 2) Sæmund- ur Jóhannsson, f. 5.1. 1973. Maki: Ester Erlingsdóttir, f. 24.5. 1972. Barn þeirra er Jóhann Arnar Sæmundsson, f. 28.10. 2013. Dóttir Sæmundar er Aldís Sif Sæmundsdóttir, f. 6.8. 1999, og börn Esterar eru Alexander Sig- urðsson, f. 15.8. 1991, og Andrea Anna Ingimarsdóttir, f. 1.6. 1999. Jóhann starfaði lengst af sem bifreiðarstjóri hjá Vegagerð rík- isins. Útför Jóhanns verður gerð frá Garðakirkju í dag, 16. febrúar 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. 1928, d. 20.10. 2015, Ásta Rakel Sæ- mundsdóttir, f. 23.11. 1931, Gunnar Sæmundsson, f. 17.2. 1935, d. 12.8. 2011, og Guð- brandur Gíslason, f. 24.8. 1944, uppeld- isbróðir þeirra systkina. Eiginkona Jó- hanns er Hulda Ei- ríksdóttir, f. 22. mars 1931. For- eldrar Huldu voru Elísabet Eyjólfsdóttir, f. 5.10. 1896, d. 31.5. 1988, og Eiríkur Eyjólfsson, f. 12.5. 1882, d. 7.4. 1963. Systk- ini Huldu voru: Pétur, f. 31.7. 1917, d. 5.7. 1998, Eyjólfur, f. 13.10. 1919, d. 30.5. 1996, Grétar, Nú kveð ég Jóhann Sæ- mundsson, annan fóstra minn úr Gaulverjabænum, hófsaman og mildan á hinn besta hátt eins og Lækjarbytningum er lagið. Þar líkist hann einnig um margt systkinum sínum, sem á síðustu misserum hafa öll safnast til feðra sinna að undanskilinni Ástu sem yngst er og býr á Sel- fossi. Þau systkin misstu ung foreldra sína og unnu samhent að því að færa Selpart úr því að vera kot og í tölu bestu bæja í sveitinni. Þar átti Jóhann drjúg- an hlut að máli. Jóhann fór síðar um landið fyrir Vegagerðina, kynntist hér- aðs- og árstíðabundnum dyntum þess, púkkaði undir vegi, lagði þá, stikaði, merkti, valtaði og bar í víðs vegar svo að við hin mættum komast leiðar okkar. Hann ávaxtaði það sem í honum bjó svo rækilega að hann varð stórefnamaður af mildi. Oft glamraði hann á nikkuna heima í stofu í Selparti með rauða út- saumaða púðann við mjóhrygg- inn, enda músíkalskur og glað- sinna en samt gerði hann alltaf möglunarlaust það sem gera þurfti þótt erfitt væri stundum og jafnvel sárt því einhvers staðar í heilaberkinum blunduðu skilaboð um að sá sem það gerir slái dýpri tóna. Við hittumst nokkrum sinnum síðustu mánuðina áður en hann lést og rifjuðum ýmislegt upp frá liðinni tíð sem batt okkur saman sterkum böndum. Þær stundir eru mér dýrmætar, því þá töluðum líka um það sem mestu máli skiptir skiptir í lífinu og fram yfir það, vináttu, ást, umhyggju. Hann sagði mér að hann væri sáttur við líf sitt og þakklátur fyrir Huldu sína og börnin þeirra tvö, Gunnhildi og Sæmund. Hann hefði að vísu viljað fylgjast með Jóhanni Arnari dafna, nafna sínum og yngsta barnabarni, en það yrði ekki á allt kosið. Svo brosti hann, glaður yfir öllu því góða sem hann skilur eftir og hló stutt og léttilega, eins og honum var tamt. Æðrulaus, allt fram í andlátið. Við Halla vottum Huldu, eig- inkonu Jóhanns og þeirra af- komendum, okkar dýpstu sam- úð. Guðbrandur Gíslason. Jóhann Sæmundsson Hinn 2. febrúar kvaddi ein af mikil- vægustu manneskj- unum í mínu lífi, hún amma Helga. Við amma áttum einstakt sam- band og ég var svo ótrúlega hepp- in að fá að búa með þeim afa síð- ustu sumur þar sem sambandið okkar þróaðist enn frekar. Amma var einstaklega iðin við að kenna mér góða siði, svo sem að baka, hekla, prjóna, tala gott mál, Helga Magnúsdóttir ✝ Helga Magn-úsdóttir, mál- arameistari, fædd- ist 6. maí 1940. Hún lést 2. febrúar 2016. Útför Helgu fór fram 6. febrúar 2016. gestrisni og síðast en ekki síst að segja grófa brandara. Hún hreyfði við öllum þeim sem hún hitti, enda var hún