Morgunblaðið - 16.02.2016, Side 34

Morgunblaðið - 16.02.2016, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 Guðrún Högna-dóttir er fram-kvæmdastjóri FranklinCovey á Ís- landi, en það er al- þjóðlegt fyrirtæki á sviði stjórnendaþjálf- unar, ráðgjafar og rannsókna á árangri einstaklinga, liðsheilda og vinnustaða. „Við er- um þekktust hér á landi fyrir stjórnenda- þjálfun og að kynna til leiks hagnýtar og áhrifaríkar aðferðir til að mæta þeirri miklu áskorun í íslensku at- vinnulífi sem er fram- leiðni. Við reyndar vinnum einnig mikið með almennu starfs- fólki til að ná árangri á sviði innleiðingar stefnu, sölu og verk- efnastjórnunar.“ Guðrún er einnig meðeigandi að Frank- linCovey á Norðurlöndunum en hún hefur verið framkvæmdastjóri FranklinCovey í tæp fjögur ár eftir að hafa verið framkvæmda- stjóri Opna háskólans í HR, Háskólanum í Reykjavík. „Við vinnum mikið saman á öllum Norðurlöndunum þ. á m. á Grænlandi og Fær- eyjum og ráðgjafar okkar eru að vinna úti um allan heim. Utan vinnu þá er ég mikil fjölskyldukona. Er gift mínum besta vini, en við erum búin að þekkjast síðan við vorum 3 ára og bjuggum hlið við hlið á Aragötunni. Hann heitir Kristinn Tryggvi Gunnarsson og er stjórnarformaður Expectus og er einnig ráðgjafi þar. Dætur okkar eru Kristjana Ósk Kristinsdóttir, MR-ingur og mikil leikkona, og Ing- unn Anna Kristinsdóttir, en hún er í Versló og er mikil kvikmynda- gerðarkona og hefur verið að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Við gerum mikið af því að ferðast, fórum um Kambódiu og Víetnam á kaj- ak og hjólum um jólin og á síðasta ári tókst mér að hjóla í fimm heims- álfum.“ Guðrún ætlar að halda heljarinnar veislu í kvöld. „130 bestu vinir mínir ætla að koma í Kjarvalshús, sem er hús foreldra minna. Yfirskriftin er Lífið er vegferð og við ætlum að fagna ferðalaginu saman.“ 50 ára „Ég sé fyrir mér að næstu 50 ár ein- kennist af stígandi gleði – life in crescendo!“ Kynntist manninum sínum 3 ára gömul Guðrún Högnadóttir er fimmtug í dag I nga Lára fæddist í Reykja- vík 16.2. 1956 og ólst upp á Högunum í Vesturbænum. Hún var auk þess í sveit á sumrin hjá ættmennum sín- um á Oddsstöðum í Lundarreykja- dal. Inga Lára var í Melaskóla og Hagaskóla, lauk stúdentsprófum frá MR, BA-prófi frá University Col- lege í Dublin 1979 og cand. mag.- prófi í sagnfræði við HÍ 1984. Inga Lára stundaði safnstörf við ýmis tímabundin verkefni hjá Þjóð- minjasafni Íslands 1977-89, var rit- stjóri Árbókar Hins íslenska forn- leifafélags 1982-92, ritstjóri Þjóðólfs á Selfossi 1986-87, skjalavörður hjá Héraðsskjalasafni Árnesinga 1988- 89, var hreppstjóri Eyrarbakka- hrepps um skeið, hefur starfað síð- asta aldarfjórðung við varðveislu ljósmynda í Þjóðminjasafni, var deildarstjóri þar frá 1991 og er nú sviðsstjóri Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafninu. Inga Lára hefur gefið út bækur um íslenska ljósmyndasögu og unn- ið við sýningar á því sviði. Þá hefur Inga Lára Baldvinsdóttir, sviðsstj. Ljósmyndasafns Íslands – 60 ára Gengið á Vestfjörðum Inga Lára með hópi ættmenna sem eru að leggja í hann suður og niður af Þorskafjarðarheiði. Í kompaníi við gömul hús Mæðgurnar Inga Lára og Vigdís við standsetningu Sjónarhóls, sl. aldamót. Kópavogur Hinrik Nóel Njáls- son fæddist 14. janúar 2015 kl. 7.45 í Reykjavík. Hann vó 3.920 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Ingunn Ýr Sigurjóns- dóttir og Njáll Aron Hafsteinsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / s. 483 4700 / info@hotelork.is / www.hotelork.is Á Hótel Örk finnur þú fyrirtaks aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi, árshátíðir og aðra mannfögnuði, fjarri skarkala borgarinnar. Á hótelinu eru sjö fundarsalir, allir útbúnir fullkomnum búnaði. Salirnir taka frá 10 til 300 manns í sæti og því möguleiki á ýmsum útfærslum. Fundir, ráðstefnur og árshátíðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.