Morgunblaðið - 16.02.2016, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.02.2016, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 Þjóðin kaus lögin „Augnablik“, „Á ný“ og „Spring yfir heiminn“ áfram í úrslit Söngvakeppn- innar 2016 sl. laugardags- kvöld, þegar seinni undan- úrslit fóru fram í Háskólabíói. Áður höfðu lögin „Hugur minn er“, „Óstöðvandi“ og „Raddirnar“ tryggt sér sæti í úrslitunum, sem fram fara í Laugardalshöll laug- ardaginn 20. febrúar. Strákarnir í Pollapönk sem og Högni Egilsson sáu um skemmti- atriði á seinna undanúrslitakvöld- inu. Á úrslitakvöldinu sjálfu munu hins vegar koma fram belgíska söngkonan Sandra Kim, sem vann Eurovision árið 1986 þá aðeins 16 ára gömul, með lagið „J’aime la vie“ og hin sænska Loreen sem vann keppnina árið 2012 með lagið „Euphoria“. Kynnar keppninnar í ár eru þær Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Guðrún Dís Emilsdóttir. Sex lög keppa til úr- slita um næstu helgi Loreen Tveir fyrstu þættirnir í þáttaröðinni Ófærð voru frumsýndir í Bretlandi í fyrradag á sjónvarpsstöðinni BBC 4 undir nafninu Trapped. Þættirnir voru sýndir á sama tíma og aðrir vinsælir glæpaþættir frá Norðurlöndunum, eins og Forbryd- elsen, Broen og Borgen, en stóðust vel samkeppnina. „Þættirnir voru það heillandi að eftir fimm mínútur var ég búin að gleyma því að þeir voru textaðir og reyndi að hækka í sjónvarpinu,“ seg- ir í gagnrýni Telegraph um þættina en þeir hlutu einróma lof gagnrýn- enda í Bretlandi. „Þetta eru dýrustu þættir sem gerðir hafa verið á Ís- landi og þeir eru alvarlega, fiðringur alveg niður í tær, góðir,“ segir í gagnrýni The Guardian. Þá vakti hin snæviþakta íslenska náttúra einnig lukku en gagnrýn- andi Telegraph hefur á orði að sögu- þráðurinn skipti eiginlega ekki máli svo lengi sem hægt sé að horfa á kuldalega fegurð íslenskrar náttúru. Myllumerkið #Trapped náði mik- illi útbreiðslu á samfélagsmiðlinum Twitter og var áberandi á meðan þættirnir voru í sýningu. Ófærð hlýtur einróma lof gagnrýnenda í Bretlandi Lofaðir Þættirnir Ófærð voru sýnd- ir í Bretlandi og var afar vel tekið. Aldarfjórðungi eftir að breska leik- konan Glenda Jackson yfirgaf leik- sviðið til að helga sig stjórnmálum, snýr hún aftur á svið síðar á árinu og tekst þá á við eitt helsta hlutverk Shakespeares: Lé konung. Jackson fer með hlutverk gamla konungsins í Old Vic leikhúsinu, í nýrri uppsetningu þar sem, að sögn The Independent, karlar leika í ein- hverjum mæli kvenhlutverk og öf- ugt í leikstjórn Deborah Warner. Margverðlaunuð Glenda Jackson. Glenda Jackson leikur Lé konung Kvikmyndin The Revenant kom, sá og sigraði á bresku kvikmynda- verðlaunahátíðinni, BAFTA, í London sl. sunnudagskvöld. Mynd- in hlaut fimm verðlaun, en hún var valin besta mynd ársins; Leonardo di Caprio þótti besti leikari ársins í aðalhlutverki; Alejandro G. Iñ- árritu besti leikstjórinn; Emmanuel Lubezki fékk verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna, auk þess sem myndin var verðlaunuð fyrir besta hljóðið. Kvikmyndin Mad Max: Fury Road hlaut næstflest verðlaun eða fern. Þar á meðal fyrir bestu klipp- inguna. Brie Larson var valin besta leik- kona ársins í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Room. Mark Rylance var valinn besti leikarinn í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Bridge of Spies. Kate Winslet var valin besta leikkona í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Joanna Hoffman, helstu stoð og styttu Steve Jobs í samnefndri kvikmynd. Kvikmyndin Brooklyn var valin besta breska mynd ársins. Amy, heimildarkvikmynd um stutta ævi Amy Winehouse, var valin besta heimildarmyndin. Inside Out var valin besta teiknimyndin og spænsk/argentínska kvikmyndin Wild Tales var valin besta erlenda myndin. John Boyega, sem slegið hefur í gegn í hlutverki Finns í nýjustu Stjörnustríðsmyndinni, var kosinn Rísandi stjarna ársins, en það eru einu verðlaunin sem ráðast af vilja almennings, sem greiðir atkvæði þar um á Netinu. Ennio Morricone var verðlaunað- ur fyrir tónlist fyrir í The Hateful Eight, en Jóhann Jóhannsson var sem kunnugt er tilnefndur í sama flokki fyrir tónlist sína í Sicario. The Revenant sigursæl  Kvikmyndin The Revenant hlaut fimm BAFTA-verðlaun  Bestu leikarar ársins í aðalhlutverkum þóttu vera þau Leonardo di Caprio og Brie Larson AFP Glaðir Chris Duesterdiek, Martin Hernandez, Frank A. Montaño, Jon Taylor og Randy Thom brugðu á leik með verðlaunagripi sína sem þeir hlutu fyrir framúrskarandi hljóðvinnu í myndinni The Revenant. Ánægðir Leikstjórinn Alejandro G. Iñárritu og leikarinn Leonardo di Cap- rio voru að vonum sáttir við gott gengi myndar sinnar, The Revenant. Glæsileg Kate Winslet var verð- launuð fyrir leik sinn í Steve Jobs. Breska myndin John Crowley, Finola Dwyer, Amanda Posey og Nick Hornby voru verðlaunuð fyrir Brooklyn. Stjarna John Boyega var kosinn Rísandi stjarna ársins, en það eru einu verðlaunin sem almenningur kýs um. Sæl Margaret Sixel var verðlaunuð fyrir klippinguna á Mad Max. DEADPOOL 5:40, 8, 10:20(P) THE CHOICE 8 ALVIN & ÍKORNARNIR 5:50 ÍSL.TAL THE BOY 10:20 THE REVENANT 5:50, 9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10:20 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ -T.V., Bíóvefurinn Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Dæmi: PROMEK DJÚSVÉL Tvö 12 l. hólf. Mjög auðveld í þrifum 2.900,- án VSK Þjónusta- & leigugjald á mán. Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.