með eindæmum hlý manneskja og tók öllum opnum örm- um. Það var fátt sem gerðist í mínu lífi sem amma Helga fékk ekki fréttir af en hún var einkar skilningsrík gagnvart ungu kynslóðinni og hafði ágætan húm- or fyrir uppátækjasemi hennar. Eitt atvik er mér mjög minnis- stætt, en það var fyrsta sumarið sem ég bjó hjá ömmu og afa. Ég var þá 19 ára gömul og lík- legast ekki alveg búin að átta mig á því hversu góðan húmor amma hafði. Ég hafði farið út á lífið kvöldið áður og staulaðist ekki heim fyrr en rétt undir morgun. Amma kom inn í herbergi til mín seinna um daginn þar sem ég var að búa um rúmið mitt. Flestar ömmur (ímynda ég mér) hefðu fussað og sveiað yfir því hvað ég var lengi frameftir, en það gerði amma Helga ekki. Hún vildi einfaldlega segja mér það að hér á Baughólnum væri mér alveg frjálst „að hafa bætt ból“. Ég brosti bara og þakkaði henni kærlega fyrir og bjóst við því að hún væri að bjóða mér aukasæng eða eitthvað slíkt. Hún sá á mér að ég hafði ekki skilið hvað hún meinti. „Veistu hvað það þýðir?“ bætir hún þá við. „Nei,“ segi ég. „Nú, það þýðir að sofa hjá.“ Þarna áttaði ég mig fyrst al- mennilega á því að það þýddi ekk- ert að vera feimin við ömmu og mér væri óhætt að tala við hana um hvað sem er. Jákvæðni var annar góður sið- ur sem amma kenndi mér. Ég man ekki eftir því að hún hafi nokkurn tímann tekið neikvæða pólinn á nokkurn hlut. Ég var til að mynda á bakpokaferðalagi um Afríku fyrir um ári. Á þriðju viku varð ég fyrir því óhappi að kortinu mínu var stolið og óþokkinn náði rúmum 50.000 krónum út af því. Þegar amma frétti af óförum mín- um hafði hún samband og eftir smá vol og væl í mér sagði hún að ég yrði búin að gleyma þessum peningum eftir nokkra mánuði en þessi maður ætti örugglega sár- lasna konu heima sem hafði ekki efni á rándýru lyfjunum sem gætu bjargað lífi hennar. Við sættumst á þá sögu og eftir það var ég ekki eins sár yfir þessum aurum. Amma, ég verð ævinlega þakk- lát fyrir þau 24 ár sem ég átti með þér og mun minnast þín með gleði í hjarta. Ég ætla að leggja mig í líma við að verða eins amma og þú, með húmorinn og jákvæðnina að vopni og risastórt hjarta sem býð- ur öllum hlýju. Hvíldu í friði. Þitt ömmubarn, Þóra Katrín. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG KOLBEINSDÓTTIR, Drápuhlíð 19, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, miðvikudaginn 10. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, föstudaginn 19. febrúar klukkan 11. . Kolbeinn Pálsson, Berglind Dina Vistra, Málfríður Pálsdóttir, Björgólfur Jóhannsson, Steinunn Pálsdóttir, Paul Greaves, ömmudætur og langömmudóttir. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR PÁLSSON, Hraunbæ 103, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 13. . Hilmar Hlíðberg Gunnarsson, Aðalheiður Svansdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Björn Gíslason, Helga Þóra G. Eder, Peter Eder, Brynja Gunnarsdóttir, Atli Hafsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Okkar ástkæri bróðir, LÁRUS M. MAGNÚSSON, lést 9. febrúar á líknardeild. Jarðarför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Systkini og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GÍSLI JÓNSSON, Hjarðarhaga 60, Reykjavík, lést aðfararnótt 11. febrúar á Landspítala við Hringbraut. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 13. . Elsa Benediktsdóttir, Guðfinna Gísladóttir, Sighvatur Sigfússon, Elsa Karen Sighvatsdóttir, Jóna Guðrún Sighvatsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.